03.11.1983
Sameinað þing: 13. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í B-deild Alþingistíðinda. (415)

48. mál, stöðvun framkvæmda við byggingu Seðlabanka Íslands

Jón Baldvin Hannibalsson:

Herra forseti. Ef þetta mál væri á byrjunarstigi nú væri alveg einsýnt að styðja það. Það lægi þá ljóst fyrir að meiri hluti í núv. ríkisstj. væri að reyna að beita ofríki hæstv. fjmrh., sem er einarðastur andstæðingur allra hv. þm. gegn sjálfræði og gerræði Seðlabankans í þessu þjóðfélagi. Þá væri það augljóslega svo að andstæðingar hans, samráðherrar hans í núv. ríkisstj. hefðu valið til þess óheppilegan dag að hreyfa þessu máli nú við upphaf landsfundar Sjálfstfl. Og augljóst að allir stuðningsmenn fjmrh. í þessu máli ættu að snúa bökum saman um að koma þeirri orðsendingu frá hv. Alþingi til landsfundar að hæstv. fjmrh. hefur mikinn stuðning í því að stöðva gerræði mandarína Seðlabankans í þessu máli.

En nú er málið ekki alveg svona einfalt. Málið á sér nokkurn undirbúning eins og hæstv. viðskrh. lýsti. Það hefur verið undirbúið árum saman náttúrlega af mandarínum Seðlabankans, af sérfræðingum þeirra; legið á teikniborðum, farið á borð margra sérfróðra manna og er nú, eftir því sem manni skilst en hæstv. viðskrh. þorir ekki alveg að upplýsa, framkvæmd málsins einkum og sér í lagi í höndum þess bankastjóra Seðlabankans sem áður fyrr var gullkistuvörður Alþb. en er nú einn af þremur bankastjórum Seðlabankans. Þess vegna er málið svolítið vandasamt.

Hæstv. viðskrh. ýjaði að því að það hefðu verið teknar örlagaríkar ákvarðanir um málið í tíð fyrrv. ríkisstj. og hann skildi ekki það orðalag till. þar sem segir „að stöðva nú þegar þær framkvæmdir ... sem ekki hefur þegar verið samið um við verktaka.“ Ég veit ekki hvað er svona óskiljanlegt við þetta. Mér skilst að í tíð fyrrv. ríkisstj. hafi allar ákvarðanir verið teknar um það að þetta hús skuli byggt. Það hafi verið teknar ákvarðanir í tíð fyrrv. ríkisstj. um að bjóða verkið út. Það hafi gerst í febr. s.l. Og við höfum ekki orðið varir við það að t.d. sá burðarás seinustu ríkisstj. sem er flokkur 1. flm. hafi hreyft neinum mótmælum. Nú má vel vera að það hafi gerst innan ríkisstj. að þeir hafi lýst sig andvíga þessu. Nú má vel vera að það sé rétt, sem sumir Alþb.menn segja, að ríkisstj. í heild hafi verið svona frekar á móti þessu.

Engu að síður gerðist það að verkið var boðið út, í verkið var boðið, framkvæmdir voru hafnar og það er það sem flm. á við, að því miður þá erum við bundin af verksamningum sem ákveðnir voru og staðfestir í tíð fyrrv. ríkisstj., þ.e. hæstv. fyrrv. fjmrh., Ragnars Arnalds, hæstv. formanns Alþb., málsvara sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar, Svavars Gestssonar fyrrv. ráðh. og þeirra félaga. Það er þetta sem átt er við: Við erum bundnir við samninga sem gerðir voru í tíð þessara herramanna. Og að sjálfsögðu, þetta eru allt heiðvirðir menn, í þeim flokki sem öðrum. Og við viljum ekki níðast á þeim samningum heldur standa við þá.

Hins vegar, um leið og það hefur verið gert, þá tökum við eindregið undir með þeim forsvarsmönnum þjóðfrelsishreyfingarinnar, sem og hæstv. fjmrh. ef hann er þarna enn þá, að síðan verði ekki haldið lengra áfram á þessari braut. Og við tökum eindregið undir það líka, sem hér er sagt í grg., að sjálfsagt sé að fara að þeirri fyrirmynd sem algild er, þar sem sósíaldemókratar fara með völd, að arður af Seðlabanka verði ekki alfarið leikfang mandarína Seðlabankans, heldur komi til ráðstöfunar hæstv. fjmrh. og verði þar af leiðandi með það farið af ráðdeild og skynsemi.

Vandamálið er þetta: Er það rétt, sem fullyrt hefur verið, að hæstv. fyrrv. ríkisstj. hafi verið í raun og veru andvíg þessari framkvæmd? Gert um það samþykktir jafnvel að hún væri á móti því? En hæstv. viðskrh. fyrrv. ríkisstj. hafi upp á sitt eindæmi með gerræði ekki farið eftir ákvörðunum ríkisstj.? Þetta er spurning sem ég óska eftir að fá svör við hér. Það er ekki einasta að Alþingi sé niðursetningur í þessu stjórnkerfi, eins og upplýst er fyrir löngu. Er þá svo komið líka að einstakir ráðh. fari eftir ordrum og fyrirmælum einhverra mandarína úti í bæ, Seðlabanka eða annars staðar, í blóra við einróma samþykktir ríkisstjórna? Þetta er mjög alvarlegt mál, þetta ber að fá upplýst. Ég óska eftir því að þetta mál verði upplýst.

Ég þarf ekki að hafa um þetta fleiri orð. Ég lýsi yfir stuðningi við till., ég lýsi yfir stuðningi við skoðanir hæstv. fjmrh. í þessu máli. Ég beini því til hans eindregið að hann taki þetta mál upp á landsfundi þess flokks sem settur verður hér síðar í dag og hefur starfað, sem kunnugt er, af miklum þrótti undir kjörorðinu: Báknið burt. Ég treysti því að þar muni málið verða tekið upp og ég efa ekki að þar verður mikinn stuðning við þennan málflutning að finna.

Að því er varðar síðan minni háttar spurningar um hvað eigi að gera við besta bókasafn landsins, sem er bókasafn Seðlabankans, þá vil ég persónulega eindregið mælast til þess að það verði látið í friði. Þetta er besta bókasafn landsins, þarna geta fræðimenn fengið grið.

Þetta er frábærlega vel skipulagt bókasafn, mjög vel stjórnað og ég skil það vel að Seðlabankastjórar hafi fundið hjá sér hvöt til þess að gefa eitthvað fyrir sálu sinni. Þetta var eitthvað það besta sem þeir gátu gert.

En ef Alþingi gæti hins vegar orðið sammála um það að leggja niður Framkvæmdastofnun ríkisins, sem er líka mjög skynsamleg tillaga, og rýma hana úr glerhöllinni, þá mætti gera tvennt: þ.e. flytja Seðlabankann í glerhöll Framkvæmdastofnunar ríkisins, hún rúmar mjög vel þá starfsemi. Ef menn vilja ekki láta bókasafn Seðlabankans í friði, sem fræðimenn í landinu mundu mjög gjarnan óska eftir, þá væri að vísu hægt að flytja það hugsanlega inn í þjóðarbókhlöðu, þá að því tilskildu að þeir fjármunir, sem ella mundu fara í þetta peningamusteri, væru þá settir í Þjóðarbókhlöðuna, þar sem þeir væru vel geymdir og væru arðbær fjárfesting.