06.04.1984
Neðri deild: 71. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4526 í B-deild Alþingistíðinda. (3863)

222. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Ég vil hefja mál mitt með því að segja að mér finnst óhjákvæmilegt að 1. umr. þessa máls verði ekki lokið núna þar eð fundur í hv. deild er haldinn við mjög óvenjulegar aðstæður og fjöldi þm. hefur boðað lögmæt forföll, þm. sem gjarnan vilja taka þátt í umr. um þetta mál þegar við 1. umr.

Ég vil byrja á því að fagna þeirri yfirlýsingu sem kom fram hjá hæstv. sjútvrh. er hann skýrði frá nefndarskipan sinni og því starfi sem sú nefnd á að vinna varðandi endurskoðun lífeyrisréttinda sjómanna. Að sjálfsögðu gerir hæstv. sjútvrh. þetta ekki að óhugsuðu máli. Honum verður sjálfsagt hugsað til þess að það eru innan við tvær vikur síðan ég fjallaði um það á fundi á Alþingi að nauðsynlegt væri að leysa það mál samfara þessu máli sem við erum að ræða núna, lögum um Aflatryggingasjóð, ekki síst vegna þess að með lausn á lífeyrismáli sjómanna er verið að leita lausnar á samningi sem gerður var við sjómannastéttina í tíð fyrri ríkisstj., sem hæstv. sjútvrh. studdi, en var svikinn þrátt fyrir að íslensk sjómannastétt hafi borgað fullu verði fyrir þetta loforð sem þeir fengu þá varðandi lífeyrissjóðsfríðindin.

Það er þetta sem núv. hæstv. ríkisstj. stendur frammi fyrir, það er spurningin: Á hún að efna loforð þeirra sem gáfu þessi fyrirheit á sínum tíma og tóku greiðslu fyrir eða á að hleypa þessu tækifæri fram hjá sér, að nota þetta mál til þess að leysa þennan vanda og þann mesta vanda sem við stöndum frammi fyrir í dag, sem eru samningamál fiskimanna þjóðarinnar? Ef hæstv. ríkisstj. ekki gerir það segi ég: Guð hjálpi henni. Því að þeir hafa tækifæri enn þá til þess að ráða fram úr þessari óréttlátu niðurstöðu sem hefur verið látin gilda fram að þessu og að leiðrétta það í sambandi við það mál sem við erum að ræða núna.

Það er alveg út í hött að tala um að þessar tillögur, þetta bráðabirgðaákvæði sem við erum að ræða, um breytingu á lögum um Aflatryggingasjóð, varði ekki sjómenn. Aflatryggingasjóður verður til vegna þess að tekið er af óskiptum hlut sjómanna sem kemur á skip til þess að byggja upp Aflatryggingasjóð. Eins og kannske hv. þm. er kunnugt segir í 3. gr. gildandi laga um Aflatryggingasjóð, með leyfi forseta:

„Hlutverk almennu deildar sjóðsins er að bæta aflahluti skips og áhafnar þegar almennan aflabrest ber að höndum eða þegar brýna nauðsyn ber til að draga úr sókn til verndar mikilvægum nytjastofnum.“

Þarna er verið að ræða um almennu deildina sem bráðabirgðaákvæði gilda um. Þessi 3. gr. laganna segir að þau eigi bæði að bæta aflahlut skips og áhafnar. En við ákvörðun fiskverðs í febr. er tekin ákvörðun um það — ekki af sjómönnum heldur af fiskkaupendum og útgerðarmönnum — að rifta þessu lagaákvæði, því hafi verið lofað, líklega í ríkisstj. Ég lofaði því aldrei í mínum þingflokki, þingflokki Sjálfstfl., enda ekki undir mig borið. Því er ég á móti þessu. Því er lofað að flytja lagafrv. um breytingu á efnisinnihaldi þessarar greinar í þá veru að alfarið verði flutt ákveðin prósenta yfir á fiskverðið til útgerðarmanna fram hjá hlutaskiptum. Það er mín skoðun á þessu máli að það jaðri við siðleysi að fara þessa leið, hafandi það í huga að við stjórn landsins í dag eru m. a. þeir menn sem sviku á sínum tíma það loforð og það fyrirheit sem þeir gáfu sjómannastéttinni 1978 og tóku greiðslu fyrir. Mun ég koma síðar að því, annaðhvort við þessa umr. eða þá næstu.

