04.04.1984
Neðri deild: 70. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4451 í B-deild Alþingistíðinda. (3797)
218. mál, útvarpslög
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti.
Hér hefur um nokkurt skeið legið fyrir til umr. frv. sem mjög hefur verið beðið eftir af þeim sem vilja að afnuminn verði einkaréttur ríkisins til reksturs útvarps.
Það frv. sem hér liggur fyrir er flutt eins og útvarpslaganefnd gekk frá því, nema 18. gr. frv. sem breytt er í samræmi við samþykkt ríkisstj. um það að aðeins skuli greitt afnotagjald af einu sjónvarpsviðtæki á hverju heimili. Að öðru leyti er þetta frv. útvarpslaganefndarinnar.
Útvarpslaganefndin var skipuð 23. sept. 1981 af þáv. menntmrh. til þess að endurskoða núgildandi útvarpslög nr. 19/1971. Í nefndinni áttu sæti þeir Markús A. Einarsson veðurfræðingur, sem skipaður var formaður nefndarinnar, Andrés Björnsson útvarpsstjóri, Benedikt Gröndal fyrrv. forsrh., Ellert B. Schram ritstjóri, Kristján J. Gunnarsson fræðslustjóri, Ólafur R. Einarsson menntaskólakennari og Vilhjálmur Hjálmarsson þáv. formaður útvarpsráðs.
Nefndin starfaði eftir þeirri meginstefnumörkun að hún skyldi í fyrsta lagi leggja áfram þær skyldur Ríkisútvarpinu á herðar að sjá landsmönnum öllum fyrir fjölbreyttri dagskrá hljóðvarps og sjónvarps og tryggja aðstöðu og tekjur til þess að svo mætti verða. Í öðru lagi skyldi nefndin leggja til að fleirum en Ríkisútvarpinu yrði veittur réttur til útvarps, þ. e. hljóðvarps og sjónvarps, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum og í þriðja lagi að ein útvarpslög skyldu fjalla um allan útvarpsrekstur í landinu.
Eins og ég vék að í upphafi er grundvallarbreytingin í þessu frv. fólgin í því að fleirum en Ríkisútvarpinu verði veitt leyfi til útvarps, en með útvarpi er í frv. átt við hljóðvarp og sjónvarp. I. kafli frv. fjallar ítarlega um skilyrðin sem þarf að uppfylla til að slík leyfi verði veitt. Í þeim kafla eru einnig ákvæði um útvarpsréttarnefnd sem skipuð verði skv. till. frv. sjö mönnum kjörnum af Alþingi og hún sjái um leyfisveitingar og alla framkvæmd l. kafla frv. Skilyrðin sem ég vék að eru í aðalatriðum þessi:
1. Að einungis verði veitt leyfi til útvarps á metra- og desimetrabylgju, en það þýðir að sendingar nái yfir takmörkuð svæði sem í aðalatriðum afmarkast af landfræðilegum aðstæðum.
2. Að Póst- og símamálastofnuninni er ætlað að sjá um úthlutun á senditíðnum og að tæknilegum skilyrðum sé fullnægt.
3. Að sveitarstjórnir mæli með veitingu leyfa til útvarpssendinga, hver á sínu svæði.
4. Að erlendir aðilar fái ekki leyfi til útvarpsreksturs.
5. Að óheimilt sé að senda út efni sem ekki hafi verið aflað leyfis fyrir með lögmætum hætti.
Heimilt verði fyrir útvarpsstöðvar, sem svo fá leyfi til þráðlausra sendinga, að þær geti aflað sér tekna með auglýsingum og þá verði hlutur auglýsinga í dagskrá svipaður og hjá Ríkisútvarpinu. Þetta er gert til þess að auðvelda útvarpsstöðvum að vanda til dagskrárinnar.
