10.04.1984
Sameinað þing: 79. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4600 í B-deild Alþingistíðinda. (3971)
229. mál, þróunarverkefni á Vestfjörðum
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Við þrír Vestfjarðaþm., 3., 4. og 5. þm. Vestf., flytjum þessa till. til þál. um þróunarverkefni á Vestfjörðum sem hér er til umr. 1. flm. er Sighvatur Björgvinsson sem sat fyrr í vetur á þingi sem 3. þm. Vestf. Með því að Sighvatur Björgvinsson situr nú ekki á þingi hefur það fallið í minn hlut að mæla fyrir till. þessari.
Till. þessi gerir ráð fyrir að Framkvæmdastofnun ríkisins sé falið að semja álitsgerð um framkvæmd þróunarverkefna í atvinnumálum á Vestfjörðum í því skyni að hraða nýsköpun í atvinnulífi, örva framtak einstaklinga og félaga, efla vöxt byggðakjarna og auka fjölbreytni í atvinnustarfsemi. Gert er ráð fyrir að í álitsgerð komi fram, auk ábendinga um æskileg verkefni, hugmyndir um hvernig að framkvæmdum skuli staðið, þar á meðal um hvaða sértækum aðgerðum skuli beita af hálfu sveitarstjórna og ríkisins til þess að greiða fyrir framgangi atvinnuþróunarverkefna sem líkleg væru til að treysta grundvöll atvinnulífsins og búsetu fólks á svæðinu, eins og það er orðað í till.
Þegar meta skal hvað brýnast er af verkefnum sem kalla á í málefnum Vestfjarða er margs að gæta. Það verður að líta á ástandið í dag og ekki síður þá byggðaþróun sem orðið hefur á Vestfjörðum síðustu áratugina og raunar á þessari öld. Á mesta framfaraskeiði þjóðarinnar hafa mikil umskipti orðið á Vestfjörðum. Framfarir og uppbygging hafa átt sér stað í atvinnu-, félags- og menningarmálum og framlag Vestfirðinga til hagsældar og velmegunar þjóðarinnar ekki verið minna en annarra landsmanna, nema síður sé. Á Vestfjörðum hefur þróast það mannlíf sem nútíminn býður upp á.
En samt sem áður hafa Vestfirðingar sérstöðu gagnvart öllum öðrum kjördæmum. Hin mikla fólksfjölgun landsmanna á þessari öld hefur skipst misjafnt milli landssvæða núverandi kjördæma. Hlutfallið af heildaríbúatölunni hefur sums staðar aukist, en annars staðar minnkað. En einungis á Vestfjörðum hefur bæði verið um að ræða hlutfallslega og tölulega fækkun íbúa. Þetta vita Vestfirðingar, en það eru ekki allir sem gera sér þetta ljóst.
Þegar við ræðum eflingu byggðar á Vestfjörðum verður ekki gengið fram hjá þessari staðreynd og raunar verðum við að byggja umr. á þessari staðreynd. Sækja verður ýmis framfaramál Vestfjarða í greipar ríkisvaldsins með þeim rökum að það þurfi að gera meira fyrir þennan landshluta en aðra. Hér liggur til grundvallar sú hugsun byggðastefnu eða aðgerða til jafnvægis í byggð landsins að ríkisvaldinu beri að styrkja sérstaklega þau byggðarlög sem höllum fæti standa og í vök eiga að verjast. Í þessu efni hafa Vestfirðir algera sérstöðu vegna fólksfækkunar.
Þessi sérstaða var viðurkennd af ríkisvaldinu þegar Vestfjarðaáætluninni var hleypt af stokkunum og öllu fjármagninu sem kom frá Viðreisnarsjóði Evrópuráðsins var veitt til Vestfjarða. En síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Tilhneigingin til þess að láta aðgerðir og fjármagn sem upphaflega var ætlað til að efla jafnvægi í byggð landsins ná til allra jafnt hefur tröllriðið byggðastefnunni. Byggðaáætlanir vilja menn nú gera alls staðar. Hvarvetna skal efla byggðina. Það gildir einu hvort um er að ræða byggðarlög þar sem ofvöxtur hefur raskað jafnvægi í byggð landsins eða byggðarlög sem orðið hafa fyrir barðinu á þessari þróun í formi fólksfækkunar. Þegar svo er komið ná ekki tilgangi sínum aðgerðir sem upphaflega voru ætlaðar til jafnvægis í byggð landsins. Í stað þess að jafna aðstöðumun verða framlög í nafni byggðastefnu aðeins viðbót við það fjármagn sem almennar lánastofnanir veita til framfara og uppbyggingar um land allt.
Engir þurfa frekar að standa á verði gagnvart þessari þróun en Vestfirðingar. Efling byggðar og mannlífs á Vestfjörðum er ekki síst undir því komin að sýndur sé í verki vilji til að stuðla að jafnvægi í byggð landsins.
