03.11.1983
Sameinað þing: 13. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 576 í B-deild Alþingistíðinda. (425)

48. mál, stöðvun framkvæmda við byggingu Seðlabanka Íslands

Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Ég er hérna enn þá, enda þótt ég hafi ekki svarað fsp. hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur, 2. landsk. þm., einfaldlega vegna þess að þær upplýsingar hafði ég ekki hér með mér. Átti ekki von á því að um slíkt yrði spurt, e.t.v. ekki möguleiki á því að fá þær sem slíkar, en sjálfsagt að athuga það eins og annað í þessu máli. Í framhaldi af því sem hv. 5. þm. Vestf. sagði þá kom hér fram í fsp. á fundi í Sþ. s.l. þriðjudag að í framhaldi af þeim verkþáttum sem nú væri unnið að, uppsteypu kjallara og jarðhæðar, hefði verið samið við núverandi verktaka frá útboði í febrúar um að ljúka á næsta ári uppsteypu alls hússins og smíði þaka að hluta. Kostnaður við þetta, sem þar var frá skýrt, var 19.8 millj. á verðlagi 1. okt. s.l.