Nefndin hefur þó ekki orðið sátt á það að leggja til að kapalstöðvar fái að birta auglýsingar. Röksemdir nefndarinnar voru þær að kapalstöðvarnar ættu auðveldara með innheimtu afnotagjalda og þess vegna þætti ekki ástæða til þess að þær gengju á hlut þráðlausra útvarpsstöðva á auglýsingamarkaði.
Um þetta atriði standa allítarlegar umr. einmitt nú þessa dagana. Hér eru staddir nokkrir hv. þm. sem voru einmitt nú um helgina á fjölmiðlaráðstefnu í Stokkhólmi sem fyrst og fremst fjallaði um hina nýju tækni í sambandi við útvarp og sjónvarp og einkum notkun gervihnatta í því sambandi. Það sem greinilega einkenndi allt það sem kom fram á þessari ráðstefnu, næstum að segja hverja skoðun sem menn höfðu á efnisatriðunum, var þetta, að tækniþróunin gerði beinlínis óhjákvæmilegt að afnema einkarétt ríkisins á útvarpi og sjónvarpi.
Hins vegar greindi menn nokkuð á um þátt auglýsinganna. Sá þáttur kemur í raun og veru ekki hinum tæknilegu möguleikum við og ætti ekki heldur að koma við afstöðu manna til einkaréttar ríkisins eða afnáms hans. En samt hefur það orðið svo að þessi þáttur hefur orðið furðu fyrirferðarmikill, einkanlega hjá þjóðum sem ekki hafa auglýsingar í sínum ríkisreknu fjölmiðlum. Fyrir okkur Íslendinga ætti þetta aftur á móti að vera auðveldara viðfangs. Við höfum af þessu reynslu og við ættum líka að vita að hægt væri að setja viss skilyrði um málfar og ýmis önnur atriði þegar til auglýsinga tekur.
Það er líka með ólíkindum að það geti verið einum fjölmiðli hættulegt að annar fjölmiðill fjármagni sendingar sínar með auglýsingum, þegar þess er gætt, að aðgangur hlustenda að þessum auglýsingum, fer fyrst og fremst eftir því hversu aðlaðandi það efni er sem boðið er upp á í dagskránni. Það mundu væntanlega fæstir setjast niður og horfa á sjónvarpsdagskrá sem væri einungis auglýsingar, nema þá vegna þess að annað efni, sem yfirleitt væri boðið upp á í sjónvarpinu, þætti alls ekki aðlaðandi. Ég vil taka fram að þetta er atriði sem Alþingi hlýtur að taka afstöðu til en á þessu atriði getur afstaða til þessa frv. tæpast oltið á okkar landi.
Ég hafði ekki hugsað mér, herra forseti, að flytja ítarlega ræðu um þetta mál. Ég tel að sá tími sem Alþingi hefur til löggjafarstarfa það sem eftir er af vetrinum og í vor, sé svo skammur að málið þyrfti sem fyrst að komast til nefndar og fá þar umfjöllun. Málið hefur reyndar verið mjög mikið rætt á ýmsum vettvangi og mikill fjöldi þjóðfélagsborgaranna lætur sig miklu varða að það fái sem fyrst framgang.
Ríkisstj. hefur tekið þá afstöðu að hún ætlast ekki til þess að stjórnarflokkar hafi að neinu leyti bundnar hendur um afstöðu til þessa máls og menn hafa áskilað sér rétt til þess að flytja og fylgja brtt., enda er það fyllilega réttmætt og eðlilegt þegar um svo viðamikið mál er að ræða. Mér virðist líka ljóst að afstaða til þessa máls fer ekki eftir hreinum flokkspólitískum línum nema þá að því leyti til að það er algjörlega ljóst að Sjálfstfl. aðhyllist það sjónarmið að afnema skuli ríkiseinokun á útvarpsrekstri. Ég veit að það sjónarmið á sér fylgi í öllum öðrum flokkum og ég veit að það á sér verulegt fylgi í hinum stjórnarflokknum, eins og líka vænta má þar sem forveri minn í embætti menntmrh. stóð að skipun þeirrar nefndar sem unnið hefur þetta verk og ég veit ekki betur en hann hafi viljað framgang þess á sínum tíma. En með mál eins og þetta er það svo að menn telja sig þurfa tíma til þess að grandskoða það og gaumgæfa frá öllum hliðum. Sá tími hefur gefist og niðurstaðan liggur fyrir í formi þessa frv. sem er eins og nefndin gekk frá því á sínum tíma.
