13.04.1984
Neðri deild: 74. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4757 í B-deild Alþingistíðinda. (4173)
222. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins
Frsm. meiri hl. (Stefán Guðmundsson):
Virðulegi forseti. Ég tala hér fyrir nál. á þskj. 637 um frv. til l. um breyt. á lögum nr. 51 28. apríl 1983, um Aflatryggingasjóð sjávarútvegsins, frá meiri hl. sjútvn. Í nál. segir:
„Nefndin hefur fjallað um málið, en varð ekki sammála um afgreiðslu þess. Meiri hl. n. leggur til að frv: verði samþykkt óbreytt.
Á fund nefndarinnar komu fulltrúar frá Sjómannasambandi, Landssambandi ísl. útvegsmanna, svo og fiskimálastjóri sem jafnframt er formaður stjórnar Aflatryggingasjóðs.
Frv. þetta var lagt fram vegna þeirrar ákvörðunar um fiskverð sem tekin var 1. febr. s. l., en þar var gert ráð fyrir þeim breytingum á lögum um Aflatryggingasjóð sem frv. fjallar um.“
Undir meirihlutaálitið skrifa Stefán Guðmundsson, Björn Dagbjartsson, Jón Magnússon og Níels Á. Lund.