11.04.1984
Neðri deild: 73. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4626 í B-deild Alþingistíðinda. (4019)

119. mál, tollskrá

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Virðulegi forseti. Fram koma fullyrðingar um að frv. þetta sé ófullburða í fyrsta lagi og í öðru lagi með öllu óþarft. (GHelg: Það sagði ég ekki.) Var ekki hv. þm. að vitna til þess að lög næðu e. t. v. yfir þetta þannig að það væri óþarft, en í öðru lagi ófullburða að því leyti að það nái ekki nægjanlega yfir þau atriði sem að þessum nefnda sáttmála snúa? Ég fer fram á það við hæstv. forseta að hann fresti afgreiðslu þessa máls vegna þess að það er engin hæfa, ef það stenst sem hér er haldið fram, að hv. Nd. afgreiði þetta með þessum hætti frá sér.