05.04.1984
Sameinað þing: 76. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4505 í B-deild Alþingistíðinda. (3832)

Umræður utan dagskrár

Stefán Guðmundsson:

Herra forseti. Ég sé að það hefur verið ástæðulaus ótti manna að örvænta um að hér yrðu umr. um þetta mál því klukkan er nú farin að ganga fimm, en kl. 14.22 bað ég um orðið og satt að segja hélt ég að ég kæmist fyrr í pontuna en raun ber vitni. Þess vegna er margt búið að segja sem ég ætlaði annars að taka fram. Ég hefði svo sem getað fallið frá orðinu, en mig langaði aðeins til að hnykkja á og undirstrika frekar nokkur atriði sem mér eru ofarlega í huga.

Ég verð að segja að að nokkru leyti eru þessar umr. ekki beint um kvótakerfið. Það er e. t. v. ekki til þeirra stofnað af hv. þm. Karvel Pálmasyni til að ræða beint um kvótakerfið. Það var fyrst og fremst um atvinnumálin sem hann ræddi en atvikin hafa hagað því svo að það er svo til eingöngu rætt um stjórnun fiskveiða. Ég held að þessir klukkutímar, sem hafa farið í að ræða þau mál, fari því ekki alveg til ónýtis. Mér finnst þó að mönnum hafi legið helst til mikið á. Ég held að við hefðum átt að nýta tíma þingsins til annars nú. En menn líta misjöfnum augum á það. Ég held að umr. um fiskveiðistefnuna verði hér á dagskrá þegar álit fiskifræðinganna liggur fyrir. Þá held ég að við hljótum að hefja upp umr. um stjórnun fiskveiðanna. Við erum dálítið á undan tímanum núna að vera að tala um þessi mál. Vissulega undirstrika ég þó að það er alltaf þarft að ræða um jafnmikilsverð mál og fiskveiðar.

Ég vil taka undir það sem hér hefur verið vel sagt um hæstv. sjútvrh. Ég tek undir með þeim þm. sem hafa látið góð orð falla í garð hæstv. sjútvrh. Ég tek heilshugar undir þau, hvernig hann hefur staðið að framkvæmd þessa viðkvæma máls. Hann á vissulega heiður skilið fyrir það og starfsmenn ráðuneytisins. Ég vil að það komi alveg skýrt fram og tek undir þau orð sem voru sögð rétt áðan í þeim efnum. Það er hreint ekki vandalaust verk að ákveða hvernig að þessu skuli staðið. Það er hörmulegt að það jafnvel hlakkar í mönnum ef einhvers staðar hefur farið úrskeiðis, þannig að hægt sé að reyna að telja mönnum trú um að þar sé jafnvel um einhverja valdníðslu að ræða. Og mér er spurn: Hvar er valdaafsal Alþingis til ráðh. í þessum efnum? Hvar er það? Ég kannast ekki við það. Um hvað eru menn að tala? Það kom fram í umr. fyrr að hið slæma atvinnuástand hinna ýmsu byggðarlaga byggðist á því hvað kvótinn væri vitlaus. Þetta segja menn hér, koma upp hver á eftir öðrum og fullyrða að atvinnuástand í byggðalögunum sé slæmt út af því hvað kvótinn sé vitlaus. Vitaskuld er þetta alrangt og það vita þessir menn, en það hljómar vel í eyrum hv. kjósenda þessara manna að kenna kvótanum um og einhverjum pólitískum andstæðingum. Þetta eru ekki vinnubrögð að mínu skapi. Vitaskuld er um að kenna samdrætti í afla og minnkandi sókn. Vitaskuld kemur minnkandi sókn fyrst og fremst niður á þeim plássum sem eiga allt sitt undir því sem úr sjó er dregið. Það er ekki kvótanum um að kenna, heldur þeirri aflaminnkun sem við búum við og við höfum ákveðið að vinna eftir. Það er kjarni málsins.

Nú ég verð að segja að ég hef orðið að sumu leyti fyrir vonbrigðum með hvernig menn hafa brugðist við í sambandi við kvótann. Ég hélt að menn mundu haga sér nokkuð öðruvísi en raun hefur verið á. Ég hélt að menn mundu vanda sig betur. Ég hélt að menn mundu leggja sig fram um að fá sem mest fyrir það sem úr sjó væri dregið. Ég er ekkert hissa á því þó að það verði kannske viss vandkvæði í þeim byggðarlögum þar sem landburður hefur verið af fiski af bátunum, síðan hafa togararnir bæst við og vinnan og álagið hefur verið svo mikið að það hefur þurft að senda togarana burt frá heimaslóðum til að landa í öðrum höfnum. Þetta finnst mér ekki vera skynsamleg stjórnun. Ég hef sagt það hér oftar en einu sinni og oftar en tvisvar úr þessari pontu að ég skil aldrei hvers lags óskaplegt kapp þetta er. Því liggur mönnum svona óskaplega á að drepa þennan fisk? Er hann ekki innan okkar lögsögu? Við eigum 758 þús ferkm. landhelgi. Verðum við ekki að fara að átta okkur á að menn þurfa ekki alltaf að keppast við að drepa þennan fisk á undan einhverjum útlendingum? Eigum við ekki að fara að reyna að skilja það og átta okkur á því? Ég held að kominn sé tími til þess.

