04.04.1984
Neðri deild: 70. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4454 í B-deild Alþingistíðinda. (3798)
218. mál, útvarpslög
Ingvar Gíslason:
Ég ætla aðeins að segja nokkur orð um þetta frv. áður en það fer til n. Eins og menn þekkja af umr. um þetta frv., sem staðið hafa nú um nokkur misseri, hefur frv. að geyma hugmyndir um nokkrar breytingar á gildandi útvarpslögum. Veigamesta brtt. er sú að takmarka að nokkru einkarétt Ríkisútvarpsins til útvarpsrekstrar, þ. e. að opna þann möguleika að fleirum en Ríkisútvarpinu verði veitt heimild til að reka staðbundið útvarp, reyndar tímabundið, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sem talin eru upp í 3. gr. frv. og hæstv. ráðh. rakti hér áðan í sinni ræðu.
Þótt fleiri breytingarhugmyndir felist í þessu frv. en hugmyndin um takmörkun einkaréttar Ríkisútvarpsins þá er þessi tillaga um takmörkun á einkaréttinum aðalbreytingarhugmyndin. Og ég held að það sé sú hugmynd sem mestum ágreiningi veldur og hefur valdið. En ég held líka að margs konar misskilningur hafi ríkt um þetta efni og hversu víðtæk þessi takmörkun á einkaréttinum er hugsuð í frv. Samt held ég að nauðsynlegt sé, eins og reyndar kom fram hjá hæstv. ráðh., strax í upphafi umr. á Alþingi að gera sér grein fyrir því að þessi hugmynd um rýmkun einkaréttar er nokkurt ágreiningsmál, ekki aðeins meðal alþm. heldur og meðal almennings í landinu.
Þessi ágreiningur er engan veginn flokkspólitískur, það ég best veit, og ég get tekið þar undir orð hæstv. ráðh. Ég held að það séu skiptar skoðanir innan allra flokka að meira eða minna leyti um hvort rýmka eigi einkarétt Ríkisútvarpsins og hversu mikið eigi að gera það. Vafalaust eru uppi margvíslegar hugmyndir um það hvernig haga skuli leyfisveitingum til annarra en Ríkisútvarpsins þótt menn annars geti hugsað sér að slaka á einkarétti Ríkisútvarpsins. Ég veit ekki annað en að hugmyndir manna um þetta efni séu ærið fjölbreyttar. Þær eru e. t. v. jafnmargar og mennirnir og ég held að þær þurfi ekki endilega að fara eftir pólitískum flokkslínum. Að því leyti get ég alveg fallist á það sem fram kom hjá hæstv. ráðh. þegar hún var að ræða það efni.
Það verður að segjast eins og er að sú hugmynd, sem fram kemur í þessu frv., er aðeins ein lausnin á þessu deilumáli, kannske hvorki betri né verri en ýmsar aðrar lausnir, enda eru þegar komnar fram brtt. við þetta frv. og ég er sannfærður um að það eigi eftir að koma fleiri brtt. við frv. í meðferð málsins á hv. Alþingi.
En hvað sem því líður tel ég að þetta frv. hafi verulega sérstöðu í umr. um útvarpsmál. sérstaða þessa frv. felst í því að það er sameiginleg niðurstaða stjórnskipaðrar nefndar sem í áttu sæti tilnefndir fulltrúar þingflokka eins og var fyrir 2–3 árum, ellegar menn sem mjög eru tengdir stjórnmálaflokkum. Auk þess átti útvarpsstjóri þar sæti sem sérstakur vörslumaður hagsmuna Ríkisútvarpsins. Ekki fer á milli mála að nefnd sú, sem fjallaði um þetta frv., var þannig skipuð að hin ólíkustu sjónarmið hefðu átt að njóta sín í nefndarstarfinu, enda tel ég að svo hafi verið. En ég endurtek það að þetta frv. þarf ekki þar fyrir að vera einhver allsherjarlausn á framtíðarskipan útvarpsmála í landinu. Eigi að síður hlýt ég að segja það sem mér finnst, að þetta frv. er frambærilegur grundvöllur undir umr. um þessi mál á hv. Alþingi. Þannig hef ég ætíð litið á þetta mál og geri enn. Auk þess er mér þetta mál nokkuð skylt því að nefnd þessa skipaði ég meðan ég gegndi störfum menntmrh. og nál. barst mér í hendur meðan ég gegndi enn ráðherrastörfum. Ég lýsti því þá yfir að ég gæti fyrir mitt leyti fallist á meginhugmyndir frv. og mundi fús til að leggja frv. fram sem stjórnarfrv. Sú var afstaða mín.
