04.04.1984
Neðri deild: 70. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4469 í B-deild Alþingistíðinda. (3803)

218. mál, útvarpslög

Jón Baldvin Hannibalsson:

Herra forseti. Þetta mál ber að Alþingi með dálítið óvenjulegum hætti. Hér er lagt fram stjfrv. samið af nefnd sem forveri hæstv. núv. menntmrh. skipaði í septembermánuði 1981 og skilaði síðan sínu áliti í okt. 1982. Samstaða var ekki innan fyrrv. ríkisstj. um að frv. yrði flutt og þrátt fyrir það að hér er frv. kallað stjfrv. er ljóst af þeim umr. sem fram hafa farið nú að um það er ekki samstaða milli stjórnarflokkanna. Það er jafnvel ekki um það eining milli þm. í flokki hæstv. menntmrh., sbr. það að einstakir þm. Sjálfstfl., þeir hv. þm. Friðrik Sophusson og Guðmundur H. Garðarsson, flytja brtt. í veigamiklum atriðum við það frv. sem lagt er fram af hæstv. menntmrh. og er óbreytt miðað við tillögur útvarpslaganefndar frá sinni tíð.

Jafnframt kemur það fram í máli bæði fyrrv. hæstv. menntmrh. Ingvars Gíslasonar og í máli formanns þingflokks Framsfl. að þeir hafa veigamiklar athugasemdir við þetta frv. að gera. Enn fremur heyrist mér af málflutningi fulltrúa annarra flokka að samstaða um málið sé lítil.

Mér sýnist þess vegna augljóst mál að um þetta þýðingarmikla mál verði að fjalla mjög rækilega í þinginu og þá fyrst og fremst í þingnefndum. Ef stíga á þýðingarmikið skref í þeim efnum verði það ekki gert nema að vandlegri könnun lokinni í nefnd og tilraunum milli flokka til þess að ná samstöðu um grundvallaratriðin.

Nú verður því ekki neitað að það ástand sem hér hefur skapast í fjölmiðlunarmálum á undanförnum árum kallaði á frumkvæði stjórnvalda um setningu nýrrar löggjafar. Ég rifja upp að með skýrslu svokallaðrar myndbandanefndar, sem hæstv. fyrrv. menntmrh. setti á laggirnar, er það hafið yfir allan vafa að mjög margvísleg löggjöf er hér brotin í stórum stíl. Þannig er t. d. nefnt að um sé að ræða dreifingu efnis í stórum stíl af myndböndum um myndbandakerfi sem brýtur í bága við íslensk lög. Þessi starfsemi varðar við fjarskiptalög, hún varðar við gildandi lagaákvæði um einkarétt Ríkisútvarpsins. Talið er sannað að í henni felist stórfelld brot á höfundarétti, fjarskiptalögum, hegningarlögum, lögum um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti, jafnvel lögum um vernd barna og ungmenna og ákvæði laga um kvikmyndaeftirlit.

Þannig var augljóst mál að ekki var hægt að horfa upp á það ástand. Það verður annaðhvort að framfylgja gildandi lögum og stöðva þá þá starfsemi, sem felur í sér lagabrot í svo mörgum greinum, eða kanna það til þrautar hvort gildandi lög eru af ýmsum ástæðum úrelt og hvort þá beri að breyta þeim. Þess vegna hefði þetta frv. gjarnan mátt koma fram fyrr. En ég geri ráð fyrir því að þetta frv. þurfi að vera lengi í umfjöllun þingsins og fá þar mjög rækilega umfjöllun áður en við getum gert ráð fyrir að samstaða takist um meginatriði.

Það er alveg ljóst í hverju till. útvarpslaganefndar, sem hér eru lagðar fram í frumvarpsformi, eru fólgnar. Meginatriðið er eitt, það er tilraun sem lögin heimila að gerð verði. Hún felur í sér afnám á einkarétt Ríkisútvarpsins. Engu að síður er þetta gert í tilraunaskyni. Og hér fylgir ákvæði til bráðabirgða um það, að leyfi skv. þeim skilyrðum sem þarna eru sett, verði veitt ekki til lengri tíma en þriggja ára og að lög þessi skuli endurskoða innan þriggja ára frá setningu þeirra. Þetta út af fyrir sig er jákvætt. Þar með kemur greinilega fram að höfundar frv. viðurkenna að þeir renna að nokkru leyti blint í sjóinn með það hvernig til tekst. Þetta er tilraun. En spurningin er sú: Er þannig um hnútana búið að rétt sé að gera þessa tilraun nú? Þar eru uppi mörg álitamál.

