06.04.1984
Neðri deild: 71. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4532 í B-deild Alþingistíðinda. (3866)
222. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins
Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég vil taka það fram að gert hefur verið ráð fyrir að 1. umr. um þetta mál yrði lokið hér í dag og ég hef eindregið óskað eftir því. Þetta mál er búið að liggja fyrir þinginu um alllangan tíma og hér hafa mál komist sum hver lítt áfram og til þess er verið að boða fund í dag, hef ég skilið, að reyna að greiða fyrir því. Ég vil ítreka þá ósk að 1. umr. ljúki í dag. Það geta allir þeir þm. sem ekki eru hér tjáð skoðanir sínar þegar málið kemur til 2. og 3. umr. Og satt best að segja skil ég ekki þá röksemdafærslu að þingstörf geti ekki gengið fram með venjulegum hætti þótt nokkrir þm. séu fjarstaddir. Það sé móðgun við sjómenn á að sjálfsögðu ekki heima hér. Aðalatriðið er að hér geti farið fram eðlileg skoðanaskipti. Þeir sem ekki geta tjáð sig um málið hér nú hljóta að geta það við 2. umr. og jafnvel geta þeir sem tjá sig í dag tjáð sig aftur og síðan enn aftur við 3. umr., sem er ekki óvenjulegt. En ég vil eindregið ítreka þá ósk að 1. umr. ljúki um þetta mál í dag.