13.04.1984
Neðri deild: 74. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4766 í B-deild Alþingistíðinda. (4176)
222. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins
Pétur Sigurðsson:
Virðulegi forseti. Það er að sjálfsögðu ekki ætlan þeirra manna sem töluðu hér s. l. föstudag að tefja þessa umr. Sást það kannske best s. l. mánudag þegar við hjálpuðum til að koma málinu til nefndar í veikindafjarveru hæstv. ráðh. jafnvel þótt einn af hæstv. ráðh. hefði orð á því að óeðlilegt væri að taka málið fyrir í fjarveru hans. Við töldum það hins vegar sjálfsagt til þess að nefndin fengi málið til meðferðar. En hverju breytti það að koma málinu til nefndar á föstudegi? Þingnefndir starfa yfirleitt ekki á laugardögum og sunnudögum, það var ekki heldur beðið um það, enda sjáum við það á þessari einstöku meðferð nefndarinnar. Hún kemur ekki saman til fundar fyrr en á miðvikudagsmorgni og hespar þessu stóra máli svo af á hálftíma og leyfir sér m. a. s. að svara ekki þeim fsp. sem fram komu í deildinni í umr. s. l. föstudag eða mánudag, lætur þær sem vind um eyru þjóta. Það er því rangt hjá ráðh. þegar hann talar um að umr. á föstudag hafi verið til þess að tefja málið. Það var verið að benda honum sérstaklega á þá hættu sem stafaði af því að þjösna því áfram á þann veg sem átti að gera hér í deildinni. Þá stóð yfir fundur í sambandsstjórn Sjómannasambands Íslands sem endaði með því að óskað var eftir því við aðildarfélögin að leita verkfallsheimildar á fiskiskipaflotanum. Ef hæstv. sjútvrh. álítur að slíkur þjösnaskapur með þetta viðkvæma mál sjómanna sé til þess fallinn að greiða fyrir sáttaumleitunum á milli útgerðarmanna og sjómanna, þá fer hann villur vegar. Hann á margt eftir ólært í samskiptum útgerðarmanna og sjómanna ef hann heldur það.
Það kann að vera rétt hjá hæstv. ráðh. að þessi hluti útflutningsgjalds sem fer til Aflatryggingasjóðs hafi ekki komið til skipta. En það breytir ekki því meginmáli að Aflatryggingasjóður er tryggingarsjóður beggja þessara aðila, útgerðarmanna og sjómanna. Ég vek sérstaklega athygli ykkar, hv. þm. sem komið utan af landi, frá Vesturlandi, Norðurl. v., Norðurl. e. og Austfjörðum, a. m. k. fyrir austan og norðan Hornafjörð, á því að í fyrstu línu ákvæða til bráðabirgða I í 1. gr. þess frv. sem við ræðum segir: „Á árinu 1984 skal þó í stað bótagreiðslna úr hinni almennu deild sjóðsins“ gera sem þar segir. Þetta þýðir auðvitað að það er verið að útiloka möguleikann á að veita slíkar bætur á þessu ári. Ég veit ekki hvort þessir hv. þm. hafa gert sér ljóst að þetta gæti kannske haft einhver áhrif á atvinnuástandið í kjördæmum þeirra. Hvað gerði þetta gjald á sínum tíma? Við vitum að vísu að hluti þess var misnotaður. En það mátti gera betrumbætur á lögunum og framkvæmd tryggingabótanna úr sjóðnum til að koma í veg fyrir það svindl. Það þurfti ekki algerlega að loka fyrir þessar bótagreiðslur því að þær gerðu stórmikið gagn víðs vegar um land og hafa gert fram að þessu, þar til hæstv. ríkisstj. ákveður nú að þær skuli felldar út gildi á þessu ári a. m. k.
Við 1. umr. málsins s. l. föstudag benti ég á aðdraganda þessa máls, að við fiskverðsákvörðun í Verðlagsráði sjávarútvegsins eru það fiskkaupendur, verkendur sjávarafla, með útgerðarmönnum sem ákveða að taka þetta fé og verja því á þennan hátt og þeir fá á einhvern hátt út úr þessum æðsta dómstól um verðlag sjávarafurða tryggingu fyrir því frá ríkisstj. að þetta skuli verða löghelgað hér á Alþingi. Þetta mun náttúrlega, þegar búið er að samþykkja þessi lög, verða fyrsta sporið sem stigið verður til þess að fella niður það kerfi sem við búum við um Verðlagsráð sjávarútvegsins. Þetta verður einn nagli í þá kistu. Ég leyfi mér að halda því fram. Ég benti í fyrsta lagi á hve óeðlileg þessi ákvörðun væri, þegar sameiginleg eign sjómanna og útgerðarmanna væri tekin og henni ráðstafað af þessum tveim aðilum. Það jaðraði við siðleysi. Ég benti á þau fjögur meginatriði sem hæstv. sjútvrh. færði fram til réttlætingar þessu frv. Ég benti á að þrjú af þessum meginatriðum væru nú komin á það stig að allar forsendur fyrir málinu hefðu gerbreyst. Helstu blóm ríkisstj. hafa verið þessi þrjú atriði: verðbólgulækkunin, lækkun fjármagnskostnaðar og aflaskortur. Það eina sem eftir stendur og er vissulega alstærst og alvarlegast er auðvitað aflaskorturinn. Það var líka bent á það í þeim umr. að kvótinn væri búinn hjá mörgum skipum og þá væri hægt að ná fram sparnaði hjá þessum skipum sem eru búin með kvótann, ná því fram sem að var stefnt með kvótanum og þessum aðgerðum öllum: að leg ja skipunum. Að því var stefnt.
