27.03.1984
Sameinað þing: 70. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4200 í B-deild Alþingistíðinda. (3583)
239. mál, ný þjóðminjalög
Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. É,g ber hér fram fsp. til hæstv. menntmrh. varðandi ný þjóðminjalög. Fsp. er svohljóðandi:
„Hefur stjórnskipuð nefnd skilað tillögum um endurskoðun þjóðminjalaga? Má vænta þess að frv. til nýrra þjóðminjalaga verði flutt á yfirstandandi þingi?“
Tilefni þessarar fsp. er að löngu er tímabært, að mínu mati, að endurskoða gildandi þjóðminjalög, lög nr. 52/1969, og renna þannig stoðum undir eflda þjóðminjavernd hérlendis. Það er raunar mat flestra þeirra, að ég hygg, er láta sig varða menningarsöguleg efni, að afar mikið vanti á að þjóðminjavernd sé sinnt þannig að sæmandi sé hér á landi. Veldur þessu bæði fjárskortur til starfseminnar og ófullnægjandi og úrelt skipulag lögum samkvæmt. Við Íslendingar erum orðnir miklir eftirbátar annarra Norðurlandaþjóða á sviði þjóðminjaverndar þrátt fyrir atorkusamt starf margra til að halda þar í horfinu. Þetta á bæði við um starfsemi og aðbúnað Þjóðminjasafnsins og um minjasöfn víðast hvar á landinu.
Þörfin á endurskoðun þjóðminjalaga virðist hafa verið ljós stjórnvöldum um alllangt skeið. Haustið 1977 skipaði Vilhjálmur Hjálmarsson þáv. menntmrh. nefnd til að vinna að þessu verkefni, en hún mun lítið hafa starfað. Í des. 1981 skipaði svo Ingvar Gíslason þáv. menntmrh. nýja nefnd til að sinna sama verkefni. Það er afrakstur af því nefndarstarfi sem hér er spurt um og viðhorf hæstv. menntmrh. til tillagna nefndarinnar, ef þær nú liggja fyrir.
Ég gæti rökstutt mál mitt varðandi nauðsynina á endurskoðun þjóðminjalaganna, en tel þó ekki rétt að taka tíma varðandi það efni að þessu sinni. Ég tel hins vegar afar brýnt að þetta mál komi sem fyrst til kasta Alþingis til að sem fyrst verði unnt að hefja átak til úrbóta í þjóðminjavernd á grundvelli nýrra þjóðminjalaga.