03.11.1983
Sameinað þing: 13. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 572 í B-deild Alþingistíðinda. (419)
48. mál, stöðvun framkvæmda við byggingu Seðlabanka Íslands
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Herra forseti. Ég taldi rétt að nota mér þann rétt minn sem ráðh. að taka til máls strax á eftir hv. 3. þm. Reykv., svo ranglega sem hann túlkar ummæli mín og eins tortryggileg og hann er að gera ummæli samráðherra minna, bæði forsrh. og félmrh.
Það hefur ekki komið hér á dagskrá, hvorki frá mér né neinum öðrum, að engir peningar séu til í þennan málaflokk, sem eru húsnæðismálin. Og að sjálfsögðu verða þeir peningar, sem við höfum aðgang að, fyrst og fremst notaðir til þess að standa fyllilega við þau loforð sem gefin hafa verið um fjárveitingar til þeirra aðila sem hv. 3. þm. Reykv. gat um. Það sem ég hef undirstrikað í umr. um húsnæðismálin og fjármálin og sölu ríkisskuldabréfa er að nýbyggingarnar verða að þola tafir hjá einstaklingum, náist ekki fram áform okkar um sölu ríkisskuldabréfa, á nákvæmlega sama hátt og það eru nýbyggingar, sem eru stöðvaðar á vegum þess opinbera, en reynt að klára það sem er í byggingu.
En ég vil undirstrika það að ummæli hv. 3. þm. Reykv. eru rangtúlkun á því sem ég hef sagt. Og ég vil undirstrika það líka að loforð ríkisstj. eru loforð forsrh., eða túlkuð af forsrh. og félmrh., og við þau verður fyllilega staðið.