12.04.1984
Sameinað þing: 81. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4729 í B-deild Alþingistíðinda. (4115)

278. mál, kynning á líftækni

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Hér liggja fyrir hv. Alþingi tvö mál sem tengjast lífefnaiðnaði. Það er í fyrsta lagi sú till. til þál. sem hér er mælt fyrir af hv. 4. landsk. þm. en að auki liggur fyrir hv. Nd. sérstakt frv. sem ég ætla að vitna hér til, 272. mál þingsins á þskj. 523, frv. til l. um breytingu á lögum um rannsóknir í þágu atvinnuveganna, flutt af Steingrími J. Sigfússyni. Fyrir þessu máli hefur enn ekki verið mælt í Nd. en meginefni þess varðar lífefnaiðnað og till. um að sett verði á fót sérstök rannsóknastofa lífefnaiðnaðarins.

Ég tel að þessi mál bæði sem liggja fyrir þinginu og þá ekki síður sú till. sem hér er mælt fyrir, séu mjög góðra gjalda verð og þörf málefni. Sá rökstuðningur, sem hér hefur komið fram frá hv. þm. Guðmundi Einarssyni, flm. þessarar þáltill., er mjög ítarlegur. Ég tek eindregið undir það að nauðsynlegt er að gefa þessum málum mjög aukinn gaum frá því sem verið hefur og kynna möguleika á þessu sviði og reyna að koma hér á skipulagi varðandi rannsóknir á þessu sviði og síðan könnun á framleiðslumöguleikum eftir því sem frekast verður við komið að bestu manna yfirsýn.

Ég vil vekja á því athygli að ekki ætti að þurfa að skorta fjármagn í þessu skyni miðað við þá starfsemi sem reikna má með að ráðist yrði í á næstunni. Ég vil vekja á þessu athygli vegna þess að það hefur ekki nógsamlega komið fram í umr. um þetta mál. Alþingi hefur á undanförnum árum veitt sérstaka fjárveitingu til iðnaðarrannsókna. Á þessu ári eru á fjárlögum 10 millj. kr. veittar til iðnaðarrannsókna. Það var fjárlagaliður sem upp var tekinn í minni tíð sem iðnrh. til þess að unnt væri að standa fyrir undirstöðurannsóknum og hagnýtum rannsóknum á framleiðslumöguleikum í iðnaði. Þar er um að ræða allverulegt fjármagn miðað við það hvað veitt hefur verið af opinberri hálfu til þessara mála. Þessi fjárlagaliður lá fyrir í fyrra og raunar í hitteðfyrra, þó að meiri hluta þá sem lánveiting, en síðan hefur í vaxandi mæli verið veitt beint framlag til þessara þátta. Ég tel því að það ætti að kanna þegar á þessu ári hvað þörf væri á að styðja við á sviði lífefnaiðnaðar og taka það mál upp við iðnrn., að veittur verði fjárhagslegur stuðningur af þessum fjárlagalið sem ég geri ekki ráð fyrir að hafi verið ráðstafað til fulls á þessu ári þó að nokkuð sé á það liðið. Ég vek athygli á því að honum var ekki skipt af fjvn. nú við afgreiðslu fjárlaga og það hefur ekki verið gert á undanförnum árum, að öðru leyti en því að fjvn. hefur fengið málið til umsagnar. Það gilti a. m. k. fyrir árið 1982.

Ég vil hér við þessa umr. um leið og ég tek undir till. benda á að athuga þarf í nefndum hvernig best verði staðið að kynningu á líftækni og m. a. hvaða aðilar það séu sem æskilegt er að kveðja þar til. Það er auðvitað alltaf álitamál til hverra á að leita í þessu efni. Ég sakna t. d. úr þeim lista í till. flm. um 7 menn í nefnd að ekki er þar á blaði Iðntæknistofnun Íslands sem ætlast hefur verið til að sinnti þessum málum og ekki er óeðlilegt að komi þar við sögu þar sem hún hefur sérstaka þróunardeild. Komið hefur verið á skipan varðandi Iðntæknistofnun þar sem sérstök ráðgjafarnefnd er starfandi við þróunardeildina, m. a. með fulltrúum frá Háskólanum til þess að vera starfsmönnum hennar til ráðgjafar um athuganir og þróun á sviði iðnaðar.

Ég vil þá leyfa mér að koma að í þessari umr. þeirri gagnrýni sem ekki hefur farið neitt sérstaklega lágt í minn garð í sambandi við þetta mál. Ég hafði satt að segja vænst þess að hæstv. iðnrh. yrði hér við umr. og sæi ástæðu til þess, og mundi þá víkja að því sem skylt er af hans hálfu að mínu mati, að ekki voru gefnar réttar upplýsingar hér 6. mars á hv. Alþingi í sambandi við afdrif þáltill. um lífefnaiðnað.

