11.04.1984
Efri deild: 79. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4615 í B-deild Alþingistíðinda. (3983)
306. mál, skattskylda innlánsstofnana
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breyt. á lögum nr. 65 frá 19. maí 1982, um skattskyldu innlánsstofnana, á þskj. 594.
Vorið 1982 voru á Alþingi samþykkt lög um skattskyldu innlánsstofnana, lög nr. 65 frá 1982. Efnislega fólst í lögum þessum að á árinu 1982 skyldu innlánsstofnanir, aðrar en smæstu sparisjóðir, greiða sérstakan skatt til ríkissjóðs er næmi 0.06% af heildarinnlánum þeirra í lok hvers mánaðar. Frá og með tekjuárinu 1983 skulu þær innlánsstofnanir, er lögin taka til, hins vegar vera skyldar til greiðslu tekju- og eignarskatts og skal álagning byggjast á almennum reglum laga nr. 75/1981. Þó eru gerð frávik frá almennum reglum skattalaga varðandi fáein atriði. Þessi frávik varða heimild til niðurskriftar útistandandi viðskiptaskulda, skattalega meðferð við sameiningu sparisjóða og annarra innlánsstofnana og greiðslufyrirkomulag skatta skv. lögunum, þar sem nokkurs konar staðgreiðslufyrirkomulagi er komið á varðandi innlánsstofnanir. Í 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða samkv. rómverskum tölul. V í lögunum er loks tekið fram að þau skuli ásamt lögum nr. 40/1969 endurskoðuð af starfandi bankamálanefnd. Í samræmi við þetta gerði nefndin drög að nýju frv. til l. um skattskyldu innlánsstofnana og tvenn drög að frv. að lögum um umboðsþóknun og gengismun gjaldeyrisbankanna. Þessi frv.-drög sendi nefndin fjmrn. með bréfi dags. 24. nóv. 1982. Er bréf þetta ásamt fyrrgreindum frv.drögum birt sem fskj. með lagafrv. þessu. Í till. bankamálanefndar um frv. til l. um skattskyldu innlánsstofnana er í höfuðdráttum byggt á ákvæðum laga nr. 65 frá 1982. Þó eru í frv. gerðar tillögur um fimm viðamiklar efnisbreytingar sem allar horfa til þess að létta skattbyrði innlánsstofnana. Eru brtt. nefndarinnar eftirfarandi:
1. Í 1. mgr. frv.-dragana er gert ráð fyrir að innlánsstofnanir verði eignarskattsfrjálsar. Ætla má að eignarskattur þeirra aðila sem skattskyldir eru skv. lögunum mundu nema nálægt 22 millj. kr. vegna eigna í lok ársins 1983, miðað við að eignarskattur sé 1.1% af stofni.
2. Í 2. gr. frv.-draganna er gert ráð fyrir að allir stofnlánasjóðir og veðdeildir bankanna verði undanþegin skattskyldu, en skv. gildandi lögum er þessi skattundanþága bundin við lögbundna stofnlánasjóði. Erfitt er að meta hversu mikil fjárhagsleg áhrif þessi till. hefur, ekki síst þar sem hún kann að hafa áhrif á uppbyggingu einstakra deilda innlánsstofnana þegar fram í sækir.
3. Í 3. gr. frv.-draganna er lagt til að opnuð verði heimild til sérstakrar niðurfærslu er nemi 1% af aukningu útlána og veittra ábyrgða á rekstarárinu. Ætla má að þessi heimild geti lækkað skatttekjur um nálægt 10.5 millj. kr. vegna rekstrarársins 1983, og er þá miðað við að skatturinn sé 50% af skattstofni.
4. Þá er í 5. gr. frv.-draganna lagt til að innlánsstofnanir með lægri innstæðu en 50 millj. kr. í árslok 1982 skuli vera skattfrjálsar. Fjárhagsleg áhrif af þessari till. eru óveruleg þar sem þær innlánsstofnanir sem hér um ræðir höfðu einungis tæp 4% af heildarinnlánunum 1982.
5. Loks leggur bankamálanefndin til í ákvæði til bráðabirgða IV að horfið verði að eftirágreiðslu skatts í stað núgildandi staðgreiðslufyrirkomulags. Við þetta félli niður tekjustreymi eins árs í ríkissjóð og mundi áhrifanna að langmestu leyti gæta á árinu 1984.
Allítarlegan rökstuðning fyrir tillögum bankamálanefndar er að finna í grg. með frv.-drögum og vísast um þær til fylgiskjals.
Telja verður að rík rök mæli með því að starfsemi innlánsstofnana sé skattskyld á hliðstæðan hátt og starfsemi annarra atvinnufyrirtækja í landinu. Af því leiðir að sterk rök varðandi séreðli starfseminnar verði að liggja fyrir til þess að unnt sé að víkja frá almennum skattlagningarreglum að því er þessar stofnanir varðar. Verður að telja það hæpið að nægilega þungvæg rök af þessu tagi liggi að baki öllum tillögum bankamálanefndarinnar. Að því er greiðslufyrirkomulag á sköttum innlánsstofnana varðar er ljóst að ríkissjóður má á árinu 1984 alls ekki við þeim tekjumissi er af tillögum bankamálanefndar í þessu efni mundi leiða. Í frv. þessu eru því einungis gerðar tillögur um tvenns konar breytingar á núgildandi ákvæðum laga um skattskyldu innlánsstofnana. Svara þær til þeirra tillagna sem bankamálanefnd gerði og raktar eru í 3. og 4. tölul. hér að framan, enda þótt í frv. þessu sé lögð til nokkuð önnur útfærsla en bankamálanefnd gerði tillögur um, eins og nánar er rakið í aths. við einstakar greinar.
Virðulegi forseti. Ég legg til að frv. þessu verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn. að lokinni þessari umr.