02.04.1984
Neðri deild: 69. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4338 í B-deild Alþingistíðinda. (3710)
178. mál, sala lagmetisiðju ríkisins á Siglufirði
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Frv. það sem hér hefur verið mælt fyrir af hæstv. iðnrh. er komið frá Ed. þar sem skiptar skoðanir voru um afgreiðslu þess. Hv. iðnn. Ed. skiptist í þrjá hluta í afstöðu til þessa frv. Fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna í n. mæltu með samþykkt þess en séráliti skilaði Karl Steinar Guðnason og Skúli Alexandersson öðru áliti sem minni hl. og mælti hann gegn samþykkt frv.
Í nál. minni hl. iðnn., 1. minni hl. í Ed., koma fram meginröksemdir gegn því að frv. þetta verði samþykkt. Sem fskj. er birt grg. frá Ragnari Arnalds, hv. 3. þm. Norðurl. v., og Hannesi Baldvinssyni, stjórnarformanni Lagmetisiðjunnar Siglósíld, þar sem þeir færa fram rök gegn þeirri tilhögun sem felst í þessu frv. og hæstv. iðnrh. hefur hér mælt með.
Ég ætla ekki að taka langan tíma til þess að gera athugasemdir við þetta mál, en vil þó nefna nokkur atriði sem athyglisverð eru. Að öðru leyti mun ég um þetta fjalla í þeirri n. sem frv. fær væntanlega til meðferðar, hv. iðnn. þessarar deildar.
Ég vil í fyrsta lagi nefna það, sem er nokkuð sérkennilegt við þá málsmeðferð sem hér er lögð til, að við erum að fjalla um frv. til l. um sölu þessa ríkisfyrirtækis en kaupsamningur um söluna er þegar gerður, raunar 17. desember s. l., og afhendingardagur fyrirtækisins var 1. janúar s. l. Í athugasemdum með frv. er einmitt að þessu vikið og segir þar, með leyfi forseta m. a.:
„Kaupendur lögðu áherslu á að afhending færi fram hinn 1. janúar 1984. Bentu þeir á í því sambandi eftirfarandi:
1. Kaupendur hafa yfir að ráða allmiklu magni af ópillaðri rækju sem þeir geta hafið vinnslu á um leið og breytingum á verksmiðjunni er lokið.
2. Niðurlagning á gaffalbitum ætti að öllu óbreyttu að hefjast 15. janúar. Kaupendur hygðust hins vegar breyta tilhögun við þá framleiðstu í tengslum við aukna rækjuvinnslu í fyrirtækinu. Til þess að þetta mætti takast töldu þeir nauðsynlegt að geta hafið breytingar á verksmiðjunni eigi síðar en 1. janúar. Yrði ekki frá samningum gengið fyrir áramót og vinnsla á gaffalbitum færi í gang á vegum Þormóðs ramma hf. kæmi það í veg fyrir að hægt yrði að gera nauðsynlegar breytingar á verksmiðjunni svo að vinnsla á úthafsrækju gæti hafist í mars n. k.“
Þetta eru tvö af þremur áhersluatriðum sem kaupendur bentu á um nauðsyn þess að afhending færi fram 1. janúar s. l. og rn. féllst á þá kröfu þeirra. Hér stendur Alþingi í rauninni frammi fyrir gerðum hlut þegar verið er að fjalla um þetta frv. Það er nokkuð sérstakt að þannig skuli staðið að málum að í rauninni er tæpast gerlegt fyrir Alþingi að taka afstöðu gegn þessu nema að taka afleiðingum þeirra gerða sem þegar hafa verið ákveðnar og framkvæmda sem þegar eru um garð gengnar að því að mér er tjáð, a. m. k. að verulegu leyti.
Annað atriði í sambandi við málsmeðferð á undirbúningsstigi er nauðsynlegt að nefna hér. Það er að iðnrn. og hæstv. ráðh. skuli ekki hafa séð ástæðu til þess að bera mál þetta undir stjórn fyrirtækisins. Ekki var einu sinni haft fyrir því að leita ráða, hvað þá meira, hjá stjórn Lagmetisiðjunnar Siglósíld, eins og fram kemur í grg. frá stjórnarformanni, sem ég nefndi áðan, Hannesi Baldvinssyni. Ekki var heldur leitað til bæjarstjórnar Siglufjarðar um þessa ráðgerðu sölu. Hafði þó bæjarstjórnin átt fulltrúa í stjórn fyrirtækisins s. l. 12 ár og látið sig, ásamt atvinnumálanefnd Siglufjarðar, málefni þess ítrekað skipta.
Ég tel að þarna séu viðhöfð óeðlileg vinnubrögð og þá burt séð frá þeirri till. sem þarna er gerð og þeim samningi sem gerður var um sölu á fyrirtækinu. Ég held að eðlilegra hefði verið að öllu leyti af hálfu rn. að leita til þeirra aðila sem hafði verið trúað fyrir umsjón með rekstri þess á liðnum árum og sem m. a. höfðu átt hlut að þeim leigusamningi sem gerður var á s. l. ári um tímabundna yfirtöku Þormóðs ramma á rekstri Siglósíldar.
