11.04.1984
Neðri deild: 73. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4669 í B-deild Alþingistíðinda. (4066)
258. mál, sala eyðijarðarinnar Írafells í Lýtingsstaðahreppi
Flm. (Stefán Guðmundsson):
Virðulegi forseti. Það eru aðeins örfá orð til viðbótar við það sem hér hefur verið sagt. Ég vildi fyrst byrja á því að beina orðum mínum til hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar sem sagði að þm. ættu ekki að vera í svona atkvæðasnapi, eins og ég held að hann hafi orðað það. Ég vil nú ekkert segja annað en það að sér er nú hvert atkvæðasnapið. Guðmundur J. Guðmundsson. (Gripið fram í: Eyðijörð.) Já, með þá eyðijörð sem hér er verið að tala um. Ég verð að segja að það getur varla talist neitt óeðlilegt við það, hv. 7. þm. Reykv., þó að hreppsnefnd — og það er nú ekki eins og hún sé margklofin í þessu máli heldur öll — fari fram á það við þm. síns kjördæmis að flytja slíkt mál á Alþingi. Ég hef kannske ekki langa reynslu hér en ég get ekki séð að það sé neitt óeðlilegt við það. Mér hefði fundist það miklu frekar óeðlilegt ef þessir gömlu sveitungar mínir og góðir vinir hefðu brugðið á það ráð að leita til hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar og beðið hann að flytja þetta mál. Þá hefði mér hætt að lítast á blikuna. (Gripið fram í: Af hverju?) Vegna þess að ég hefði talið miklu nær að þeir hefðu beðið hv. þm. Ragnar Arnalds þess. (Gripið fram í.) Já, þú meinar Ragnar og mig, já, ég reikna með því líka að það geti verið þannig, ástandið hjá mér.
Ég vil taka undir það sem Pálmi Jónsson sagði hér. Mér fannst kveða við einkennilegan tón hjá þessum ágæta ræðumanni, hv. þm. Guðmundi J. Guðmundssyni, sem sagði að neytendur mættu ekki eiga hlut í landbn. Hverjir eru neytendur? Hverslags brengl er þetta? Eru neytendur ekki um allt? Menn tala um að það sé alveg vita fráleitt að vísa þessu til landbn. Ég var ekki búinn að grípa það að þetta eru allt menn úr fjh.og viðskn. sem eru að biðja um málið til sín. Hver skyldi vera formaður fjh.- og viðskn. Nd. sem þessir menn eru að biðja um að fá í málið til þess að stýra því? Ef ég man rétt er það samþingsmaður minn, hv. þm. Páll Pétursson góðbóndi. (SvG: Það verður þá að treysta honum.) Já, ég treysti Páli fullkomlega í þessu máli, en þetta sýnir aðeins að þetta er heldur betur í bland.
Ég vildi þó áður en ég sest niður þakka hv. þm. Birgi Ísleifi Gunnarssyni fyrir hans innlegg í þetta mál. Þar var vel mælt en kom mér að vísu ekkert á óvart. Frekar hefur komið á óvart það sem ýmsir aðrir hafa sagt og þá fyrst og fremst hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson. Það stingur mig nokkuð hvernig kveður við tón í hans umfjöllun. Ég undirstrika það og legg áherslu á það að þetta mál fari til landbn. Þar hafa slík mál verið og eiga að vera. En það skyldi aldrei fara svo að það sannaðist á þessu eins og mörgum öðrum málum að litlu málin verða oft þau stærstu.