Þegar efla á byggð í einum landshluta þurfa að koma til alhliða ráðstafanir. Þar sem unnið er skipulega og markvisst að slíkum verkefnum er lögð áhersla á að ekki nægi að taka einstök atriði fyrir, heldur alla meginþættina sem móta mannlíf þess landssvæðis sem um er að ræða. Þannig hefur t. d. Viðreisnarsjóður Evrópuráðsins viljað haga vinnubrögðum við þau byggðaverkefni sem hann lánar til. Þetta eðli viðfangsefnisins verða menn að hafa í huga þegar meta skal hvað sé brýnast að gera til að efla byggð á Vestfjörðum.
Hér er um margþætt og margslungið viðfangsefni að ræða. Í atvinnulegu tilliti hlýtur sjávarútvegurinn að vera megingrundvöllur mannlífs á Vestfjörðum í framtíðinni sem hingað til. Þessi landshluti er að sjálfsögðu háður almennum rekstrarskilyrðum og markaðsástandi þess atvinnuvegar eins og aðrir landshlutar. En Vestfirðingar hafa sérstöðu í þessum efnum. Enginn landshluti byggir svo á fiskveiðum og fiskvinnslu sem Vestfirðir. Þess vegna varðar miklu að tekið sé tillit til þessarar staðreyndar við framkvæmd fiskveiði- og fiskverndarstefnu okkar Íslendinga. Ekki má skerða hlut Vestfjarða fram yfir aðra landshluta í þessu efni. Þetta er þeim mun sjálfsagðara sem þjóðhagslega hlýtur að vera hagkvæmast að Vestfirðingar sjálfir hagnýti sem mest hin fengsælu fiskimið á heimaslóðum. Hlutur Vestfirðinga í fiskveiðum og fiskvinnslu má undir engum kringumstæðum minnka frá því sem mest hefur verið, heldur þarf þvert á móti að stefna að auknum hlut Vestfjarða í þessu efni sem er svo mikilvægt fyrir alla byggðaþróun þar.
Þróun síðustu ára sýnir hvað hér er um mikilvægt mál að ræða fyrir alla byggðaþróun á Vestfjörðum. Á áttunda áratugnum var um að ræða mikla uppbyggingu á Vestfjörðum í fiskveiðum og fiskvinnslu. Segja má að grundvöllurinn að þessu hafi verið tilkoma skuttogaranna sem bætti svo mjög aðstöðu Vestfirðinga til að nýta sér nábýtið við auðugustu fiskimið landsins. Enginn vafi er á að þetta leiddi til þess að stórlega dró úr fólksflutningum frá Vestfjörðum á áttunda áratugnum og þéttbýli efldist þar. Þær breytingar héldust í hendur við mikil umskipti í tekjumöguleikum fólks á Vestfjörðum miðað við landsmeðaltal. Í upphafi áttunda áratugarins, þegar enn var mikill fólksflótti frá Vestfjörðum, voru meðalbrúttótekjur framteljenda þar nokkuð undir landsmeðaltali. Við lok þess áratugar, þegar fólksflóttinn hafði minnkað, höfðu meðaltekjur á Vestfjörðum vaxið meira hlutfallslega en í nokkrum öðrum landshluta og voru komnar talsvert yfir landsmeðaltal.
Um og eftir 1980 fer svo að verulegu marki að gæta afleiðinga af aukinni fiskveiðistjórn og auknum takmörkunum á þorskveiðum. Þá fer bæði magnhlutdeild og verðmætishlutdeild Vestfirðinga í heildarframleiðslu hraðfrystiiðnaðarins að hraka. Árið 1978 nam hlutur Vestfirðinga í heildarframleiðslu hraðfrystihúsa 22.8%, en hafði verið 17.4% 1972. En árið 1982 er þetta hlutfall komið svo niður í 19.5%. Ef með hliðstæðum hætti er litið á framleiðsluverðmæti hraðfrystihúsanna vex hlutur Vestfirðinga úr 18.4% 1972 í 24.4% 1977 og 1978, en er árið 1982 fallið niður í 21.4%. Þennan samdrátt má án efa rekja beint til aukinna veiðitakmarkana sem fylgt hafa í kjölfarið á stækkandi fiskveiðiflota landsmanna. Auðvitað hefur þetta haft sín áhrif á atvinnutekjur þeirra sem fiskvinnslu stunda. Þegar þetta er haft í huga má ljóst vera hvílíkur voði er nú fram undan fyrir þennan landshluta þegar fram koma afleiðingar af hinni nýju fiskveiðistjórn sem tekin hefur verið upp nú með kvótafyrirkomulaginu.