Ég heyrði það áðan að hæstv. ráðh. hafði stór orð uppi um það að illa væri farið ef framkvæmdavaldið ekki fylgdi eftir ályktunum Alþingis, og ég er honum alveg sammála um það atriði. Hann nefndi þessa till. í framhjáhlaupi um lífefnaiðnað sem hefði „fallið milli stafs og hurðar“ eins og hann orðaði það í umr. áðan. En hæstv. ráðh. veit nú betur, að á þessu máli var tekið af iðnrn. nokkru eftir að þessi þáltill. barst því og fékk þar ákveðna afgreiðslu. Ég tel nauðsynlegt að greina hér frá því, ekki síst í ljósi þeirrar geysilegu holskeflu gagnrýni sem hefur tekið á sig býsna fjölskrúðugar myndir í fjölmiðlum um það að lagst hefði verið á þessa till., hún hefði verið falin jafnvel af ásettu ráði eins og lesa mátti í leiðara eins dagblaðsins, að þáv. ráðh. iðnaðarmála hefði stungið henni undir stól, e. t. v. vegna þess að flm. till. á Alþingi hafi ekki verið hans flokksmaður. Það eru auðvitað mjög alvarlegar ásakanir þegar slíkar dylgjur eru uppi hafðar og ég vænti þess að fjölmiðlar sjái sóma sinn í því að leiðrétta þetta mál í ljósi þess sem hér greinir.

Þann 18. maí berst iðnrn. svofellt erindi frá forseta Sþ. og skrifstofustjóra:

„Hér með er ráðuneytinu send þingsályktun um innlendan lífefnaiðnað samþ. á Alþingi 4. þ. m.“ Þetta erindi er dags. 17. maí og berst rn. þann 18. eða er stimplað þar inn þann 18. maí. Þann 12. júní er að finna minnisblað sent ráðh. og ráðuneytisstjóra frá skrifstofustjóra, þar sem er að finna 8 erindi frá Alþingi, frumvörp vísað til ríkisstj. og sjö þáltill. sem sendar hafa verið rn. og fylgja þar með. Ég greindi frá því við umr. um þessa fsp. á Alþingi að ég minntist þess ekki að hafa haft þessa till. sérstaklega á borði, en orðaði það svo:

„Vegna þessarar fsp. um lífefnaiðnað er rétt að fram komi af minni hálfu að ég minnist þess ekki að þessi þáltill. hafi verið fyrir mig lögð eftir að hún fékk samþykki á Alþingi 1982. sá háttur var á hafður í sambandi við þáltill. sem vörðuðu iðnrn. að þær bárust rn. og var tekið til meðferðar af embættismönnum í samráði við mig hverf þeim var vísað. Sá háttur var á hafður þegar Alþingi hafði lokið störfum ár hvert. Ég kann ekki skýringar á því hvers vegna þessi till. hefur ekki fengið þá meðferð og komið inn á mitt borð.“

Síðan vék ég að því að um þessi mál hefði verið fjallað á þessum tíma og sagði m. a.: „Iðntæknistofnun var falið að vinna að athugun þess máls“ — það varðaði c-vítamínframleiðslu — „og samdi síðan um það við samtök sveitarfélaga á Suðurlandi að þau ættu hlut að máli. Það var einnig settur á fót sérstakur ráðgjafarhópur rannsóknastofnana í landinu til að fjalla um undirbúning og framleiðslumöguleika á sviði orkufreks iðnaðar. Sá hópur er að ég best veit að störfum í tengslum við Iðntæknistofnun Íslands.“

Þetta sagði ég í mínu máli. Það kom mér á óvart þegar þessi fsp. kom hér til umr., að hún hefði ekki fengið meðferð og ég greindi hér frá því sem ég helst vissi um málið á því stigi, en síðan er að finna í iðnrn. og liggur fyrir afrit af bréfi, dags. 11. ágúst 1982:

„Iðntæknistofnun Íslands, Skipholti 37, Reykjavík. Meðfylgjandi þál. um innlendan lífefnaiðnað var samþykkt á Alþingi á s. l. vori og falin iðnrn. til framkvæmda. Ráðuneytið fer þess á leit við Iðntæknistofnun Íslands að hún geri yfirlit yfir þær rannsóknir sem fram hafa farið á ýmsum þáttum lífefnaiðnaðar hjá rannsóknastofnunum og Háskóla Íslands. Í framhaldi þeirrar samantektar óskar rn. eftir ábendingum Iðntæknistofnunar varðandi vænlega kosti innlends lífefnaiðnaðar.

F. h. r.

Páll Flygenring,

Guðrún Hallgrímsdóttir.

Afrit: Hörður Jónsson, Iðntæknistofnun Íslands, Vesturvör 27, Kópavogi,“ en hann er framkvæmdastjóri þróunardeildar Iðntæknistofnunar.

