28.03.1984
Neðri deild: 67. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4248 í B-deild Alþingistíðinda. (3633)

200. mál, ríkisábyrgð á launum

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að gera hér að umræðuefni störf þeirrar nefndar sem er að störfum. Það er í raun og veru ekki alveg tengt þessu máli. Í þessu er spurningin, sýnist mér, hvort það sama á að gilda í sambandi við orlofsfé fyrir þá orlofsþega sem hafa náð hagstæðri ávöxtun á orlofsfé með sérstöku samkomulagi, sem gert er innan þeirra laga og reglna sem í gildi eru um orlofsfé, hvort þeir aðilar eiga að njóta ríkisábyrgðar eins og aðrir sem greiða í gegnum póstgíró. (Gripið fram í.) Hvað segir hæstv. ráðh? (Gripið fram í.) Þýðir það, hæstv. ráðh., svo maður einfaldi málið, að orlofsþegar á Vestfjörðum, sem fá greitt orlofs£é inn í bankaútibú og sparisjóði á því svæði, njóti skv.. þessu frv. ríkisábyrgðar á því? Nú spyr ég beint. Mér sýnist það ekki ótvírætt að svo sé og þess vegna spyr ég og vildi gjarnan fá svar hæstv. ráðh., því að ef það felst að hans áliti í þessu frv. er ástæðulaust að ræða það frekar hér. Þá er málið leyst. Ég vildi gjarnan að hæstv. ráðh. kallaði bara til mín svarið. (Félmrh.: Ég er ekki úrskurðaraðill í þessu.) Hvað sýnist hæstv. ráðh.? (Félmrh.: Ef ég má endurtaka hér sem svar til ræðumanns: Í þriðja lagi gerir frv. ráð fyrir — í b-lið 4. gr. — .... að ríkisábyrgð nái ekki til orlofsfjár manna eins og núgildandi lög gera ráð fyrir, nema f þeim tilvikum sem launþeginn fer sjálfur með fyrirsvar fyrir kröfum sínum.) — Þetta fullnægir ekki því sem ég er að tala um að mínu áliti. Að vísu skal ég taka fram að ég er ekki lögfróður. (ÓRG: Heldurðu að þetta langa svar hafi komist inn í þingtíðindin?) Nei, við fáum það þá í síðari umr. (Félmrh.: Það er komið í þingtíðindin.) En ég stend í þeirri meiningu að þetta frv. leysi ekki þennan þátt. Það sé ekki í þessu frv. gert ráð fyrir því að á orlofsfé, sem greitt er skv. Vestfjarðasamkomulaginu t. d. í útibú bankanna og sparisjóði víðs vegar á því svæði, sé ríkisábyrgð. Ég tel nauðsynlegt að fá úr því skorið alveg ótvírætt. Ef það er skoðun hæstv. ráðh. að það sé tryggt með þessu frv. þá fagna ég því, en ég dreg mjög í efa að svo sé. En auðvitað fer þetta til skoðunar hjá hv. n. og þá mun ég a. m. k. beina þeim tilmælum til n. sem þetta mál fær til umfjöllunar að hún gangi úr skugga um það alveg ótvírætt hvort hægt er að líta svo á að frv. sem hér um ræðir innifeli þessa tryggingu gagnvart þessum launþegum eins og öðrum.

Ég ítreka líka að ég tel nauðsynlegt að lífeyrissjóðsgreiðslurnar og sjúkra- og orlofssjóðsgreiðslurnar verði sérstaklega athugaðar í tengslum við þetta. Ég vil ekkert um það fullyrða, en ég harma það ef hvorki sú endurskoðunarnefnd sem starfið vann né hæstv. ráðh. hefur fengið umsögn eða tillögur Alþýðusambandsins í þessu máli. Um þetta var fjallað innan miðstjórnar ASÍ og ég vissi ekki betur en að það ætti að fara til réttra aðila. Hafi svo ekki verið þá harma ég það, en það mun verða eftir því gengið að það komi þá á síðari stigum til nefndarinnar.