Með því að beita takmörkunum á veiðum skv. kvótaskipulaginu jafnt um allt land, burtséð frá því hvað fiskveiðar og fiskvinnsla eru mikill hluti af atvinnulífi hvers staðar, er sérstaklega vegið að þeim byggðarlögum sem eiga allt undir þessari atvinnugrein. Gefur auga leið að slíkar reglur eru bein fjörráð við landshluta eins og Vestfirði og geta haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir alla byggðaþróun þar. Það er því grundvallaratriði fyrir alla byggðaþróun á Vestfjörðum að fá leiðréttingu þessara mála.
Þó að staðið hafi verið vel að uppbyggingu fiskveiða og fiskiðnaðar á Vestfjörðum hefur ekki fylgt þessu sú aukning í þjónustuiðnaði sem eðlileg má kalla. Aukning frumframleiðslu í fiskveiðum og fiskvinnslu hefur ekki leitt til samsvarandi aukningar í þjónustuiðnaði á Vestfjörðum sjálfum. Þjónustuumsvifin hafa ekki skapast í heimabyggðinni, heldur í fjarlægum byggðarlögum, t. d. á höfuðborgarsvæðinu. Hin mikla uppbygging í fiskiðnaði með stórauknum atvinnutekjum hefur m. ö. o. ekki orðið Vestfirðingum nema að takmörkuðu liði í annarri atvinnuuppbyggingu. Hin óbeinu áhrif hafa komið fram annars staðar og orðið öðrum að gagni. Hér þarf að verða breyting á, jafnframt því að alhliða aðgerðir þurfa til að koma til að auka fjölbreytni atvinnulífsins.
Þegar rætt er um atvinnumál á Vestfjörðum og það sem einkum er ábótavant í þeim efnum verður ekki komist hjá að minnast á einhæfni atvinnulífsins. Þá er spurningin hvernig bætt verður úr í þeim efnum. Kemur þar að sjálfsögðu margt til greina, en sérstaklega skal staðnæmst við iðnaðinn. Þjónustuiðnaðinn á Vestfjörðum þarf að byggja upp með svipuðum hætti og annars staðar á landinu. Vel búin verkstæði þurfa að vera fyrir hendi til að sinna hvers konar þjónustuverkefnum. Sérstakt verkefni í landshluta sem byggir fyrst og fremst á sjávarútvegi eru skipasmíðar og skipaviðgerðir og það hlýtur að vera eitt af höfuðviðfangsefnum einmitt nú að sjá svo um að þessi iðnaður skipi þann sess sem honum ber og nauðsynlegt er á Vestfjörðum.
Til eflingar iðnaðar á Vestfjörðum þarf að koma meira til en hinn beini þjónustuiðnaður. Á Vestfjörðum þurfa menn að hasla sér völl í sjálfum framleiðsluiðnaðinum. Í þeim efnum eru Vestfirðir langt á eftir öðrum sambærilegum landshlutum. Hef ég þá í huga ýmsan léttiðnað og smáiðnað. Ég ætla ekki að fara að telja hér upp einstakar greinar slíks framleiðsluiðnaðar, sem kemur til álita, en þó vil ég nefna einn iðnað sem frá mínu sjónarmiði er kjörinn til þess að Vestfirðingar beiti sér við. Þeim mun fremur ætti að huga að þessu þar sem þessi iðnaður er á þeim vettvangi sem verður svo ráðandi í tæknivæddu atvinnulífi, bæði næstu framtíðar og um ófyrirsjáanlega framtíð. Hér á ég við rafeindaiðnaðinn. Í þessu efni er hvetjandi fyrir Vestfirðinga það mikla framtak og hugvit sem þegar er fyrir hendi í þessu efni þar sem er fyrirtækið póllinn á Ísafirði.
Það fer vart milli mála að hagstætt er fyrir þjóðarheildina að nýttar verði þær auðlindir sem Vestfirðir hafa yfir að búa. Þar kemur fleira til en nábýli við miðin og sú sérþekking og hæfni sem vestfirskir sjómenn og fiskiðnaðarmenn hafa tileinkað sér í útgerð skipa og vinnslu afla. Jarðhiti er víða á Vestfjörðum og liggur sums staðar mjög vel við. Fiskiræktarmöguleikar eru miklir. Í hinum djúpu fjörðum í Ísafjarðardjúpi, í Þorskafirði og fleiri fjörðum eru möguleikar til jafnvel stærri og meiri framkvæmda við fiskirækt en víða annars staðar á Íslandi. Bent hefur verið á aðrar lítt kannaðar náttúruauðlindir, svo sem surtarbrand sem víða er að finna á Vestfjörðum, málmgrýti sem er að finna í Önundarfirði og víðar, en sem litlar athuganir hafa farið fram á þótt áður fyrr hafi hagnýting þessara auðlinda verið mjög til umræðu og athugunar.
