13.04.1984
Neðri deild: 75. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4783 í B-deild Alþingistíðinda. (4201)

222. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins

Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):

Virðulegi forseti. Það liggur ekkert annað fyrir en það að grásleppuveiði og úthafsrækjuveiði verður ekki meðhöndluð með öðrum hætti en aðrar veiðar, enda get ég ekki séð að nein ástæða sé til að meðhöndla þær veiðar með öðrum hætti. Þessar veiðar eru stundaðar af skipum sem stunda ýmsar aðrar veiðar og jafnvel þótt veiðar á þessum tegundum séu utan kvóta þá eru ýmsir aðrir stofnar einnig utan kvóta, eins og skarkoli, langa og keila, svo eitthvað sé nefnt. Ég sé ekki ástæðu til að það sé meðhöndlað með neinum öðrum hætti en þeir fiskstofnar sem falla undir kvótaregluna.