Hins vegar kom upp andstaða í þingflokki Framsfl., míns stjórnmálaflokks, gegn frv. og reyndar einnig í miðstjórn Framsfl. og síðan á flokksþingi. Innan þeirrar ríkisstj., sem ég átti sæti í, var heldur ekki um neinn einhug að ræða um frv. svo að það kom ekki til að grundvöllur væri fyrir því að leggja frv. fram á þinginu 1982–1983, sem þó var ætlun mín í upphafi. Síst af öllu var von um það á því þingi að það fengi sérstaka umfjöllun eins og þá stóð á í stjórnmálum almennt talað.
Persónuleg afstaða mín til þessa frv. hefur ætíð verið á einn veg. Ég hef alltaf litið á frv. sem mikilvægt framlag til umr. um útvarpsrekstur í landinu, en frv. er kannske engin allsherjarlausn á þessu máli, sem er annað mál. Það er heldur ekki gallalaust, geri ég ráð fyrir, það er ekki ótvírætt, en eigi að síður er það hæfasti grundvöllur sem hingað til hefur verið fundinn til þess að hefja skynsamlegar og skipulegar umr. um útvarpsmál á hv. Alþingi. Það er einnig brýn þörf fyrir slíka umr. og þess vegna ber að fagna framlagningu frv. nú og vil ég leyfa mér að gera það.
Frjálsræði í útvarpsrekstri hefur orðið nokkuð fyrirferðarmikið. slagorð á síðustu árum ásamt einbeittri fordæmingu á því sem menn kalla „einokun“ Ríkisútvarpsins. Þessi krafa um frjálsræði getur auðvitað verið komin af ýmsum ástæðum og atvikum. Hún getur m. a. verið sprottin af þeirri tandurhreinu frjálsræðisstefnu að athöfnum manna eigi ekki að setja neinar hömlur, allt eigi að vera athafnamönnum frjálst, ef þeir hafa fé til að hefjast handa um eitthvert verk eða athafnir. Þá má hugsa sér að krafan sé sprottin af þeirri sannfæringu einhverra að lögbundinn einkaréttur ríkis til útvarpsstarfsemi sé í raun og veru ritskoðun af stærri gerðinni og ósamrýmanlegt grundvallarreglum lýðræðis. Enda hefur það verið borið fram að einkaréttur ríkisins á útvarpi samsvari því að lög ákvæðu ríkinu einkarétt á blaðaútgáfu. Það eru m. ö. o. útvaldir merkisberar tjáningarfrelsisins sem í þessu tilfelli bera fram kröfuna um frjálsa útvarpsstarfsemi.
En þegar til kastanna kemur held ég að það sé hvorki krafa örfárra hreinræktaðra frjálshyggjumanna né krafa enn færri sjálfvalinna vörslumanna tjáningarfrelsisins, sem mestu hafa ráðið um gang umræðunnar um frjálslegri útvarpsstarfsemi hér á landi. Ég held að umr. sé fyrst og fremst sprottin af kröfu eða ósk atmennings um fjölbreyttari útvarpsdagskrá, þ. e. að útvarpshlustendur og sjónvarpsnotendur hafi úr meiru að velja, að útvarps- og sjónvarpsrásir séu fleiri en ein. En þessari kröfu eða þessari ósk um fjölbreytni hefur í sjálfu sér ekki fylgt nein alvörukrafa um frjálst útvarp í merkinu frjálshyggjumanna né að almenningi hafi þótt þrengt að tjáningarfrelsinu með starfsemi Ríkisútvarpsins.
