25.04.1984
Efri deild: 84. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4856 í B-deild Alþingistíðinda. (4271)
182. mál, umferðarlög
Valdimar Indriðason:
Herra forseti. Það er varðandi ljósatímann. Flm. frv. hafa breytt því þannig að lögin taka ekki gildi 1. júlí heldur 1. sept., þannig að það er þó frestun í eitt sumar, ef þessi brtt. verður samþykkt. Sumarið 1985 kemur eftir 1984 og þá eiga lögin að taka gildi þannig að ég sé ekki ástæðu til að hverfa frá minni till. Mín till. gerir ráð fyrir því að tímabilið 15. maí til 1. sept. séu ekki höfð uppi ljós. Þetta er því nákvæmlega sama og brtt. gerir ráð fyrir, nema ég geri ráð fyrir að það komi annað ár eftir 1984, þannig að það verði þá að breytast þá. Þess vegna held ég mig við mína fyrri brtt. um það að sú breyting sem þarna er lögð til verði gerð á gildandi umferðarlögum.