Ég vitnaði hér í álit stjórnar Fiskifélags Íslands sem barst hv. Ed. Það var óskað eftir því hér í Nd. við 1. umr. málsins að leitað væri skriflegrar umsagnar stjórnar Aflatryggingasjóðs. Það var eitt af því sem hv. meiri hl. sjútvn. þessarar deildar gat ekki fengið sig til að gera þó að beinar óskir kæmu fram um það. Ég hef samt sem áður aflað mér álits frá nokkrum stjórnarmönnum og ætla að'lesa það hér á eftir, með leyfi forseta, til þess að það birtist í þingtíðindum. Og það var ekkert erfitt að ná til þeirra manna þó að þeir séu búsettir úti á landi. Það er nefnilega nokkuð um liðið síðan þeir fundu upp símann á Íslandi, herra þm. Stefán Guðmundsson.
Ég hef margoft haft orð á því í sambandi við þetta frv. að ég álít eins og fleiri að þetta sé undanfari þess að Aflatryggingasjóður sé endanlega eyðilagður. Og ég ber líka ótta í brjósti um það, vegna þess að ekki er vitað hvað við tekur nema óreiða og vitleysa, að Verðlagsráð sjávarútvegsins verði eyðilagt með þessu líka. Þetta verði ein ástæðan til þess að það klofni og fari í tóma vitleysu. (Gripið fram í.) Það er rétt, hæstv. iðnrh., enda selja okkar skip erlendis. Við höfum ekki enn þá fengið skýringar á því hvaða verkanir hin mikla saltfiskhækkun hefur á stöðu þessa sjóðs. Er það rétt að þessi 7% hækkun á erlendum mörkuðum geti þýtt með ríkisframlagi til þessa sjóðs um 120 millj. kr. tekjur? Um þetta er verið að tala hér manna í milli. (Gripið fram í: Ekki á einu ári.) 87 millj. án ríkisframlags. Það komu ekki nein svör við þessum spurningum.
Í Ed. fengust ekki nein svör við spurningum sem þar voru bornar fram um það hvernig grásleppa og úthafsrækja koma inn í þetta mál. Þessar fisktegundir falla ekki undir kvótakerfi. Eru 4 prósentin færð til þessara tegunda líka eða eiga þær að falla undir gömlu regluna, sem gildir í sjóðnum, sem ekki má vinna eftir lengur? Þessi sjóður studdi á sínum tíma ýmsar tilraunaveiðar. Það má ekki lengur. Það er búið að klippa á það með þessu frv. sem við erum að ræða hér.
Ég lofaði hv. forseta því að verða ekki langorður. Samt sem áður vona ég að forseti sýni mér þá biðlund að lofa mér að lesa þessa stuttu grg. frá þremur stjórnarmönnum Aflatryggingasjóðs. Það eru fulltrúar Sjómannasambandsins, Farmannasambandsins og Alþýðusambandsins. Hún er á þessa leið:
„Um 1. lið:
Við viljum vekja athygli á að skv. 3. gr. laga um sjóðinn segir: Hlutverk almennu deildar sjóðsins er að bæta aflahlut skips og áhafnar þegar almennan aflabrest ber að höndum eða brýna nauðsyn ber til að draga úr sókn til verndar mikilvægum nytjastofnum. Við teljum að frv. gangi þvert á megintilgang hinnar almennu deildar sjóðsins, þar sem það er meginskylda deildarinnar að greiða bætur skipi og áhöfn þegar almennur aflabrestur verður eða þegar dregið er úr veiðum til verndar mikilvægum nytjastofnum. Í grg. með frv. er ekkert sem getur rökstutt þessa breytingu á lögunum og ekkert sem ekki fellur undir 3. gr. laganna eins og þau eru.
