04.04.1984
Neðri deild: 70. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4462 í B-deild Alþingistíðinda. (3800)
218. mál, útvarpslög
Páll Pétursson:
Herra forseti. Ég tel rétt að undirstrika það sem kom fram í framsöguræðu hæstv. menntmrh. að þó að hér sé um stjfrv. að ræða þá áskildu ýmsir stjórnarþm. sér rétt til þess að flytja og fylgja brtt. sem fram kynnu að koma. Og að sjálfsögðu erum við tilbúnir að standa að skynsamlegum breytingum á þessu frv.
Það er hollt að hafa það í huga að ríkisfjölmiðlarnir eru snar þáttur í daglegu lífi okkar Íslendinga. Ég vil fullyrða það að útvarp og sjónvarp eru mikilsverðir, góðir og vandaðir fjölmiðlar, a. m. k. ef miðað er við fólksfjölda þjóðarinnar, og má segja að okkur hafi tekist býsna vel að gera þá þannig úr garði að okkur sé að þeim menningarauki og sómi. Um ýmislegt má deila í því sambandi og sitthvað skolast nú með, sem er kannske ekki alveg upp á það besta, en í heildina held ég að við verðum að telja að mjög vel hafi til tekist hjá Ríkisútvarpinu, bæði hljóðvarpi og sjónvarpi. Ég vil ekki standa að neinni þeirri lagasetningu eða neinni þeirri aðgerð sem veikir stöðu þessara ríkisfjölmiðla. Hins vegar tel ég eðlilegt að skapað sé svigrúm fyrir aukna fjölbreytni og menn fái tækifæri til að setja á stofn útvarpsstöðvar eða sjónvarpsstöðvar að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, enda sé frá því gengið að þær verði ekki til þess að veikja stöðu þeirra ríkisfjölmiðla sem fyrir eru. Það finnst mér vera algjörlega númer eitt.
Í þessu frv. er gert ráð fyrir að útvarpsréttarnefnd sé kosin. Færi hún með veitingu leyfa skv. 3.–6. gr. laganna og fylgdist með að reglum þeirra væri fylgt. Ég tel því allt eins heppilegt að útvarpsráð, sem jafnframt er þingkjörið, eins og þessi hugsaða útvarpsréttarnefnd, gegndi þessu starfi. Ég sé enga ástæðu til þess að vera að flytja þetta verkefni til útvarpsréttarnefndar.
Það er rétt að geta um það að á síðustu árum hefur aukist fjölbreytni Ríkisútvarpsins bæði með útvarpi frá Akureyri og eins með Rás 2. Ég held að við þurfum að halda áfram á þeirri braut.
Ég vona að menntmrn. takist að gera breytingar á þessu frv. svo að staða ríkisfjölmiðlanna verði betur tryggð en mér sýnist vera.
Að lokum langar mig, herra forseti, til að lesa hér úr athugasemdum með frv. á bls. 20 sérálit tveggja manna í útvarpslaganefndinni, þeirra Andrésar Björnssonar útvarpsstjóra og Vilhjálms Hjálmarssonar fyrrv. formanns útvarpsráðs, svo að það komi einnig fram við þessa umr.:
„Við undirritaðir, Andrés Björnsson og Vilhjálmur Hjálmarsson, teljum að mjög orki tvímælis hversu langt skuli ganga að rýmka rétt manna til útvarpsreksturs hér á landi. Við höfum þó tekið þátt í gerð þessa frv. og skoðum það sem viðleitni að beina þróun á þessu sviði inn á heppilegri brautir en verða mundi án nýrrar löggjafar.
Varðandi veitingu réttar til útvarps og eftirlits með útvarpsrekstri setjum við fram þessar hugmyndir:
1. Menntmrh. veiti leyfin íslenskum lögaðilum, sveitarfélögum og skráðum hlutafélögum eða samvinnufélögum, sem stofnuð yrðu til þess að reka útvarpsstöðvar, að fengnum rökstuddum umsóknum útvarpsráðs og útvarpsstjóra. Hann geti á sama hátt afturkallað leyfi ef ekki er fullnægt lögmætum skilyrðum.
2. Eftirlit með framkvæmd dagskrár hjá öllum útvarpsstöðvum verði á einni hendi, þ. e. hjá þingkjörnu útvarpsráði.
Við teljum miklu varða að réttur félaga til útvarpsreksturs sé í fyrstu veittur til skamms tíma í tilraunaskyni og að slík leyfi verði ætíð tímabundin. Þá virðist okkur eðlilegt að veiting leyfa sé í höndum æðsta yfirmanns menntamála. Um tilhögun verði sett nánari ákvæði í reglugerð.
Skv. ákvæðum frv. yrðu skyldur allra útvarpsstöðva varðandi dagskrárgerð þær sömu að vissu marki. Því virðist eðlilegt að sama úrskurðarvald fjalli um mál þeirra allra að þessu leyti.
Af sjálfu leiðir, ef þessi háttur yrði á hafður, að breyta þyrfti nokkrum ákvæðum í frv. til samræmis við það. Að okkar dómi þyrfti einnig að skoða nokkru nánar fleiri þætti þessara viðkvæmu og vandasömu mála, m. a. með landshlutaútvarp á vegum Ríkisútvarpsins og fjármögnun nýrra útvarpsstöðva.“
Undir þessar skoðanir þeirra Vilhjálms Hjálmarssonar og Andrésar Björnssonar get ég sjálfur persónulega tekið.