13.04.1984
Neðri deild: 74. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4772 í B-deild Alþingistíðinda. (4181)
149. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Frsm. (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. félmn. um frv. til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Skv. ákvæðum gildandi laga um tekjustofna sveitarfélaga skulu fjárhæðir í 26. gr. laganna breytast í samræmi við skattvísitölu eins og hún er á hverjum tíma.
Nú hagar svo til að engin skattvísitala hefur verið ákveðin fyrir þetta ár og verður hún skv. nýjum lögum fyrst sett í fjárlög fyrir árið 1985. Með hliðsjón af því er nauðsynlegt að breyta fjárhæðum 26. gr. gildandi laga um tekjustofna sveitarfélaga á þann veg að ákvarðaðar verði nýjar grunnfjárhæðir í nýjum krónum í stað gildandi fjárhæða, sem verið hafa í gömlum krónum, og með hliðsjón af því, sem fram hefur komið, að skattvísitala hefði átt að hækka skv. gildandi lögum um 54%. Frv. gerir ráð fyrir þessum breytingum og félmn. er sammála um að mæla með að frv. verði þannig samþykkt.
Jafnframt hefur nefndin fjallað um viðbótarbreytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og leggur samhljóða til að aftan við 4. málsgr. 23. gr. laganna bætist svohljóðandi ákvæði:
„Hafi eftirlaun eða launatekjur skert tekjutryggingu almannatrygginga hjá elli- eða örorkulífeyrisþega skal enn fremur draga frá útsvarsskyldum tekjum viðbótarfjárhæð sem svarar til þeirrar skerðingar.“
Nefndin er sammála um að mæla með þessari viðbótarbreytingu og leggur til að frv. verði samþykkt við svo búið ásamt með þessari breytingu.