Þetta gerist þann 11. ágúst 1982 og ég minnist þess og hef raunar fengið það staðfest af embættismönnum í rn. að við undirbúning að umsókn fjárlagaliðar um iðnaðarrannsóknir var af minni hálfu sérstaklega minnt á lífefnaiðnað og nauðsyn þess að gera ráð fyrir því að eitthvert fjármagn gæti verið til ráðstöfunar í sambandi við rannsóknir á framleiðslumöguleikum og öðrum þáttum lífefnaiðnaðar. Þetta er ekki óvenjuleg meðferð þáltill. áf hálfu rn. Ég hef vafalaust fengið um það ábendingar frá starfsmönnum þar og till. um það að vísa málinu til Iðntæknistofnunar, þar sem hún er sú stofnun á vegum iðnrn. sem fjallar um þróunarmöguleika í iðnaði og þ. á m. um nýmæli. Það var einmitt lögð sérstök áhersla á það á þeim árum, sem ég starfaði innan veggja iðnrn., að Iðntæknistofnun yrði efld og til hennar aflað fjármagns til þess að unnt væri að standa að rannsóknum á nýmælum, nýjum framleiðslumöguleikum í íslenskum iðnaði.

Ég ætla, herra forseti, ekki að fara að vitna hér til blaðaummæla út af þeim misskilningi eða missögnum sem hér komu fram, m. a. frá hæstv. iðnrh. sem svar við fsp. hv. 4. landsk. þm. þann 6. mars s. l. Það væri að æra óstöðugan að fara yfir þau efni. En ég minni á það að þetta fór nánast hringinn í forustugreinum dagblaðanna, og með þeim hætti sem ekkert er óvenjulegt. Það var ekki einu sinni farið eftir ábendingum ráðh. um það að þarna mundu hafa verið mannleg mistök á ferð, heldur hitt að fyrrv. ráðh. hefði sennilega vísvitandi lagst á málið eða týnt því í skýrslubunkum og pappír í sínu rn. Það eru klisjur sem ég er ósköp vanur að heyra í sambandi við þann vettvang sem ég sinnti á þessum árum.

Ég hvet til þess að á þessari þáltill. verði tekið eins og tillögumaður hefur lagt til og um hana fjallað í nefnd. Ég tel að Rannsóknaráð ríkisins hafi tekið með eðlilegum hætti á þessu máli með því að setja á fót sérstakan starfshóp til þess að fara yfir sviðið og það er vissulega verkefni Rannsóknaráðs, sem er ráðgefandi fyrir rannsóknastofnanir atvinnuveganna, að fjalla um fyrirkomulag rannsókna í landinu.

Ég tek undir það með hv. flm. að það er engin ástæða til þess að bíða eftir beinum tillögum eða lokatillögum þessa hóps. Hann getur eflaust gefið gagnlegar ábendingar mjög fljótlega sem hafa má stuðning af. Nauðsynlegt er að þeir aðilar, sem eðlilegt er að komi hér við sögu, hafi skynsamlegt samstarf. sú kynning, sem hér er lagt til að gerð verði á þessu sviði, er fyllilega tímabær, m. a. fyrir þá ungu uppvaxandi menntamenn og væntanlega vísindamenn sem eru að velta fyrir sér inn á hvaða svið skuli leitað.

Hitt skulum við jafnframt varast að gylla möguleika okkar um of. Ég er ekki að segja að það sé gert hér. Hér er dregin upp framtíðarsýn af þeim sem við þessi mál vinna, býsna lokkandi og heillandi framtíðarsýn í mörgum greinum. Við hljótum að eiga þarna verulega möguleika en þeir verða auðvitað ekki að veruleika nema á málunum sé tekið af festu og við veljum úr þau svið þar sem líklegast er að við getum komið við sögu í sambandi við framleiðslu í framtíðinni.

Ég vek líka athygli á því að þetta svið lífefnaiðnaðar og lífverkfræði er engan veginn hættulaust svið og því tengjast ýmsir þættir, þar sem menn þurfa að hafa vakandi auga á. Í því sambandi er vert að benda á að Rannsóknaráð ríkisins, framkvæmdastjóri þess, hefur séð ástæðu til þess í sambandi við markmið athugana í lífefnaiðnaði sem þriðja lið að benda á þær „hættur sem fylgt geta líftæknilegri starfsemi fyrir umhverfi eða heilsu manna og hvaða reglur þurfi að setja um slíka starfsemi til að forðast hugsanleg slys og draga úr áhættu.“ Þetta er tilvitnun í erindisbréf þessa starfshóps.

Líftækni og þróun hennar tengjast vissulega ýmis siðræn vandamál sem nauðsynlegt er að gefa gaum. Einnig hérlendis þegar verið er að fara inn á þetta nýja svið er vissulega ástæða til þess að hafa nokkra gát á. Hv. flm. nefndi hér möguleikann á að framleiða nýjar örverur, bakteríur og aðrar smásæjar lífverur. Það er mikið um rætt, en menn skulu hafa í huga að slíkt er ekki hættulaust með öllu. Það þarf a. m. k. að átta sig sem best á því hvaða þættir það eru sem þarf að gæta að í því sambandi. Ég ítreka svo að lokum að ég tek undir þennan tillöguflutning sem og það frv. sem hér liggur fyrir hv. Nd. um þetta mál og vænti þess að sú umr. og hvatning, sem fram hefur komið á þessum vetri í þessum efnum skili okkur með jákvæðum hætti áfram á þessu sviði.