05.04.1984
Sameinað þing: 76. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4491 í B-deild Alþingistíðinda. (3823)
Umræður utan dagskrár
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Mér finnst ástæða til þess strax út af orðum forseta áðan, sem voru althörð, — ekki er ég þó að biðjast vægðar, á engan hátt, — að gera örstutta aths. Þegar umr. var frestað síðast og fundi slitið voru það ég best veit ellefu þm. á mælendaskrá. Það hef ég eftir hæstv. forseta sjálfum. Mér sýndist því augljóst, þegar fundur hófst hér að nýju og hver hv. þm. á fætur öðrum féll frá orðinu, hver þróunin hefði orðið frá því að fundi var slitið. Ellefu þm., sem voru á mælendaskrá þegar fundi var slitið síðast, höfðu fallið frá orðinu. Þetta er á engan hátt mælt til hnjóðs hæstv. forseta. Hæstv. forseti sagði mér sjálfur eftir að hann hafði slitið fundi síðast að á mælendaskrá væru ellefu hv. þm. og þegar fundur hófst hér áðan féllu þeir allir frá orðinu eða þá að þeir hafa gert það einhvern tíma í millitíðinni. Ég held að þetta sé augljóst mál. En ég ítreka að á engan hátt var ég að gagnrýna störf hæstv. forseta. Ég hef ekki séð og sé enga ástæðu til þess enn. Ég vil að hæstv. forseta sé það ljóst. En dæmið lítur svona út.