25.04.1984
Neðri deild: 76. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4875 í B-deild Alþingistíðinda. (4290)

204. mál, Ljósmæðraskóli Íslands

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Virðulegi forseti. Ég hélt að hv. þm. þyrftu ekki að spyrja um barnadauða hér miðað við nágrannalöndin. Það hefur svo oft komið fram að við ásamt Svíum erum með minnstan barnadauða og þar hefur þróun verið í þessa átt svoleiðis að það er kannske meira vegna þingtíðinda að ég svara þessu en að bein þörf sé fyrir það.

Ég tók það fram í minni ræðu í dag að það væru mjög skiptar skoðanir um þær kröfur sem gerðar væru til hjúkrunarnáms og það er auðvitað það sem veltur á mestu í þessu sambandi. Það er ákaflega mikil viðkvæmni á milli heilbrigðisstétta í landinu. Allar eru þær að verja starfsheiti sitt, starfsskilyrði og störf og eru mjög viðkvæmar fyrir því þegar ein stéttin virðist fara eitthvað lítillega inn á störf annarrar stéttar eins og gerist og gengur. Þetta frv. er upprunalega fyrst og fremst samið að beiðni Ljósmæðrafélagsins og fyrst og fremst af þeim sökum sem ég sagði frá hér í dag hefur leikið vafi á undir hvaða rn. þessi litli skóli ætti að heyra. Ég gaf á því skýringu.

Ég hef mína persónulegu skoðun í sambandi við hjúkrunarnámið. Með þessu háskólanámi eru hér gerðar strangari og stærri kröfur en í nokkru öðru landi að Finnlandi undanskildu. Einnig má nefna Bandaríkin en þó er stúdentsnámið þar með öðrum hætti en í flestum Evrópuríkjum. Aðrar þjóðir halda sig við svipað kerfi og hér hefur verið en aftur hefur verið um að ræða sérnám fyrir ýmsa sérfræði á sviði hjúkrunar. Ég hefði persónulega talið að þetta hefði átt að vera hér áfram með líkum hætti en sérnámið aukið. En þetta heyrir undir annað rn. Það mætti segja mér að t. d. nám sjúkraliða ætti eftir að breytast í kjölfar þessa.

Þetta kemur allt til með að kosta peninga og það er rétt hjá 5. þm. Vestfirðinga að mennta- og heilbrigðiskerfið er dýrt. Hér hefur verið flutt frv. sem Ljósmæðrafélagið stendur að. Ákveðnar breytingar voru gerðar á því að beiðni þess félags í Ed. sem þm. þar tóku tillit til. Að öðru leyti tel ég ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um þetta mál.