11.04.1984
Efri deild: 79. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4619 í B-deild Alþingistíðinda. (3995)

182. mál, umferðarlög

Frsm. (Salome Þorkelsdóttir):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. allshn. á þskj. 595 um frv. til l. um breytingu á umferðarlögum, nr. 40 23. apríl 1968, með síðari breytingum. Frv. þetta fjallar um að við akstur bifreiða, bifhjóla og léttra bifhjóla skuli jafnan vera tendruð ljós á lögboðnum ljóskerum, þ. e. um notkun ökuljósa allan sólarhringinn allan ársins hring og jafnframt um merkingar á bifreiðum, sem flytja skólabörn, þ. e. stöðvunarskyldu bifreiða sem koma á eftir eða á móti slíkum bifreiðum á meðan skólabörnum er hleypt út eða þau eru tekin upp í skólabifreiðina.

Nefndin leitaði umsagna eftirtalinna aðila um frv.: Félags ísl. bifreiðaeigenda, Bílagreinasambandsins, Umferðarráðs, Blindrafélagsins, Bifreiðaeftirlits ríkisins, Öryrkjabandalagsins, Bindindisfélags ökumanna og Umferðarlæknisfræðifélagsins. Skriflegar umsagnir bárust frá öllum þessum aðilum nema Umferðarlæknisfræðifélaginu, en þaðan kom munnleg umsögn í gegnum síma.

Allar þessar umsagnir eru jákvæðar. Sumar þeirra gera nokkuð ítarlega grein fyrir áliti sínu á þeim þáttum sem frv. fjallar um. Aðrar umsagnir eru á þann veg að ekki eru gerðar athugasemdir eða mælt með samþykkt frv.

Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja þetta frekar, herra forseti, en ég vil lesa hér niðurlag umsagnar stjórnar og varastjórnar Blindrafélagsins, því að sú umsögn gefur nokkuð góða mynd af því sem að baki flutnings þessa frv. liggur. Í bréfi Blindrafélagsins segir, með leyfi forseta:

„Stjórnin telur að hér sé um mikið hagsmuna- og öryggismál að ræða fyrir blinda og sjónskerta, aldraða og börn og alla öryrkja og aðra þá sem eiga í erfiðleikum í umferðinni. Enn fremur leyfir stjórnin sér að benda á að samþykkt frv. þessa eykur til muna öryggi heyrnarlausra í umferðinni, hvort sem þeir eru gangandi eða akandi. Samþykkt þessa frv. mun einnig stuðla að því að færri hljóti örorku af völdum umferðarslysa.“

Undir bréfið ritar formaður Blindrafélagsins, Samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi, Halldór S. Rafnar, og Sverrir Karlsson varaformaður.

Eins og ég sagði áðan sé ég ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þetta mál. Það fékk nokkra umfjöllun í þessari hv. deild við 1. umr. Nefndin mælir með samþykkt frv. Einn nm., Eiður Guðnason, var fjarverandi við afgreiðslu málsins, en hann er einn af meðflm. frv. Einn nm., Valdimar Indriðason, skrifar undir með fyrirvara. Aðrir nm. sem skrifa undir frv. eru Ólafur Jóhannesson, Eyjólfur Konráð Jónsson, Stefán Benediktsson, Sigríður Dúna Kristmundsdóttir og Salome Þorkelsdóttir.