02.11.1983
Efri deild: 11. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 505 í B-deild Alþingistíðinda. (373)
59. mál, innlend lánsfjáröflun ríkissjóðs
Davíð Aðalsteinsson:
Hæstv. forseti. Ég vil taka undir það með hæstv. fjmrh. að það er ekki óeðlilegt að auka fjölbreytni að því er varðar lántökur ríkissjóðs hjá hinum almenna borgara í þessu landi. Það er vitað mál að það er þröng á okkar lánsfjármarkaði. Það hefur mikið verið rætt um að við þyrftum að draga úr erlendum lántökum svo sem kostur er. Vil ég taka undir það.
En ég stend hér upp ekki síst til þess að spyrja hæstv. fjmrh. hvað við er átt þar sem segir: „Í þriðja lagi ríkisvíxla til 2–12 mánaða sem héldu óbreyttu nafnverði allan lánstímann en bæru forvexti sem yrðu ívið hærri en almennir forvextir af víxlum eða yrðu boðnir til sölu og seldir þannig að forvextir réðust markaðslögmálum.“
Það er tvennt í þessu sem mig langaði til að spyrja hæstv. fjmrh. um og fá nánari útlistun á. Í fyrsta lagi: Hvað hugsa menn sér að þessir forvextir verði miklu hærri en hinir almennu forvextir sem hér er getið um? Og í öðru lagi, þar sem vikið er að markaðslögmálum: Með hvaða hætti á að taka mið af þeim við ákvörðun umræddra forvaxta?