Ég tel að meiri hluti þjóðarinnar sætti sig fyllilega við það að Ríkisútvarpið haldi einkarétti sínum í höfuðatriðum. Yfirleitt gerir almenningur ekki kröfur sínar um fjölbreytni í útvarpsdagskrá á hendur neinum öðrum en Ríkisútvarpinu. Ég hef ekki orðið var við annað a. m. k. Almenningur vantreystir ekki Ríkisútvarpinu hvað snertir mannréttindamál eða athafnafrelsi, en fólk vill að Ríkisútvarpið sé fjölbreytt og frjálslegt en tréni ekki sem óumbreytanlegt kerfisbákn. Þar á meðal held ég að almenningur telji það varla geta skaðað hagsmuni Ríkisútvarpsins þótt slakað yrði á stífustu kröfum um einkarétt þess, svo sem eins og það að reka staðbundna fréttastöð í einhverju byggðahverfi eða húsasamstæðu eða kaupstað ef íbúar hefðu áhuga á slíku. Ef Ríkisútvarpið þolir ekki slíka samkeppni eða ef íslenskri menningu stafar hætta af þess háttar staðbundinni útvarpsstarfsemi heimamanna er Ríkisútvarpið heldur valt á grunni og íslensk menning í veikara lagi.
Ég vil því að það komi skýrt fram að ég tel fráleitt að ætla að standa í vegi fyrir því með einhverri hörku og stífni að leyfa það sem stundum hefur verið kallað á íslensku grenndarútvarp og er þýðing á norrænu orði, en þess háttar útvarpsstöðvar hafa mjög lítinn sendingarstyrk og þröngt afnotasvæði sem kannske er ekki annað en kaupstaðarland eða bæjarhverfi. Ég sé ekkert vit í því að Ríkisútvarpið sé svo ofverndað að fólk megi ekki taka sig saman á þröngu byggðarsvæði um rekstur smástöðva til að þjóna sínum sérstöku hagsmunum eða staðbundnum áhugaefnum. Hér á ég t. d. við það að sveitarfélög geti rekið staðbundið útvarp eða samtök sem sveitarstjórn viðurkennir.
Hins vegar sé ég ekki hvers virði það væri í alvöru, í praktískri framkvæmd, að samþykkja lagabókstaf um að engar hömlur skuli vera á því að menn fái að setja á stofn útvarpsstöð og lögjafna þá kannske út frá því sem viðurkennt er, að öllum er frjálst að setja upp prentverk og hefja bókaútgáfu, gefa út blöð og tímarit og hvers kyns prentað mál. Hér er í raun og veru verið að bera það saman sem ekki er sambærilegt, a. m. k. eins og nú háttar tækninni og þar með möguleikanum til þess að nýta slíkt frelsi í raun og veru. Ég sé því enga ástæðu til þess að vera að gefa fólki undir fótinn með það að algert frelsi til útvarpsrekstrar sé mögulegt, jafnvel þó að það kynni að vera æskilegt. Það er því óraunhæft og reyndar órökrétt að keppa að slíku marki. Algert frelsi í útvarpsrekstri er því miður eins konar „absólút“ ómöguleiki. Það væri mikill tímasparnaður ef slíkt hjal væri lagt til hliðar.
Sem betur fer afskrifaði útvarpslaganefndin frjálst útvarp í þessari óraunsæju merkingu og hélt sig þannig við jörðina. M. a. af þeirri ástæðu hef ég talið útvarpslagafrv. nefndarinnar nothæfan grundvöll undir skipulegar umr. um breytingar á útvarpslögum. Ég fagna því að samflokksmenn mínir hafa að lokum og eftir vandlega umhugsun greitt fyrir því að þetta frv. er nú lagt fram til umr. án þess þó að því fylgi nokkurt fyrirheit af flokksins hálfu um stuðning við frv. í óbreyttri mynd.
