05.04.1984
Sameinað þing: 76. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4484 í B-deild Alþingistíðinda. (3814)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

„Reykjavík 4. apríl 1984.

Tómas Árnason, 4. þm. Austurl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sinnt þingstörfum á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varaþm. Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Jón Kristjánsson félagsmálafulltrúi, Egilsstöðum taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Salome Þorkelsdóttir,

forseti efri deildar.“

Jón Kristjánsson hefur áður tekið sæti á þessu þingi. Býð ég hann velkominn til starfa.