03.11.1983
Sameinað þing: 13. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 561 í B-deild Alþingistíðinda. (411)
48. mál, stöðvun framkvæmda við byggingu Seðlabanka Íslands
Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Mér finnst viðeigandi að segja hér nokkur orð í tilefni af ræðu hv. 10. landsk. þm. og þeirri till. sem hér er flutt af þm.
Eins og segir í fyrirsögn till. fjallar hún um stöðvun framkvæmda við byggingu Seðlabanka Íslands. Hér er um að ræða byggingarframkvæmdir sem staðið hafa í 10 ár — og það sem meira er, á þessum tíma hafa fjölmargir samflokksmenn hv. þm. haft tækifæri til að beita sér fyrir breytingum á þeim áformum sem réttkjörinn aðili hefur haft í sambandi við byggingu bankahúss fyrir Seðlabankann, þ.e. bankaráðið. Fjölmargir aðilar hafa haft tækifæri til að beita áhrifum sínum til að fá þessum áformum breytt, auk þess sem sá flokkur, sem hv. 10. landsk. þm. tilheyrir, á sinn fulltrúa í bankaráði. Þar að auki er einn bankastjórinn skipaður af fyrrv. viðskrh. þess flokks svo að mér sýnist að viðkomandi aðilar hafi haft nóg tækifæri til þess að koma fram ýmsum þeim hugmyndum til breytinga sem hv. þm. vék hér að áðan. (Gripið fram í: Hvaða bankastjóri sér um bygginguna?) Ég held að það sé bankastjórnin í heild sem fer með byggingarmálin fyrir hönd bankaráðs. En ég orðaði það svo að fyrrv. hæstv. viðskrh. Lúðvík Jósepsson hefði skipað einn af þeim bankastjórum sem gegna störfum við Seðlabankann. Eins og ég vakti athygli á hafa því flokksmenn hv. 10. landsk. þm. haft öll nauðsynleg tækifæri til þess að koma hér fram einhverjum breytingum.
Ég vildi aðeins vekja athygli á þessu því að svo lengi hefur þessi bygging verið á döfinni. Ég er ekki þar með að segja að það hefði ekki e.t.v. verið fyrir tveimur árum ástæða til að gera þar á breytingar. En staðreyndirnar eru þær sem við blasa: Það er verið að byggja bankahús Seðlabankans og það hafa ekki komið fram, þar sem átt hefðu að koma fram, athugasemdir frá einum eða öðrum. Ég kann ekki skil á að athugasemdum hafi verið hreyft í bankaráði, bankastjórn né heldur hjá þeim ráðherrum sem gegnt hafa embætti viðskrh. á þessum tíma. Þetta finnst mér að þurfi að liggja fyrir varðandi sögulegan aðdraganda málsins og að hv. alþm. geri sér þetta ljóst þegar við erum að ræða þessa till. hér og nú.
Hvað snertir þá samninga sem gerðir hafa verið og hv. þm. spurði um get ég líka upplýst að byggingin var boðin út í febrúarmánuði s.l., allir áfangarnir, og þá þegar var tekið tilboði frá þeim verktaka sem unnið hefur að byggingunni síðan, fyrsta og öðrum áfanga. Varðandi þriðja áfanga var frestur gefinn til 1. júlí, sem síðan fékkst framlengdur til 1. sept. Þá var undirritað vegna hagkvæmni, og talið að það tilboð, sem barst og tekið var, væri 16% undir þeirri áætlun sem gerð hafði verið. Enn kemur að því að hægt hefði verið í febrúarmánuði s.l. að gera breytingar eða stöðva það útboð sem þá var gert. Það gerðist ekki. Þetta tel ég líka að þurfi að liggja fyrir. Mér finnst satt að segja seint í rassinn gripið þegar nú er lagt til að stöðva framkvæmdir við þessa byggingu — ja, þegar búið er að ganga frá öllum þeim samningum sem nauðsynlegir eru til þess að slík bygging geti gengið fram.
Ég skal hins vegar ekki deila við hv. þm. um hvort það fjármagn, sem gert er ráð fyrir til þess arna á árinu 1984 og kom fram í svari mínu hér á þriðjudaginn og hv. þm. vék að hér áðan, 20 millj. kr., væri betur komið einhvers staðar annars staðar. Ég skal ekki della neitt um það. En málið liggur ekki þannig fyrir og þess vegna er að mínum dómi ekki raunsætt, þegar verið er að bera saman hvort fjármagni til ákveðinna opinberra framkvæmda í fjárlagafrv., sem er kannske af skornum skammti hefði ekki verið betur varið á annan hátt. Ég get verið þm. sammála um að æskilegra hefði verið ef við hefðum haft þar meira fjármagn, en mér sýnist ekki að í þessu máti hefði orðið þar á nein breyting, a.m.k. hefði þurft að gera ráðstafanir í þeim efnum miklu, miklu fyrr. En sjálfsagt verður þetta allt skoðað af þeirri nefnd sem fær þessa till. til meðferðar. En ég vil, áður en til þess kemur, víkja í fyrsta lagi að orðalagi till. og í öðru lagi að þeim lögum sem flm. vitnar til og byggir tillöguflutning sinn á.