Það hefur verið útbásúnað að þetta frv. útvarpslaganefndar sé tiltakanlega róttækt, stefni að gífurlegum breytingum, ef ekki byltingu, í útvarpsrekstri hér á landi. Það er rétt að frv. hefur fólgna í sér þá meginbreytingu að opnaðir eru augljósari möguleikar til þess að losa um einkarétt Ríkisútvarpsins en finna má í gildandi lögum. Þetta frv. gerir vissulega ráð fyrir því að fleirum en Ríkisútvarpinu verði heimilað að reka útvarp með vissum skilyrðum. En ég vil vekja athygli á því að frv. gengur út frá því að Ríkisútvarpið hafi áfram einkaleyfi til þess að vera landsútvarp, þ. e. útvarp sem nær til landsins alls. Undantekningar á þessu má aðeins binda við svæðisstöðvar sem hafa takmarkað sendisvið og afnotasvæði. M. ö. o. Ríkisútvarpið mundi áfram hafa einkarétt á hljóðvarpi og sjónvarpi þegar um er að ræða sendistöðvar sem eiga að þjóna landinu í heild og miðunum umhverfis landið.
Útvarpslaganefndin leggur auk þess mikla áherslu á eflingu Ríkisútvarpsins. En þá er ég kominn að því atriði sem ég persónulega vil gera að meginmáli í sambandi við þá endurskoðun á útvarpslögum sem nú er verið að ræða. Allt er gott um það að segja að slaka eitthvað á einkarétti Ríkisútvarpsins og opna möguleika fyrir staðbundnum stöðvum sem víðast í landinu eftir skynsamlegum reglum. En affarasælast verður að efla Ríkisútvarpið og gera því kleift að vera um ókomin ár þungamiðja útvarpsrekstrar í landinu í heild.
Íslenska Ríkisútvarpið á nú orðið langa sögu, meira en hálfa öld. Útvarpið hefur að vísu verið ríkiseign og rekið á ríkisábyrgð fjárhagslega, má segja, en það hefur eigi að síður verið sjálfstæð stofnun eins og mælt er um í gildandi útvarpslögum.
Það er skoðun mín — og ég er alls ekki einn um þá skoðun — að Ríkisútvarpið hafi jafnan gætt fyllstu óhlutdrægni í starfsemi sinni og verði ekki sakað um að hafa dregið taum eins eða neins né lagt sig niður við það að þjóna undir valdhafana á hverjum tíma. Tekist hefur furðu vel að sigla fram hjá slíkum hættum. Útvarpið hefur verið mikilvægt menningartæki, sem hefur átt drjúgan þátt í að mennta og manna íslensku þjóðina í full fimmtíu ár.
Fjölbreytni dagskrár Ríkisútvarpsins er furðu mikil, og ég tel að í dagskrárstjórn, einkum hljóðvarpsins, sé gætt „frjálslyndis“ í góðri merkingu þess orðs og lýðræðislegrar stefnu, eins konar „grasrótarstefnu“, sem varla á sinn líka í öðrum löndum. Á ég þá fyrst og fremst við það hversu Ríkisútvarpið, einkum hljóðvarpið, er opið og tiltölulega aðgengilegt fyrir almenning í landinu að koma þar fram og flytja mál sitt við ýmis tækifæri og undir ýmsum dagskrárliðum.
Enda fer það ekki milli mála að Ríkisútvarpið nýtur sérstakrar stöðu í augum almennings. Ríkisútvarpinu er treyst. Almenningur lítur á Ríkisútvarpið sem óháð og frjálst menningartæki, vettvang sem er hafinn yfir pólitíska flokkshyggju og einhliða áróður valdamanna og annarra áróðursmanna. Það dettur reyndar engum í hug að Ríkisútvarpið sé valdatæki í höndum þeirra sem mestu kunna að ráða á Alþingi og ríkisstj. hverju sinni. slíkar ásakanir heyrast sjaldan og hafa aldrei átt við rök að styðjast.
