12.04.1984
Sameinað þing: 81. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4697 í B-deild Alþingistíðinda. (4097)
307. mál, staða íþrótta í landinu
Helgi Seljan:
Herra forseti. Hér er um þarfa till. að ræða og sjálfsagða sem ég hlýt að styðja því að mikilvægi þess málaflokks sem þessi till. snertir er ótvírætt. Því hafa menn gert sér grein fyrir sem betur fer þó að skilningur hafi hvergi nærri verið nægur á þessum málum í heild sinni, m. a. ekki hjá fjárveitingavaldinu.
Málið er skylt starfi hv. fyrra flm. og eðlilegt að hann taki hér á. Það hlýtur að vera nokkurt umhugsunarefni að í grg. með þessari till. segir að í ársbyrjun 1975 hafi verið skipuð 5 manna nefnd til að gera úttekt á stöðu íþrótta í íslensku þjóðlífi. Síðan er nærri áratugur og þrátt fyrir það að nefndin hafi unnið vel að þessum málum um tíma að manni skilst hefur þetta mál legið í salti síðan.
Ég kom hér aðallega upp til þess að minna um leið á það að allsnemma á þingi í vetur fluttum við þrír þm. aðra till. sem fékk litla umfjöllun á þeim tíma, raunar minnir mig aðeins framsöguna og svo búið, till. um skipulegan stuðning hins opinbera við ungmenna- og íþróttahreyfinguna. Ég vil í tengslum við þessa till., sem er um náskylt efni og kemur inn á fjöldamörg sömu atriði, leyfa mér að vitna til þessarar till., með leyfi hæstv. forseta, en þar segir svo:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta undirbúa og semja löggjöf um skipulegan stuðning hins opinbera við ungmenna- og íþróttahreyfinguna. Skal í því sambandi haft náið samband við fjöldahreyfingar á þessu sviði, svo sem Ungmennafélag Íslands og Íþróttasamband Íslands. Meðal áhersluatriða í löggjöf þessari skulu vera:
1. Sérstök rækt verði lögð við almenningsíþróttir og hvernig laða megi sem flesta til líkamsræktar.
2. Samstarf skóla og félagasamtaka um eflingu íþrótta verði stóraukin.
3. Hvers konar íþróttastarfsemi verði skipulega nýtt í þágu baráttunnar gegn vímuefnaneyslu.
4. Tekið verði upp ákveðnara og skipulegra form þess fjárhagsstuðnings sem hið opinbera veitir við íþróttastarfsemi.
5. Tryggð verði sem best nýting þess fjármagns sem veitt er til íþróttahreyfingarinnar í því skyni að stórauka þátttöku almennings og þá ungs fólks alveg sérstaklega.“
Ég bendi á þetta hér þar sem í grg. með þessari till. er sérstaklega farið inn á sömu áhersluatriði, m. a. í a-lið varðandi skólana, í b-liðnum varðandi ungmenna- og íþróttafélög og í d-liðnum varðandi aukna áherslu á almenningsíþróttir. Ég sé þess vegna að þó að þessi till. sé einskorðuð við nefndarskipan um úttekt á stöðu íþróttamála hnígur hún um margt í sömu átt og hér er um sömu áhersluatriðin að ræða í flestum þeim greinum sem máli skipta.
Fyrst og fremst er sú hugsun að baki að efla og bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar, auka þátttöku almennings, gera íþróttirnar að almenningseign, gera þær að virkum þætti í heilsugæslu okkar og þá alveg sérstaklega sem fyrirbyggjandi þætti og aðgerðum í þeirri sömu heilsugæslu. Að gera það mögulegt að nýta íþróttirnar og þá iðkun sem þeim er samfara til baráttu gegn þeirri vímuvá sem við stöndum andspænis. En eins og hv. frsm. kom inn á áðan tilheyra íþróttir þeirri grein tómstundaiðju sem hollust er og best gæti verið til þess fallin að efla lífsfyllingu manna almennt.
Í þessari till. kemur einnig fram ótvíræður stuðningur við þá áhugaaðila sem við lögðum sérstaka áherslu á í okkar till., þ. e. Ungmennafélag Íslands og Íþróttasamband Íslands, þar sem þessir aðilar leggja á sig ómælt erfiði fyrir unga fólkið, fyrir almenning. Það skiptir mestu, því að þessir fjármunir skila sér margfaldlega til baka, líka í beinum þjóðhagslegum skilningi svo að maður taki jafnvel hrein fjárhagsleg dæmi þar inn í, en auðvitað fyrst og fremst í bættri heilsu og aukinni og betri lífsfyllingu fólks almennt.
Mér þykir það nokkuð miður að ekkert bólar á undirtektum hv. allshn. við þessari till. okkar sem við héldum nú sannast sagna að fengi nokkuð greiða meðferð í þeirri nefnd. Fyrst hv. allshn. hefur ekki séð ástæðu til þess að skila áliti um þessa till. tel ég það sjálfgefið að hún skoði þessar tillögur báðar í samhengi því að áhersluatriðin eru svo lík í þeim báðum að ég teldi það sjálfgert hjá hv. allshn. að gera með einhverjum hætti eina till. hér úr, sameina þau áhersluatriði sem kunna að vera eitthvað öðruvísi. Þar verði farið fram á að annars vegar verði gerð úttekt á stöðu þessara mála og hins vegar betur séð fyrir skipulegum opinberum stuðningi við ungmenna- og íþróttahreyfinguna í landinu.