06.04.1984
Neðri deild: 71. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4519 í B-deild Alþingistíðinda. (3850)
269. mál, erfðafjárskattur
Félmrh. (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Út af þessari aths. tel ég rétt að upplýsa að þetta mál heyrir undir félmrn. og hefur gert frá fyrstu tíð og þar af leiðandi heyrir þetta undir félmn. Ég óska þess að ekki verði farið að breyta þeirri venju sem er skv. gildandi lögum. Frv. er samið af félmrn. og lagt fram í nafni þess.