Ég vil líka undirstrika enn og aftur að það er ekki við kvótann að sakast í þessum efnum, heldur aflatakmörkin, 220 þús. tonn af þorski. Það er kannske um endurtekningar að ræða, því þetta hefur komið fram hjá þeim hv. þm. Valdimar Indriðasyni og Garðari Sigurðssyni, en hverjir voru það sem mótmæltu þessu kerfi í vetur, þegar við vorum að ræða þessi mál hér í þingsölum og utan þingsala í nefndum þingsins? Þeir voru ekki ófáir fundirnir sem voru haldnir þegar þetta mál var til undirbúnings. Hverjir mótmæltu þessu kerfi? (Gripið fram í: Það voru nú mest stjórnarsinnar.) Sem mótmæltu? Ég sat marga fundi og fékk mörg tilskrif í þessum efnum, eins og eðlilegt var þar sem ég sit í sjútvn., en í mín eyru var það aðeins einn aðili sem mótmælti kvótakerfinu, og hér eru menn inni sem geta vottað það. Fulltrúar Félags ísl. botnvörpuskipaeigenda voru einu aðilarnir sem mótmæltu því að taka upp þetta kerfi. Þeir sögðust viðurkenna að vandinn væri mikill og það væru hugsanlegar aðrar leiðir, en þetta væri þó sú leiðin sem þeir vildu frekast fara. Svo tala menn hér og fordæma þennan kvóta. En eitt eiga þeir allir sameiginlegt sem fordæma hann. Þeir forðast að nefna nokkra aðra leið sem væri hægt að fara. Það hefur enginn gert. (Gripið fram í: Jú.) Nei. (Gripið fram í: Það er rangt.) Og nú koma þessir sömu hér og heimta aukna sókn, nú eigi að auka sóknina. Menn hafa meira að segja rætt það hér að nú eigi bara að hætta við kvótann, nú sé stundin til þess að hætta við kvótann og gefa allt laust, leyfa mönnum að veiða eins og menn vilja það sem eftir er af árinu. Eru menn ekki heldur fljótir á sér enn og aftur? Ég heyri að hv. þm. hristir höfuðið. (Gripið fram í: Heyrirðu það?) Ég heyri það.

Menn hafa verið að tala um að lífsskilyrði í sjónum væru góð þessa stundina, skilyrðin væru afbragðs góð. Er þá ekki full skynsemi í því að leyfa fiskinum að hrygna ef lífsskilyrðin í sjónum eru svona góð? Er ekki full skynsemi í því að leyfa fiskinum að hrygna og taka hann svo? En það var ekki meiningin. Nei, það var ekki meiningin. (Gripið fram í.) Ég held að við ættum að bíða núna vegna þess einmitt hvað lífsskilyrðin eru góð, leyfa fiskinum að hrygna í meira mæli en gert hefur verið. Við höfum alveg örugglega nógan tíma seinni hluta ársins til að ná því aflamarki sem sett verður þó að við förum að með einhverri gát.

En kannske var aðalástæðan fyrir því að ég fór hér upp þau ummæli hv. þm. Árna Johnsen sem hér féllu á þriðjudaginn. Það er vont að hann skuli ekki vera hér. (Gripið fram í: Hann er þarna.) Já, hann er hér. — Í þessum sal hefur það verið tíska að liggja Norðlendingum og Vestfirðingum á hálsi fyrir að þeir hefðu þá iðju helsta í sjávarútvegsmálum að drepa smáfisk. Menn hafa barið sér á brjóst og fullyrt að þetta væri aðaliðja þessara manna. Ég endurtek að það eru þá fyrst og fremst Norðlendingar og Vestfirðingar sem talað hefur verið um, oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Þetta hefur verið fullyrt hér án alls rökstuðnings. Menn hafa gjarnan gleymt því að hvergi er meiri friðun en einmitt fyrir Norðurlandi. Þar eru heilu hafsvæðin friðuð. Hvergi hefur skyndilokunum veiðisvæða verið frekar beitt en einmitt á þessum hafsvæðum og það hefur gefist vel. Og ég tek undir að það er jákvæð aðgerð. En hér kom Árni Johnsen og sagði, og endurtók það áðan og það hryggir mig, að það væru dæmi um að 40% af afla netabáta væri hent fyrir borð. Sjútvrh. er á mælendaskrá. Ég sá að hann barði í borðið þegar hv. þm. endurtók þessi ummæli sín. Það er ástæða til að spyrja hæstv. sjútvrh.: Veit sjútvrn. um slíka rányrkju? Þetta er hrein villimennska, ef þetta á sér stað, og þetta verður að stöðva. Það var fyrst og fremst þetta atriði sem hvatti mig til að fara hingað upp.