Frv. gerir hins vegar ráð fyrir því að megintilgangur Aflatryggingasjóðs sé brotinn með því að færa fé frá almennu deildinni til Stofnfjársjóðs fiskiskipa og láta hann greiða þeim skipum, sem mest aflaverðmæti fá, hæstar bætur og svipta áhafnir öllum bótum. Við teljum að nú sannist best að núgildandi lög nái fullkomlega yfir þann vanda sem nú steðjar að útgerðarmönnum og sjómönnum og að þessum fjármunum, sem eru sameign útgerðarmanna og sjómanna, verði best varið skv. núgildandi lögum. Er það í fullu samræmi við tilgang sjóðsins“.
Og um 2. lið frv., ákvæði til bráðabirgða II: „Samkvæmt þessum lið er gert ráð fyrir að framlag ríkisins, 18.5 millj. kr., skuli renna beint til áhafnadeildar sjóðsins til þess að deildin geti aukið greiðslur fæðispeninga og greitt úr fjárhagsörðugleikum sjómanna. Við bendum á að skerðing fæðispeninga skv. brbl. frá í maí 1983 hefur numið um 18 millj. kr. og er því nánast sama upphæð og ráð er gert fyrir í frv., þannig að þó að ríkisframlagið renni allt til áhafnadeildarinnar gerði það ekki betur en að leiðrétta þá skerðingu sem varð á síðasta ári, hvað þá til þess að bæta sjómönnum þá skerðingu sem þeir verða fyrir vegna aflasamdráttar og þeirrar skerðingar sem þeir verða fyrir vegna eftirágreiddra opinberra gjalda.“ Ég leyfi mér að koma hér með það innskot að líklega verður engin stétt á landinu jafnilla fyrir barðinu á þessu skattgreiðslufyrirkomulagi og þeir, vegna þess hve afli er misjafn frá ári til árs, og kannske hefur sjaldan lækkað meira á milli ára en nú.
Ég held áfram með álit þeirra: „Við viljum enn fremur benda á að skv. lögum nr. 51 frá 1983 á framlag ríkisins að nema 40% af tekjum almennu deildar sjóðsins. En síðan 1980 hefur ríkið skert þessar greiðslur: Árið 1980 um 5.6–5.8 millj., 1981 um 7.8 millj., 1982 um 8.5 millj. tæpar, 1983 um 21.8 millj tæpar og 1984 um 29.4 millj. Tvær síðustu tölurnar eru að nokkru áætlaðar. Samtals gerir þetta u. þ. b. 73.2 millj. kr.
Að mati endurskoðenda sjóðsins lætur nærri að þessar 73.2 millj. kr. framreiknaðar miðað við byggingarvísitölu jafngildi 121.6 millj. kr. Við bendum á að ef ríkið skilaði þessum peningum og þeir rynnu til áhafnadeildarinnar mundi skapast svigrúm til að greiða að einhverju leyti úr fyrirsjáanlegum fjárhagserfiðleikum sjómanna, t. d. með niðurgreiðslu á tekjuskatti frá síðasta ári.
Við sem stjórnarmenn lýsum okkur mótfallna þessu frv. og teljum að þessir fjármunir eigi alls ekki að renna til Stofnfjársjóðs fiskiskipa sem hefur skv. lögum allt annan tilgang. Við undirritaðir fulltrúar sjómanna í sjóðstjórn teljum fráleitt að afgreiða eigi breytingar á lögum um Aflatryggingasjóð án þess að leita álits sjóðstjórnarinnar.“
Ég leyfi mér að fullyrða, hv. forseti, að ef leitað hefði verið til fleiri aðila úr stjórn þessa sjóðs, þá hefðu þeir tekið undir þetta álit og skrifað undir með fulltrúum sjómanna.
Ég skýrði frá því í ræðu minni s. l. föstudag við 1. umr. málsins að ég hefði talið það drengskaparverk af hæstv. ríkisstj. ef hún hefði notað þetta tækifæri nú til að koma á móti og leysa það stórkostlega vandamál sem hæstv. sjútvrh. talaði um hér við 1. umr., lífeyrissjóðsmál sjómanna. Það hefði mátt gera í góðri samvinnu við sjómannastéttina og leysa kannske samningamálin og yfirvofandi verkföll um leið. En til þess gefst enginn kostur. Það gefst ekki einu sinni kostur á því að vinna upp brtt. við þetta frv. í þá átt.
Ég hef samt sem áður, hv. forseti, leitast við ásamt hv. þm. Karvel Pálmasyni að ganga ekki lengra en efni standa til, en með tilliti til hinna breyttu forsendna leggjum við fram varabrtt. við till. minni hl. sjútvn. þess efnis að niðurlag fyrri málsgr. ákvæðis til bráðabirgða hljóði svo: „og komi þær til hlutaskipta sem annar afli á viðkomandi skip frá og með 1. júní 1984“, en frá og með þeim tíma á einmitt að ákveða nýtt fiskverð.
Ég óska eftir því, hv. forseti, að leitað verði afbrigða fyrir þessari skriflegu brtt.