04.04.1984
Efri deild: 76. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4426 í B-deild Alþingistíðinda. (3764)
281. mál, útflutningsgjald af grásleppuafurðum
Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til. l. um breytingu á lögum um útflutningsgjald af grásleppuafurðum. Eins. og fram kemur í athugasemdum með frv. hefur orðið sú þróun að mikill samdráttur hefur verið í veiðum á grásleppu. Hins vegar hefur framleiðsla hér innanlands og fullvinnsla á þessari afurð, þ. e. grásleppuhrognum, farið vaxandi á undanförnum árum. Þannig háttar til að útflutningsgjald er eingöngu greitt af óverkuðum hrognum sem flutt eru óunnin úr landi. Af eðlilegum ástæðum geta þeir aðilar sem stunda þessar veiðar ekki sætt sig við slíka skipan og telja að það eigi að vera sama gjaldtaka af grásleppuhrognum hvort sem þau eru unnin í landinu eða flutt út óunnin, enda hlýtur þróunin að verða sú að óbreyttu að viðkomandi aðilar neiti alfarið að selja hrogn sín til innlendrar framleiðslu. Þykir því eðlilegt að samræma gjaldtökuna og skv. l. gr. verður útflutningsgjald af lagmeti úr grásleppuhrognum 1.70% sem samsvarar því gjaldi sem tekið er af óunnum hrognum.
Í 2. gr. er gert ráð fyrir því að útflutningsgjald skv. 3. tl. 3. gr., þ. e. sá hluti gjaldsins sem gengur til Fiskveiðasjóðs, verði greitt inn á sérstakan reikning í Landsbanka Íslands uns skuld Samtaka grásleppuhrognaframleiðenda við bankann er að fullu greidd.
Mál þetta er þannig tilkomið að samtök þessara framleiðenda stóðu fyrir margvíslegri starfsemi og er svo komið að samtökin skulduðu um s. l. áramót 3.3 millj. kr. í Landsbanka Íslands. Nokkrir félagsmenn munu hafa gengið í persónulega ábyrgð vegna þessarar skuldar. Ekki þykir eðlilegt, og veit ég ekki betur en um það sé full samstaða meðal grásleppuhrognaframleiðenda, að þessir ákveðnu einstaklingar taki þetta áfall á sig. Er því lagt til að leysa það sameiginlega og verða við eindreginni beiðni viðkomandi aðila um að þessi hluti útflutningsgjaldsins renni til þessara þarfa um sinn. Gert er ráð fyrir að það muni taka um það bil þrjú ár. Ég vænti þess að hv. sjútvn. kalli þessa aðila fyrir og spyrjist nánar fyrir um málið og fái upplýsingar beint frá þeim.
Það hafa áður verið hér fumvörp á ferðinni varðandi grásleppuhrogn. Ég held að s. l. 2–3 ár hafi á hverju þingi verið flutt frv. er varða þessa starfsemi. Eru því sjútvn.-menn allkunnugir þessum málum. Ég vænti þess að þeir muni leita eftir frekari upplýsingum og ég á von á að í ljós komi að um þetta sé góð samstaða í hópi hagsmunaaðila. A. m. k. hefur það komið fram í viðtölum þeirra við mig.
Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og sjútvn.