11.04.1984
Neðri deild: 73. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4665 í B-deild Alþingistíðinda. (4058)

258. mál, sala eyðijarðarinnar Írafells í Lýtingsstaðahreppi

Guðmundur Einarsson:

Virðulegi forseti. Ég ætla að gera örstutta aths. við meðferð málsins. Ég tel að það séu eðlilegri vinnubrögð, þegar til umr. er að jarðeignir ríkisins séu seldar, að um þau mál sé fjallað í fjh.- og viðskn. þingsins. Ég ætla að gera um það till. að þessu máli verði vísað til fjh.- og viðskn. Það gegnir held ég sama máli um þetta og aðrar eigur þjóðarinnar, að eðlilegra er að fjallað sé um þessi mál þar.