Ég nefni einnig það atriði að þessi till. um breytingu á lögum er gerð á meðan verið er að fá reynslu af þeim rekstri sem um var samið s. l. vor, eða frá 1. júní 1983, um yfirtöku Þormóðs ramma á rekstri fyrirtækisins, rekstri sem fram til þessa, að mér er tjáð, hefur gefið góða raun í kjölfar þeirra breytinga á rekstri og aðstöðu fyrirtækisins, sem iðnrn. hlutaðist til um í samvinnu við fjmrn., þ. e. að auka fjölbreytni í rekstri fyrirtækisins með kaupum á tækjum til rækjuvinnslu sem hófst á s. l. ári.
Ég tel að eðlilegt hefði verið að fá frekari reynslu á þessa tilhögun sem virtist horfa til verulegra bóta í rekstri fyrirtækisins og ganga í það að endurskoða lög um fyrirtækið í framhaldi af því og þá m. a. með hliðsjón af þeim till. sem sú nefnd, sem gerði till. um tímabundna yfirtöku Þormóðs ramma, lagði áherslu á, að heimaaðilar tækju áframhaldandi á rekstri þessa fyrirtækis ásamt ríkinu og Framkvæmdasjóði til þess að renna undir það sem traustustum stoðum. Hér er hins vegar horfið að því ráði að selja þetta fyrirtæki í hendur aðilum sem að helmingi starfa utan Siglufjarðar. Þó að settir séu fyrirvarar í kaupsamningi um rekstur þess á Siglufirði og það bundið því skilyrði, ef ég hef lesið rétt, að skuldabréf þau megi gjaldfella, ef starfsemi lagmetisiðjunnar verði flutt frá Siglufirði, er hér teflt í nokkra óvissu um það atriði. Ég vænti þess þó vissulega að ekki komi til þess að rekstri þess verði hætt þar nyrðra eða hann fluttur til annarra landshluta. Þessu fyrirtæki hefur verið haldið gangandi af eiganda þess á undanförnum árum ekki síst með tilliti til atvinnuástands í þessu byggðarlagi og ég tel að engan veginn hafi ræst úr atvinnuástandi þar með þeim hætti að til greina geti komið að þessi atvinnurekstur yrði lagður niður eða fluttur eitthvað annað.
Ég nefni einnig það sem fram hefur komið um þessi efni varðandi kaupverð fyrirtækisins. Nauðsynlegt er að líta á þann þátt. Ég vil ekki hafa uppi neinar staðhæfingar um að um undirverð hafi verið að ræða í sambandi við sölu fyrirtækisins, en þó hafa líkur verið að því leiddar að verðið hafi verið í lægsta lagi, svo ekki sé meira sagt fyrir utan mjög góða skilmála sem fyrirtækið er afhent með. Ég áskil mér rétt til þess að fara ofan í þau efni nánar við athugun þessa máls í n.
Þetta eru þeir þættir sem ég tel einkum gagnrýni verða í sambandi við þetta frv. og þá stefnu sem í því felst að afhenda einkaaðilum ríkisfyrirtæki með þeim hætti sem hér er gert þegar búið er að stuðla að aðgerðum af hálfu hins opinbera, eins og gert var á síðasta ári, til að treysta undirstöður þess og vonir stóðu til að fyrirtækið færi að rétta úr kútnum.
Ég vil hins vegar taka það fram, til þess að ekki verði misskilningur og mál mitt rangtúlkað, að ég hef ekki verið þeirrar skoðunar á liðinni tíð, á meðan að ég fór með málefni þessa fyrirtækis t. d., að skilyrðislaust bæri að halda þessum rekstri í höndum ríkisins í því horfi sem gert var. Ég beitti mér þvert á móti fyrir því að kannaðar yrðu leiðir til þess að fá aðra aðila til þess að taka á málefnum þessa fyrirtækis með ríkinu. Þar voru sérstaklega hafðir í huga aðilar á Siglufirði, bæði bæjarsjóður Siglufjarðar og einkaaðilar þar og fyrirtæki sem vildu taka á þessum rekstri með ríkinu, enda væri tryggt að unnt væri að halda starfseminni áfram og bæta stöðu og hag fyrirtækisins. Ég tel að þegar um er að ræða ekki stærra fyrirtæki en þetta sé það á marga lund eðlilegt að heimaaðilar komi til sem ábyrgðaraðilar í rekstri þess, þó svo að ríkið sé þar aðili með. Ég tel að ýmislegt í reynstu af rekstri þessa fyrirtækis renni stoðum undir þá skoðun að skynsamlegt sé að halda þannig á máli að heimaaðilar eigi verulega hlutdeild í slíku fyrirtæki og finni þá jafnframt fyrir ábyrgð á rekstri þess meira en hægt er að gera ráð fyrir, ef um hreina ríkiseign er að ræða.
Ég vil svo að endingu, herra forseti, undirstrika það að æskilegt er að hægt verði að halda þessum rekstri áfram og treysta hann. Þó að ég gagnrýni efni þessa frv. og sé mótfallinn þeirri heimild, sem gert er ráð fyrir að lögfesta með því vænti ég þess vissulega að þetta fyrirtæki nái að bæta sinn hag og unnt verði að standa að lagmetisiðnaði á Siglufirði með betri og traustari hætti en gert hefur verið til þessa og eins og drög höfðu verið lögð að með samrekstri og yfirtöku Þormóðs ramma á þessu fyrirtæki og samið var um tímabundið á síðasta ári.