Ég var á sínum tíma hlynntur þeirri meginstefnu útvarpslaganefndarinnar að gera þessa tilraun. En efasemdir mínar í því efni hafa vaxið aðallega af tveimur ástæðum. Sú fyrri lýtur að tæknilegum atriðum. Ég held að þróunin í þessum málum sé jafnvel hraðari en menn gerðu ráð fyrir og við séum um of að miða hér við tilraunastarfsemi sem átt hefur sér stað erlendis á undanförnum árum og við getum nú lagt raunsætt mat á. Það varðar einkum tilraunastarfsemi með mikinn fjölda dreifðra og lítilla útvarpsstöðva. Í annan stað fleygir mjög fram nýrri tækni, bæði að því er varðar lokuð kapalkerfi og möguleika á móttöku gervihnattasjónvarps. Bæði þessi atriði valda því að ég held að margt í tillögum útvarpslaganefndar þarfnist endurskoðunar.

Í öðru lagi má nefna það að þegar litið er á fjölmiðlaheiminn íslenska hafa áhyggjur mínar af uppvakningu nýrra einokunarsinnaðra fjölmiðlarisa á hægri væng íslenskra stjórnmála aukist fremur en hitt. Nægir þar að nefna tilkomu fyrirtækja með þátttöku fjölmiðlarisa eins og Dagblaðs, Morgunblaðs, atfylgi stærsta auðhrings þjóðarinnar eins og sambands ísl. samvinnufélaga og misnotkun meiri hluta þeirra sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur á meirihlutavaldi sínu þar til þátttöku í fyrirtæki þar sem greinilega er að því stefnt að tryggja þessum fjölmiðlarisa gífurlega sterka stöðu á þessum nýja markaði umfram þau tök sem Dagblaðið/Vísir og Morgunblaðið þegar hafa á dagblaðamarkaðnum.

Ég ætla ekki að hafa þessi orð miklu fleiri, herra forseti. Ég held að það þjóni engum tilgangi á þessu stigi málsins að setja á langa ræðu um þessi álitamál. Nægir að segja að ég hef frá upphafi verið þeirrar skoðunar að mjög varlega ætti að fara í þá átt að opna allar gáttir fyrir tekjuöflun sjálfstæðra útvarpsstöðva að því er varðar auglýsingar. Þar eru að vísu settar nokkrar skorður í tillögum útvarpslaganefndar eins og þær liggja fyrir í frv., þar sem segir að sé þráðlausum útsendingum svo háttað að einungis áskrifendur með sérstakan útbúnað nái þeim, þá sé slíkum útvarpsstöðvum óheimilt að birta auglýsingar í dagskrá. Hins vegar er það heimilað skv. 1. mgr. ef um er að ræða þráðlausar útsendingar.

Að því er varðar kapalkerfi til sjónvarps er gert ráð fyrir því að ef engir örðugleikar eru á innheimtu afnotagjalda milliliðalaust hjá viðskiptavinum verði það fjármagnað með slíkum gjöldum fremur en með auglýsingum.

Ástæða er til þess að minna á reynsluna af auglýsingaútvarpi og auglýsingasjónvarpi. Nægir í því efni að minna hv. alþm. á mjög athyglisvert erindi sem Helgi Pétursson fréttamaður flutti í Ríkisútvarpið og birt var í Þjóðviljanum 9. okt. 1982. Þar dró hann saman niðurstöður af reynslu sinni, hafandi verið við nám í fjölmiðlafræðum og fréttaritari Ríkisútvarpsins í Bandaríkjunum, af þeirri fjölmiðlabyltingu sem þar fer hamförum.

Varaði hann sérstaklega við reynslunni af útvarpsstöðvum sem reknar voru með þessum hætti, eftir að öll ákvæði laga um skyldur þeirra um flutning á efni sem hefði eitthvert menningarinnihald eða fræðslugildi voru afnumin.

Ég minni líka á fróðlegt erindi byggt á svipaðri reynslu eftir dr. Björn Matthíasson hagfræðing hjá Seðlabanka og reyndar ýmislegt af því efni sem fram kom í grg. útvarpslaganefndar. Þannig er ég í þessu efni algjörlega andvígur þeim brtt. sem einstakir þm. Sjálfstfl. hafa lagt fram og reyndar einnig þeim till. sem fram hafa komið frá þm. BJ.

Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa þessi orð miklu fleiri. Ég segi að efasemdir mínar um ýmis atriði í þessu frv. hafa vaxið fremur en hitt. Það er af tvennum ástæðum: Vegna tæknilegra breytinga eða þróunar í tæknilegum efnum, sem hefur verið örari en áður, og hins, að kanna ber mjög rækilega hvað við eigum að gera til að tryggja lýðræðislegt hlutverk boðmiðlunar í þjóðfélaginu. Og hvort sú hætta geti raunverulega verið fyrir hendi að ákvæði þessa frv. nægi til þess að hér rísi upp risavaxnir auðhringir á sviði fjölmiðlunar sem renni frekari stoðum undir einokunarveldi hægri aflanna í þjóðfélaginu. — [Fundarhlé.]