Komið hafa fram brtt. við þetta frv. frá tveimur hv. þm. Sjálfstfl. Að sjálfsögðu mun nefndin fjalla um þær till. og væntanlega láta ganga um þær atkvæði. Ég vil lítillega víkja að örfáum þessara till.
Það er í fyrsta lagi till. um skipan útvarpsréttarnefndar. Í frv. er gert ráð fyrir að útvarpsréttarnefnd sé kosin á Alþingi, en menntmrh. skipi formann og varaformann úr hópi hinna kjörnu nefndarmanna. Brtt. gerir ráð fyrir að ráðh. skipi fimm menn í útvarpsréttarnefnd eftir tilnefningu og þeir sem tilnefni séu Póst- og símamálastofnun, Samband ísl. sveitarfélaga, Ríkisútvarpið og samtök útvarpsstöðva, einn mann hver og einn til vara, og síðan skipi ráðh. formann án tilnefningar.
Þessi brtt. hefur augljóslega þann kost að hún siglir fram hjá því sem stundum hefur heyrst gagnrýni um, að nefndir séu pólitískt kosnar, eins og væri að sjálfsögðu um þá nefnd sem Alþingi mundi kjósa. En á hitt ber að líta að flokkarnir á Alþingi eru nú einu sinni umboðsmenn almennings í landinu og ekki er óeðlilegt, þegar fjallað er um málefni sem varða almenning, að fulltrúar þeirra komi þar við sögu. Eins og hv. þm. heyra gæti ég ákaflega vel hugsað mér að farin væri enn ein leiðin að þessu leyti til. M. ö. o. mér þykir þetta atriði alls ekki vera úrslitaatriði í sambandi við framgang frv. Svo er raunar um fleiri þær brtt. sem greindar eru á þskj. 493. Þar eru atriði sem ættu ekki að ráða úrslitum.
Meginmálið er þetta: Að létta af þeim algjöra einkarétti ríkisins á þessum fjölmiðli sem nú er þannig að við megum sem fyrst njóta viðlíka frelsis og fjölbreytni um efni sem flutt er á öldum ljósvakans eins og er um prentaða fjölmiðla. Það ætti ekki að vera neitt óeðlilegra nú á dögum að frelsi ríkti í þessari tegund fjölmiðlunar en er um annað tjáningarfrelsi.
Ég ætla ekki að sinni, hæstv. forseti, að hafa fleiri orð um þetta frv. Því fylgir ítarleg grg. sem ég geri ráð fyrir að hv. alþm. hafi kynnt sér. Ég geri mér ljóst að fram koma ýmsar breytingartillögur hv. þm. En ég geri mér líka ljóst að þeir hafa mikið um þetta mál hugsað. Þess vegna held ég að unnt ætti að verða að afgreiða þetta frv. sem fyrst á þessu þingi. Auk þess er það mín skoðun að afgreiðsla þess nú sé nauðsynleg vegna tækniframfara og vegna þess að þegar fer fram töluverð starfsemi í landinu sem er ekki heimil skv. núgildandi útvarpslögum og heldur áfram þrátt fyrir skort á lagaheimild. Þetta atriði tel ég að geri það enn meira aðkallandi að breyta þessum lögum þannig að unnt sé að gæta þess að sú starfsemi sem fram fer á þessu sviði verði í samræmi við lög og reglur þjóðfélagsins.