03.04.1984
Sameinað þing: 75. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4368 í B-deild Alþingistíðinda. (3746)

184. mál, friðarfræðsla

Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Það fer fram atkvgr. um að vísa til nefndar máli sem er eitt þeirra er aðeins getur orkað tvímælis um til hverrar n. skuli fara. Vissulega er það eðlilegt að fræðslumál fari til hv. allshn. En að því er varðar mál sem snerta heimsfriðinn þá mundu þau nú öllu fremur eiga heima í utanrmn. Mig langar, herra forseti, til að fara fram á það að hæstv. forseti Sþ. beini því til allshn., sem væntanlega fær málið til umfjöllunar, að hafa samráð við hv. utanrmn.