Þetta tel ég að sé reynslan af Ríkisútvarpinu í meira en fimmtíu ár. Við getum því með góðri samvisku stutt óbreytta stefnu að því leyti til að Ríkisútvarpið verði áfram þungamiðja útvarpsrekstrar í landinu um langa framtíð.
Ég vona að Alþingi beri gæfu til að halda því striki, þótt tímabært kunni að þykja að slaka eitthvað á einkarétti þess þegar um staðbundnar smástöðvar er að ræða. Reyndar er ekkert sem mælir gegn því að Ríkisútvarpið sjálft efli staðbundna starfsemi, þ. e. úti um landsbyggðina, þ. e. dreifi dagskrárgerð á fleiri hendur en finna má í Reykjavík.
Þegar ég var menntmrh. beitti ég mér fyrir því að Ríkisútvarpið efldi dagskrárgerð utan Reykjavíkur með því að komið var upp sérstakri dagskrárskrifstofu Ríkisútvarpsins á Akureyri. Hefur sú ákvörðun mælst vel fyrir og heppnast ágætlega. Það er vel hugsanlegt að Ríkisútvarpið tengist landsbyggðinni og almenningi í landinu enn nánari böndum með því að koma upp dagskrárskrifstofum víðar en á Akureyri.
Þá vil ég geta þess að Ríkisútvarpið hefur á síðustu árum reynt að auka fjölbreytni dagskrár. Síðasta tilraun í þá átt og sú veigamesta er vafalaust útsending á „Rás 2“, sem svo er kölluð, sem hafist var handa um að undirbúa 1981, eða frá því að fjárhagur Ríkisútvarpsins tók að batna eftir mjög erfiðan rekstur tveggja ára þar á undan, áranna 1979 og 1980, og eftir að fullur kraftur var settur á byggingu útvarpshússins við Háaleitisbraut um áramótin 1980–1981. Þá tók ný byggingarnefnd til starfa og gerð var markviss byggingaráætlun sem segja má að hafi staðist furðanlega, enda er nú búið að taka hluta útvarpshússins í notkun og eftir 2–3 ár ætti öll byggingin að verða komin í gagnið ef vel er á haldið.
Ég vona að sú gróska sem verið hefur hjá Ríkisútvarpinu undanfarin þrjú ár koðni ekki niður, enda þarf þjóðin á því að halda að hafa slíka menningarstofnun, sem hefur að markmiði að sameina þjóðina, þ. e. að þjóna þjóðinni sem einni heild. Það hefur alltaf verið stefna Ríkisútvarpsins að vera landsútvarp, að vera eins konar þjóðarútvarp og þeirri stefnu verður að halda. Því vil ég leggja á það megináherslu í sambandi við það frv. sem hér er til umr. að hvað sem því liður að slaka á strangasta einkarétti Ríkisútvarpsins verði þess gætt að Ríkisútvarpið haldi stöðu sinni sem sameinandi menningarstofnun íslensku þjóðarinnar og opinn umræðuvettvangur fyrir almenn málefni eins og verið hefur. Þannig held ég að Íslendingar tryggi ýmsa lýðræðislega hagsmuni sína, nauðsynlegt frjálslyndi í fjölmiðlarekstri og menningarlegt dagskrárefni. Ríkisútvarpið á að vera sameinandi afl í þjóðlífinu, ná til allra landsmanna, vera sannkallað þjóðar- eða landsútvarp.
Ég tel að frv. þetta, eins og það er úr garði gert, tryggi þessa stefnu, virði þetta meginsjónarmið, sem ég ber fyrir brjósti, og af þeim sökum styð ég frv. í öllum meginatriðum. Ég legg á það áherslu, að hvað sem öðru líður, er þetta frv. góður grundvöllur undir umr. um útvarpsmál á hv. Alþingi.