Ég get ekki látið hjá líða að benda hv. þingdeild á þær fjórar höfuðröksemdir sem hæstv. sjútvrh. hafði fyrir því að gera þurfti þær ráðstafanir í sjávarútvegi sem gerðar voru á s. l. vetri. Hann nefndi fyrstu höfuðástæðuna fyrst, þ. e. aflabrestinn. Ekki eru nema hjáróma raddir innan sjómannasamtakanna t. d. sem hafa haft á móti því að ráðstafanir væru gerðar til þess að mæta aflabrestinum. Að vísu var afskaplega lítið um frjálsa skoðanamyndun í þeirri ákvörðun. Ég veit t. d. að stjórn stærsta sjómannafélags landsins fékk aldrei að fylgjast neitt með hvað þar var að ske. Það voru aðeins einn, tveir eða þrír einstaklingar úr röðum sjómanna sem kallaðir voru til ráða hjá hæstv. ráðh. til þess að taka ákvörðun um þetta mál og móta till. sem var svo dembt yfir alla sjómannastéttina og menn urðu að taka við vegna þess að þeir skildu og vissu að þörf var á því að gera einhverjar ráðstafanir.

Auk þessarar fyrstu og mikilvægustu ástæðu nefndi hæstv. ráðh. þrjár aðrar þýðingarmiklar ástæður. Það er olíuhækkun á síðasta áratug, en allir vita að olíuverð fór lækkandi þegar þessar ráðstafanir voru gerðar, ekki síst hjá skipi sem gat keypt olíu í erlendri höfn. En það var meira að segja bætt við það sem tekið var af sjómönnum til þess að standa undir svokallaðri olíuverðshækkun eða einhverju öðru.

Þá nefndi hæstv. ráðh. að vextir og fjármagnskostnaður hefðu hækkað alls staðar í heiminum. Mesta skrautfjöður hæstv. ríkisstj. er hvað þetta hefur lækkað. Fjórða meginatriðið væri að verðbólga hefði líka hækkað alls staðar í heiminum. Það er önnur stóra skrautfjöður hæstv. ríkisstj. að verðbólgan hefur réttilega, eins og þeir segja, farið langt niður.

Það eru sem sagt þrjár af fjórum meginástæðum, sem eru taldar fyrir þessum aðgerðum, sem ekki standast lengur. Ég held að hæstv. ríkisstj. ætti að hafa þrek til þess að gera það sem hæstv. fjmrh. hefur gert þegar hann bendir sínum fyrri og núverandi félögum og starfsbræðrum á að honum þyki nokkuð seint ganga með verðlækkanir á vörur sem þeir selja. Hæstv. sjútvrh. ætti að segja við útgerðarmenn: Nú er nóg komið. Þið fáið að hafa þetta til 1. júní þangað til nýtt fiskverð verður ákveðið. Þangað til fáið þið að njóta þessara kjara, en þá skulum við breyta þessu og koma til móts við íslenska fiskimenn. — Kominn er tími til að efna það loforð sem ég m. a., í minni tíð sem stuðningsmaður fyrrv. ríkisstj. 1978 og fram úr, lofaði þeim og nota Aflatryggingasjóð til þess að ná fram þessu þýðingarmikla máli, sem hæstv. ráðh. vissulega benti réttilega á í sinni ræðu áðan en hafði ekki of mörg orð um.

En til þess að skýra þetta nokkuð betur held ég að rétt sé að fara aðeins aftur að þessum tíma sem ég hef verið að minnast á, ársins 1978. Það er alls ekki nóg að fara aftur að þeim ráðstöfunum sem unnið var að í vetur og má segja að hafi náð hámarki sínu við ákvörðun fiskverðs í febr. og með þeim ráðstöfunum sem gerðar voru í sambandi við kvótakerfið o. fl. Það sem um er að ræða er það að 1978 eru ýmsar ráðstafanir gerðar til að draga úr verðbólgu. Í stað verðbótahækkana á laun var ákveðið að félagsleg réttindi verkafólks skyldu aukin. Hinn 1. des. 1978 áttu laun að hækka um 14.13% en þá var ákveðið með lögum að laun skyldu hækka um 6.12%, 3% skyldi mætt með auknum félagslegum réttindum, 2% með skattalækkun og 3.01% með niðurgreiðslum á vöruverði.

