28.03.1984
Efri deild: 70. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4226 í B-deild Alþingistíðinda. (3600)

18. mál, stéttarfélög og vinnudeilur

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Það frv. sem hér er nú til umr. er fyrir margra hluta sakir merkilegt. Eins og segir í grg. með frv. er því ætlað að rýmka samningsrétt launþega, opna nýjar leiðir í kjarabaráttu og losa þannig um núverandi fyrirkomulag launþegasamtaka. Þessar hugmyndir tel ég allra góðra gjalda verðar og sérstaklega vil ég benda á að því smærri sem samningseiningarnar eru, því auðveldara á hver einstaklingur með að hafa áhrif á kaup sitt og kjör. Ég tel það tvímælalaust kost að færa þannig samningsmálin nær hverjum og einum sem í hlut á. Grundvallarhugmyndir þessa frv. samrýmast vel hugmyndum kvennalistans um valddreifingu og ég mun því ekki greiða atkvæði gegn þessu frv. Hins vegar finnst mér nokkuð á skorta að í frv. sé hugsað fyrir því hvernig tengslum stéttarfélaga og vinnustaðafélaga eigi að vera háttað, hvernig nýtt skipulag launþegahreyfingarinnar gæti litið út, hvernig dæmið gangi upp.

Í grg. með frv. segja flm., með leyfi forseta: „Vitaskuld er með þessu frv. til l. lögð fram mjög róttæk grundvallarbreyting á fyrirkomulagi samninga um kaup og kjör. Flm. telja þó, eftir að hafa gefið sér þá forsendu að þessi breyting sé nauðsynleg, að í þessu frv. sé eins hægt farið í sakirnar og frekast er kostur og að öðru leyti sé aðilum vinnumarkaðarins látið eftir, hvernig þessum skipulagsmálum verður háttað.“

Ég er vissulega sammála flm. um að það á að vera í höndum aðila vinnumarkaðarins hvernig skipulagi þar er háttað, en það er samt sem áður nauðsynlegt að þegar flutt eru lagafrumvörp um slík mál á Alþingi geri flm. grein fyrir því hvernig þeir hugsi sér að dæmið gangi upp, jafnvel þó að þeir séu ekki að ákveða neitt fyrir hönd aðila vinnumarkaðarins með því. Mér finnst að frv. sem ekki er hugsað til enda af hálfu flm. geti varla talist fullbúið sem rökfærður lagatexti og af þeirri ástæðu einni mun ég sitja hjá við afgreiðslu þessa máls.

Ég tek svo undir orð frsm. meiri hl. hv. allshn. um að tímabært sé orðið að endurskoða vinnulöggjöfina frá 1938 og ég vildi sjá þær hugmyndir, sem eru settar fram í þessu frv., teknar með í reikninginn í slíkri endurskoðun. Ég held að nauðsynlegt sé, eins og kom fram í máli hv. 8. þm. Reykv., að Alþingi beiti sér á einhvern máta fyrir því að svo megi verða, að þessar hugmyndir verði þar teknar með.