Það er stundum talað um atvinnumál á Vestfjörðum svo sem atvinnulífinu þar sé áskapað að vera einhæfara en í öðrum landshlutum. Þá er kannske stundum talað svo eins og Vestfirðir séu annars flokks land í þessu tilliti. Þetta er víðs fjarri raunveruleikanum. Það er ekki rétt, eins og stundum er talað um, að Vestfirðir séu ekki hlutgengir t. d. þegar talað er um stóriðju. Það er rétt að á Vestfjörðum eru ekki stór vatnsföll til stórvirkjana samanborið við það sem stærst gerist í öðrum landshlutum. Samt sem áður hafa Vestfirðir möguleika á umtalsverðum vatnsaflsvirkjunum sem hljóta að verða settar upp á Vestfjörðum þegar hagkvæmt þykir. En enn fremur geta Vestfirðir notað stórvirkjanir landsins til stóriðju. Það er ekkert sem útilokar það. Það er ekki meiri vandkvæðum bundið t. d. að flytja raforku frá Blönduvirkjun til stóriðju á Vestfjörðum en að flytja raforku frá virkjun við Þjórsá til stóriðju í Hvalfirði. Það kann að vera að það sé nú eins og stendur ýmislegt nær Vestfirðingum í iðnaðarmálum en að hyggja að stóriðju á Vestfjörðum, samt sem áður eru Vestfirðir ekki úr leik í þeim efnum og það þarf að vera á verði um að hagnýta þau tækifæri sem kunna að gefast á þessu sviði.
Ég hef áður sagt að það verkefni sem við hér ræðum um sé æðimargslungið. Og vissulega er að mörgu að hyggja þegar rætt er um þróunarverkefni á Vestfjörðum. Þegar Vestfjarðaráætlun kom til var ákveðið að byrja á samgöngumálunum og aðrir þættir áttu að koma á eftir. Þó að þá og síðar hafi mikið verið gert í samgöngumálum Vestfjarða er svo mikið ógert enn að telja verður hiklaust að þau mál séu enn ein af brýnustu viðfangsefnunum. Ég ætla ekki að fara að tala hér um einstök verkefni í samgöngumálunum. Þar er að sjálfsögðu af mörgu að taka eins og alkunnugt er. Á það jafnt við vegamál, brúargerðir, jarðgangagerðir, hafnargerðir og flugvallaframkvæmdir. Mikilvægi alls þessa blasir við þegar rætt er um þróun byggðar á Vestfjörðum.
Þá er vert að minna á að eitt af því allra brýnasta til eflingar byggðar á Vestfjörðum er aukin áhersla á byggingu íbúðarhúsnæðis. Húsnæði er grundvallarskilyrði þess að fólk geti flutt til Vestfjarða og sest þar að. Á síðari árum hefur síður skort framleiðslutæki á Vestfjörðum en fólk til að hagnýta þau sem best. Skortur á íbúðarhúsnæði hefur verið hemill á uppbyggingu á Vestfjörðum. Ef vel á að vera þarf að mæta þessum vanda með sérstakri fyrirgreiðslu við húsbyggjendur í þessum landshluta.
Með till. þessari til þál. er lagt til að Framkvæmdastofnun ríkisins verði falið að semja álitsgerð um framkvæmd þróunarverkefna fyrir Vestfirði með skírskotun til þeirrar sérstöðu í atvinnulífi landshlutans sem ég hef hér lýst. Líkur eru til að fyrirsjáanlegar stórbreytingar í atvinnuháttum kunni, ef ekkert verður að gert, að leiða til stórfelldrar byggðaröskunar Vestfjörðum í óhag og þjóðarheildinni til tjóns. Slík þróunarverkefni eiga í fæstum tilvikum að vera frumkvæðisverkefni opinberra aðila né á sviði opinbers rekstrar. En það er sjálfsagt að hið opinbera veiti t.,d. einkaaðilum tiltekinn stuðning til þess að hrinda slíkum verkefnum í framkvæmd og getur sá stuðningur verið með margvíslegum hætti. Ekki á það aðeins við um ríkið og stofnanir þess, heldur ekki síður við sveitarfélögin sem veitt gætu aðstoð t. d. með tímabundinni eftirgjöf á opinberum gjöldum til atvinnulegrar uppbyggingar slíkra þróunarverkefna. Það væri mikill fengur að fá slíkum hugmyndum lýst í álitsgerð sem gæti orðið grundvöllur að aðgerðum síðar meir, eins og hér er gerð till. um hvað varðar Vestfirði sérstaklega.
Herra forseti. Að loknum fyrri hluta umr. um þessa þáltill. leyfi ég mér að leggja til að till. verði vísað til hv. atvmn.