Það var upp úr þessum ákvörðunum sem sjómannasamtökin fóru að þinga. Þá kom fram sem krafa frá þeim að sem hlutdeild þeirra í þessum félagsmálapakka yrðu m. a. aukin lífeyrisréttindi sem væru fyrst og fremst fólgin í því að hægt væri að hefja lífeyrisgreiðslur frá 60 ára aldri. Segja má að hluti af þessu loforði, sem þá var gefið varðandi félagsmálapakka sjómanna, hafi verið efnt 1979 þegar réttindi landverkafólks til launa í veikinda- og slysatilfellum voru aukin og staðfest með lögum. Þessi breyting kom þó ekki eins við sjómenn vegna þess að þeir höfðu önnur réttindaákvæði í sínum samningum, en fengu hins vegar nokkuð annað á móti sem ég skal koma að við seinni umr. þegar ég verð meðflm. að brtt. við þetta frv.

Í tíð fyrrv. ríkisstj. var flutt frv. þess efnis að þessi leið skyldi farin sem sjómannasamtökin höfðu farið fram á og þeim hafði verið heitið. Við upphaf kjarasamninga Sjómannasambands og útgerðarmanna og Farmanna- og fiskimannasambands 1980 var gerð grein fyrir stöðu þessara mála. Þeir lögðu fram kröfu um að ríkissjóður ábyrgðist þessa útgjaldaaukningu. Aldrei kom neitun við þessari formlegu kröfu vegna þess að ríkissjóður vildi ekki styggja þá sem að þeim stóðu og studdu best í þá tíð eins og nú. Þeir vildu ekki styggja útgerðarmenn og þess vegna var aldrei gengið frá þessu máli, það voru lausir endar. En að sjálfsögðu bar að leysa þetta mál með setningu laga, enda segja útgerðarmenn í dag að þetta sé samningamál og þeir eru ekki til viðræðu um að láta taka neitt frá sér. Hins vegar verða þeir alltaf tilbúnir með opinn faðm ef tekið er frá sjómönnum og flutt til þeirra, það er skiljanlegt. En það mun ekki ganga lengur.

Breyting á þessum lögum um lífeyrissjóð sjómanna var samþykkt á Alþingi á árinu 1981. Þar komu við sögu núv. ráðamenn Alþb. og m. a. núv. hæstv. sjútvrh. Halldór Ásgrímsson sem hafði framsögu fyrir áliti fjh.og viðskn. Nd. Þá voru allir einróma með samþykkt frv. sem hefur þó það í för með sér, ef ekkert annað verður að gert, að þessi sjóður, einn af stærstu lífeyrissjóðum landsins, verður orðinn gjaldþrota eftir 10–15 ár og væri líklega orðinn það fyrir löngu ef ekki hefði tekist að mylgra nokkrum milljónatugum í hann af gengishagnaði í gegnum gengislækkanir síðustu ára. Engan þarf því að undra þótt hæstv. sjútvrh., sem er maður mjög vel viti borinn, sjái nú að svona getur ekki gengið lengur eins og komið er fyrir þessum sjóði eða stöðu sjómanna í launakerfi landsins.