Ef ég má með leyfi hæstv. forseta lesa till. upp, þá hljóðar hún svo: „Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að beita ákvæði 3. málsgr. 1. gr. laga um skipan opinberra framkvæmda, nr. 63/1970, og stöðva nú þegar þær framkvæmdir við byggingu Seðlabanka Íslands sem ekki hefur þegar verið samið um við verktaka.“
Mér er ekki ljóst hvaða framkvæmdir hér er átt við. Framkvæmdir við byggingu Seðlabankahússins eru samkvæmt samningum sem gerðir hafa verið við verktaka. Og ég á ekki von á því að hér sé um að ræða neinar þær framkvæmdir sem ekki eru samkvæmt þeim samningum. Ef samþykkja á till. um að stöðva framkvæmdir við þetta hús, þá verður að breyta a.m.k. texta till. Það liggur ljóst fyrir. Ef skoðuð er 3. málsgr. 1. gr. laga um skipan opinberra framkvæmda, nr. 63/1970, í greinargerð með till. tekið þaðan upp, með leyfi forseta:
„Ríkisstj. getur ákveðið, að lög þessi taki, eftir því sem við á, til framkvæmda á vegum ríkisstofnana, er hafa sjálfstæðan fjárhag og því ekki háðar fjárveitingarákvörðun Alþingis.“
Til þess að skyggnast nú örlítið dýpra í hlutina þar sem fjallað er um stefnumótun frv. og ákvæði þess, eða greina í frv., ætla ég að lesa upp, með leyfi forseta úr athugasemdum við frv. sem á sínum tíma lá hér frammi á Alþingi:
„Markmið með frv. þessu er að tryggja sem hagkvæmasta nýtingu þess fjármagns, sem varið er til opinberra framkvæmda. Í því skyni eru í frv. ákvæði, sem eiga að tryggja að ákvörðun um að hefja verk verði ekki tekin fyrr en fullnaðarundirbúningi er lokið, þannig að unnt verði að gera greiðsluskuldbindingar fyrir verkið í heild og ekki þurfi til þess að koma að lausar skuldir safnist eða verk stöðvist af fjárhagsástæðum. Með þessu ætti að verða unnt að tryggja samfellt og hagkvæmt framhald verka og þar með sem stystan framkvæmdatíma.“
Þetta segir í almennum athugasemdum við frv. til laga um skipan opinberra framkvæmda sem var síðan samþykkt sem lög frá Alþingi 12. maí 1970. Og hvað segir svo í athugasemdum um 3. málsgr. 1. gr., sem um er getið í grg. og ég las hér upp áðan? Þar segir, með leyfi forseta:
„Samkv. 3. málsgr. getur ríkisstj. ákveðið að málsmeðferð varðandi gerð eða breytingu mannvirkis, sem kostað er af ríkisstofnun er hefur sjálfstæðan fjárhag, skuli vera í samræmi við ákvæði lagafrv. þessa eftir því sem við getur átt. Er hér t.d. átt við ríkisbankana.“
Víkjum þá aftur að almenna ákvæðinu sem ég las upp áðan. Ljóst er að þessi lög eiga að þessu leyti við í sambandi við ríkisstofnanir með sjálfstæðan fjárhag, að tryggja nýtingu og hagkvæmni. En að þar sé að finna heimild til þeirra hluta, sem hér er vikið að í till., það fæ ég ekki séð af lestri laganna né heldur grg.
Ég vildi vekja athygli á þessu fyrir þá n. sem fær till. til umfjöllunar, auk þess sem ég vil svo víkja að því að samkv. lögum um Seðlabanka Íslands er yfirstjórn Seðlabankans í höndum ráðh. þess sem fer með bankamál og bankaráðs. Síðan er nánar skilgreint í lögum og reglugerð hvert er hlutverk bankaráðs sem Alþingi kýs. Ég vek athygli á því að hér er ekki um að ræða bankaráð sem ráðh. skipa, heldur bankaráð sem Alþingi hefur kosið og Alþingi hefur sett ákveðið hlutverk með lagasetningu um Seðlabanka Íslands.
Spurningin er því sú hvort það gæti gerst með öðrum hætti en beinni lagasetningu að stöðva slíkar framkvæmdir. Og auðvitað þá undir hvaða kringumstæðum og á hvaða stigi viðkomandi framkvæmdir eru.
Þetta vildi ég líka að hér kæmi fram til þess að við áttum okkur á því hver er stjórnarfarslegur réttur eða stjórnarfarsleg skylda þess aðila sem fer með þessi mál, hver er stjórnlagalegur réttur þeirrar stjórnar sem Alþingi hefur kosið til þess að fara með málefni Seðlabankans. Þetta allt held ég að þurfi að skoða þegar sú n. sem þm. lagði til að fengi þetta mál til meðferðar, þ.e. allshn., fjallar um málið. Spurningin er fyrir mér hvort það ætti að vera fjvn., en það skiptir út af fyrir sig ekki höfuðmáli. Aðalatriðið er að menn geri sér grein fyrir því hvernig saga þessa máls er, hver er staða byggingar og byggingarframkvæmda í dag og svo með hvaða hætti lögformlega er hægt að standa að þeim aðgerðum sem þm. vék hér að og eru í huga þm., hefði kannske mátt verða miklu fyrr, til þess að ná árangri í þessu máli, þ.e. að stöðva þessa byggingu. Mér er ekki kunnugt um að aðrir samningar hafi verið gerðir en þeir að ljúka við uppsteypu þessarar byggingar, og eins og kom fram í svari mínu skv. upplýsingum frá Seðlabankanum, fyrir 20 millj. kr. á árinu 1984.