29.03.1984
Sameinað þing: 72. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4270 í B-deild Alþingistíðinda. (3666)

184. mál, friðarfræðsla

Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Hér hafa farið fram umr, æ ofan í æ, miklar og langar ræður verið haldnar, um þá till. til þál. sem hér liggur fyrir. Það hefur komið í ljós að viðhorf sjálfra flm. til till. byggjast á mismunandi forsendum. Till. hljóðar svo, eins og oft hefur verið nefnt, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþingi ályktar að fela menntmrh. að hefja undirbúning að frekari fræðslu um friðarmál á dagvistunarstofnunum,"— ekki einungis um frið á dagvistunarstofnunum. heldur almennt um friðarmál á dagvistunarstofnunum — „í grunnskólum og framhaldsskólum landsins. Markmið fræðslunnar verði að glæða skilning á þýðingu og hlutverki friðar og rækta hæfileika til þess að leysa vandamál án ofbeldis og leita friðar í samskiptum einstaklinga, hópa og þjóða.“

Nú er það svo að í öllu uppeldi í okkar þjóðfélagi er eitt af meginmarkmiðunum að rækta hæfileika fólks til að leysa vandamál sín án ofbeldis og friðsamlega. Það er eitt meginatriði í öllu uppeldi í siðuðu þjóðfélagi að taka tillit til réttar annarra, að virða lög og reglur sem sett eru til þess að koma í veg fyrir deilur manna á meðal. Þetta eru mikilvæg atriði í þessu sambandi og grundvöllurinn að öllu þessu felst í hinni kristnu siðfræði sem liggur til grundvallar í öllu okkar skólakerfi og uppeldiskerfi. Allt saman er þetta þar. En í ljós kemur strax í viðtölum við flm. þessarar till., sem birt voru í Morgunblaðinu 7. febr. að mig minnir eða rétt um það leyti sem þessi till. var lögð fram, að flm. leggja sinn skilninginn hver í það efni sem þeir eru að flytja. Ef Alþingi ætlar að fela framkvæmdavaldinu að framkvæma vilja sinn verður að vera ljóst hver þessi vilji er. Svo er ekki í þessu tilviki. Sumir vilja láta fræða um alþjóðamál og vopnabúnað og vopnaviðskipti allt niður í dagvistarstofnanir. Aðrir vilja almennt auka fræðslu í almennum góðum umgengnisháttum, fræðslu um kristindóm, leggja áherslu á þessa þætti víða í samfélagsfræðinni án þess að fjallað verði um alþjóðastjórnmál á þessum stigum skólakerfisins. Það er sem sé ljóst að flm. eru ekki allir á einu máli um margt það sem stendur í grg. till.

Nú er það svo, að þar sem greint er hvað felst í markmiði friðarfræðslu eru mörg atriði sem eru augljóslega í markmiði góðs uppeldis og almennrar fræðslu hvort eð er. Þess vegna held ég að áhersla á þau atriði eigi áfram að vera í skólafræðslunni, en fræðslu um vopnabúnað, eðli vopna, alþjóðastjórnmál og þess háttar get ég ekki séð að skólinn eigi að hafa með höndum fyrir yngstu borgarana í þjóðfélaginu.

Það eru fleiri en við sem höfum átt í erfiðleikum með að finna ramma utan um slíka fræðslu og þannig að allir gætu á það fallist. Við viljum ekki stuðla að því að koma inn í skólana, í sjálfa fræðsluna einhverju sem orkar tvímælis í pólitískum deilum. Ég vænti þess að við séum sammála um að svo eigi ekki að standa að málum. Þá er ég einmitt með í huga mál sem fjallaði um þessi atriði, athugun á friðarfræðslu á Norðurlöndum, og lagt var fyrir ráðherrafund menntamálaráðherra Norðurlanda núna í sumar. Þessu máli var þar hreinlega vísað frá vegna þess að menn töldu sig hafa reynslu af því að það væri ógerlegt að setja mál í þann ramma að skynsamlegt væri að taka þetta sérstaklega út úr og skapa því aukinn sess í skólafræðslunni.

Hins vegar hafa menn haft annan hátt á að því er varðar friðarfræðslu sem m. a. tekur mið af ástandi alþjóðamála. T. d. hafa í Noregi nýlega verið uppi hugmyndir af hálfu menntmrn. þar um að gera friðar- og öryggisfræðslu að valgrein í framhaldsskólum og inn í það námsefni eru teknir ýmsir þættir í ástandi alþjóðamála og ýmsir þeir þættir sem greindir eru í grg. með þessari till. Er sérstök áhersla lögð á varnarstefnu landsins sem þátt f varðveislu friðarins og sérstök áhersla lögð á fræðslu um mannréttindi sem grundvöll friðar meðal manna.

Í því efni er ýmislegt sem varðar heimspekileg viðhorf og almennt gildismat, en ógerlegt er að fjalla af neinu raunsæi um þessa hluti nema að gera grein fyrir.stefnu síns eigin lands og því hversu hún tengist varðveislu friðarins og hvernig varnarmálastefna hvers lands er þáttur í friðargæslunni, m. a. það hvern þátt þau lönd, sem ég hef gert að umtalsefni, Noregur og okkar land og sum Norðurlandanna, eiga í friðargæstu með því að leggja sitt af mörkum í varnarbandalagi sem hefur varðveitt frið í okkar heimshluta lengur samfleytt en nokkurn tíma hefur áður gerst. Þetta eru staðreyndir sem ómögulegt er að komast fram hjá. — Og ég vil sérstaklega andmæla því þegar á þessum málum er haldið á þann veg að friður sé í sjálfu sér umdeilt hugtak. Auðvitað er friður með frelsi og mannréttindum markmið í sjálfu sér. Ég sé ekki að það þurfi kennslugrein til að gera fólki grein fyrir gildi friðarins, ég held að það liggi bókstaflega í mannlegu eðli.

En ég vil leggja á það áherslu að mér þykir afar hæpið fyrir Alþingi að samþykkja till. sem Alþingi er sjálfu ekki ljóst hvað innifelur. Ef fela á stjórnvöldum framkvæmd einhvers máls verður líka að vera ljóst hvað það er sem á að framkvæma.