Eins og ég hef áður minnst á úr þessum sama ræðustól er ekki hægt að meta kjör launafólks til lengdar eftir krónutölum sem fólk fær upp úr launaumslaginu nema þegar svo stendur á að verið er að bjarga þeim sem verst eru settir frá því sem okkar launakerfi hefur að undanförnu orðið að taka á sig vegna skerðinganna af þeim aðgerðum sem verið er að gera. Meðan svo stendur á má bera saman og vitna til krónutölu sem kemur upp úr umslaginu en til lengdar er það ekki hægt vegna þess að hafa verður hliðsjón af því hverju viðkomandi persóna fórnar í vinnu og öðru sem til starfsins þarf. Hvað þarf hún að vinna lengi? Hve marga tíma sólarhrings? Það er ekki sama hvort maður vinnur 7 tíma á sólarhring eða 18 tíma. Það er ekki sama hvort maður kemur heim tvisvar á dag eftir 7 tíma eða hvort hann kemur heim á 10–12 daga fresti til sinnar fjölskyldu. Þetta er svo gjörólíkur samanburður að það getur enginn heilvita maður, hvort sem hann er launþegi eða atvinnurekandi, borið þetta saman. Það er m. a. þess vegna sem sjómannastéttin hefur notið nokkurrar sérstöðu hjá löggjafanum í sambandi við mjög óveruleg skattfríðindi sem þessi stétt hefur. Reyndar má segja að velvilji Alþingis hafi oft og tíðum komið fram í sambandi við lagasetningu, sbr. þetta sem ég hef vitnað hér til um lífeyrissjóð sjómanna. En það bara fylgir sá böggull skammrifi að þeir sem vit höfðu á þögðu yfir meginmálinu sem var að það vantaði fjármagn til þess að standa undir þessum sama velvilja.

Ég tók eftir því og hjó í það að hæstv. ráðh. vitnaði til ráðgjafarnefndar sem hann hefur skipað eða fengið ráð frá. Ég veit ekki hvernig hún hefur orðið til. En hann vitnaði í hana og nauðsyn á því að út í aðgerðir væri farið. Þetta mál, sem við erum hér að ræða um, er einn angi þeirra aðgerða. Ég hef í höndum mér umr. frá hv. Ed. þar sem skýrt var frá viðbrögðum sjómanna í Fiskifélaginu, þegar þetta frv. var kynnt fyrir þeim, en þar var þetta mál tekið fyrir, breytingarnar á lögum um Aflatryggingasjóð og þar eiga sæti fulltrúar allra aðila sem þetta mál varðar, bæði þiggjendur og veitendur. Með leyfi forseta les ég útdrátt úr fundargerð sem hljóðar svo:

„Fiskimálastjóri gerði ítarlega grein fyrir frv. og lagði hann fram álit ráðgjafarnefndar um sjávarútvegsmálafrv. Að lokinni framsögu sagði fiskimálastjóri að hann og framkvæmdastjóri Aflatryggingasjóðs, Þórarinn Árnason, væru boðaðir á fund sjútvn. Alþingis í fyrramálið kl. 9 og bað um persónulegt álit viðstaddra á fundinum svo að hann gæti haft það sem veganesti á fundinn.

Guðjón Kristjánsson sagðist alfarið á móti því að færa meira fjármagn til útgerðar utan skipta, ræddi og 2. gr. frv. og sagði lítið sem ekkert fjármagn eftir til að greiða úr fjárhagsörðugleikum sjómanna þegar fæðið hefði verið gert upp. Ef þetta frv. verður samþykkt kann það að leiða til ófriðar“, sagði forseti Farmanna- og fiskimannasambandsins.

„Kristján Ásgeirsson sagðist alfarið sammála Guðjóni: Nóg er tekið utan skipta af sjómönnum.“ Hilmar Bjarnason: Sammála að mæla gegn frv., nóg væri tekið utan skipta.

Ingólfur Arnarson: Ég er í höfuðatriðum sammála fyrri ræðumönnum. Ég óttast að verði frv. samþykkt, þá hefði verið stigið fyrsta skrefið að því að leggja almennu deildina niður til frambúðar.

Marteinn Jónasson: Hvað er það sem knýr á um breytingu á sjóðnum? Ég er þessu andvígur.

Ríkarður Jónsson: Ef þetta frv. verður samþykkt mun það ganga af hlutaskiptareglunni dauðri. Alfarið andvígur breytingu.

Ingólfur Stefánsson sagðist vera andvígur að breytingin yrði gerð á lögunum.

Jón Páll Halldórsson lýsti aðspurður andstöðu sinni við þessar breytingar.

Hilmar Rósmundsson og Gunnlaugur Karlsson tjáðu sig ekki og Þorsteinn Jóhannesson var eigi mættur á fundinum.“

Þá hafa menn það. Þá hafa menn heyrt hver skoðun þeirra í Fiskifélagi Íslands er á frv. Það er nákvæmlega sama skoðunin sem ég hef á málinu. En ég held að það sé enn þá tækifæri fyrir hæstv. ríkisstj. að bjarga sér út úr þessu vandamáli og slá tvær flugur í einu höggi og leysa þetta gífurlega vandamál, sem er lífeyrissjóðamál sjómanna, og við eigum að gera þá breytingu á frv. nú í meðferð hv. Nd. Við eigum að gera þá breytingu á frv. að lögin gildi ekki nema til 1. júní þegar ákveða á nýtt fiskverð, m. a. með tilvitnan til þess sem ég hef sagt um þrjú af fjórum meginatriðum sem hæstv. ráðh. hefur talið upp sem ástæðu til þess að út í þessar aðgerðir verður farið. Það hefur stórkostlega lækkað allur fjármagnskostnaður hjá útgerðinni. Olíuverð hefur ekki hækkað á síðustu misserum til útgerðarinnar og lánsfé hefur lækkað, verðbólgan stórum minnkað. Það á að taka tillit til þessa. Og ég segi: Við höfum orðið að taka upp miklar takmarkanir í sambandi við veiðarnar, m. a. til að spara í útgerðinni, og við vitum að fjöldi skipa hefur nú þegar aflað upp í sinn kvóta. Ekki þurfa þeir útgerðarmenn að standa í miklum útgjöldum það sem eftir er ársins, 8–9 mánuði. Þeir eru búnir að ná í sinn kvóta. Þeir geta bundið skipin við bryggju og sagt áhöfninni upp, eins og reyndar var að stefnt með öllum þessum aðgerðum. Það var að því stefnt að útgerðin kæmist út úr prísundinni á ódýrari hátt en ella, en það gleymdist bara að til þess að útgerð gæti gengið þarf sjómenn á skipin. Það þarf enn þá þessa þræla til að vinna þar um borð og ná í aflann og flytja hann að landi.

Ég held að við ættum að gera þá breytingu að láta lögin gilda til 1. júní og segja síðan: Við munum nota þann hlut sem var tekinn fyrri hluta ársins og færður alfarið yfir til útgerðarmanna, við skulum taka hann og ekki flytja hann bara yfir til sjómanna, við skulum taka hann og skipta honum eftir þeim reglum sem farið er eftir við skiptingu í lífeyrissjóði sjómanna, 60/40, og við skulum ráða fram úr þessu stóra tryggingavandamáli sjómanna í eitt skipti fyrir öll. Við eigum ekki að binda það við þau „skip“ sem eru undir 500 tonnum. Það er óréttlátt. Það á að ná yfir allan fiskiflotann, líka yfir stærri skipin. Þá mundi að mínu mati reisn þessarar ríkisstj. vera meiri en hún er í dag.

Ég skal ekki hafa miklu fleiri orð um þetta, herra forseti, við þessa umr. Ég endurtek orð mín um að ég tel nauðsynlegt að þeir þm. sem hafa löglega boðað forföll og hafa áhuga á þessu máli og hagsmuna að gæta fyrir sína umbjóðendur fái tækifæri til að ræða málin strax við 1. umr. En enn frekar vil ég benda á að afgreiðsla þessa máls hér á Alþingi á þessu vori getur skipt sköpum um þær ráðstafanir sem hæstv. ríkisstj. undir forustu hæstv. sjútvrh. hefur gert í sambandi við að leysa þetta vandamál, sem öll þjóðin hefur staðið frammi fyrir, sem er minnkandi afli, a. m. k. á þorski. Enginn óvitlaus maður tekur ekki undir varnaðarorð sem bæði hann og aðrir hafa rökstutt og reynir ekki að standa við þær aðgerðir og sjá til að þær haldist. En það gerist ekki nema það sé komið vel fram við þá sem hafa manna best skilið ástandið, hafa langt fram yfir alla aðra orðið að taka á sig launalegar og kjaralegar skerðingar vegna hins bága ástands. Allir aðrir nutu góðs af þegar vel gekk. Ef það verður ekki komið á móti sjálfsögðum hagsmunum þeirra og réttlætiskröfum segi ég að það er illa farið og það verður þá illa farið með allt það sem sáð hefur verið til þess að uppskera yrði góð þegar hagur okkar vænkast að nýju á miðum landsins.