26.04.1984
Sameinað þing: 84. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4928 í B-deild Alþingistíðinda. (4336)

230. mál, kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd

Flm. (Steingrímur J. Sigfússon):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd sem ég flyt ásamt hv. þm. Guðmundi Einarssyni og Kristínu Halldórsdóttur. Till. er 230. mál Sþ., er á þskj. 402 og hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að vinna í samráði við ríkisstjórnir annarra Norðurlanda að yfirlýsingu um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd. Leitast skal við að tryggja slíka yfirlýsingu með bindandi samningum, grundvölluðum á alþjóðarétti og viðurkenndum af Sameinuðu þjóðunum.“

Í stuttri grg. er sagt frá aðdraganda að því samstarfi og samkomulagi norrænna friðarhreyfinga sem er undirrótin að tillöguflutningi þessum. Þar segir, með leyfi forseta:

„Barátta fyrir kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum hefur lengi verið á dagskrá norrænna friðarsinna. Framan af voru hugmyndir manna um stærð svæðisins og þær reglur, sem þar skyldu gilda, allmismunandi. Sumir vildu t. d. að aðeins skandinavísku löndin yrðu innan svæðisins en aðrir vildu að það yrðu Norðurlöndin öll.

Árið 1982 tóku friðarhreyfingar á Norðurlöndum að samræma hugmyndir sínar í þessu efni og héldu í því skyni nokkra samráðsfundi. Samtök herstöðvaandstæðinga sendu fulltrúa á þessa fundi fyrir Íslands hönd. Síðasti samráðsfundurinn var haldinn í Norræna húsinu í Reykjavík 23.–24. apríl 1983 og þá voru endanlega samþykktar samræmdar hugmyndir norrænna friðarhreyfinga um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum. Samþykkt þessi er tímamótaviðburður sem vafalítið á eftir að hafa áhrif á alla friðarbaráttu í þessum heimshluta. Ef vel tekst til verður þetta fyrsta skref Norðurlandanna til myndunar friðarbandatags sem verða mun fordæmi um heim allan í baráttu mannkyns gegn örvita vígbúnaðaræði og kjarnorkuvopnakapphlaupi.

Samþykkt friðarhreyfinga á Norðurlöndunum um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd, sem undirrituð var á fundi þeirra í Norræna húsinu í Reykjavík 23.–24. apríl árið 1983, er prentuð sem fskj. með þessari till. Þar er að finna meginatriði till. ásamt með grg. þar sem m. a. er skilgreint hvað átt er við með „kjarnorkuvopnum“ og „kjarnorkuvopnatausum svæðum“.“

Tvenns konar meginsjónarmið eru uppi í þeirri viðleitni að hindra að stríð brjótist út. Annars vegar eru hugmyndir um ógnarjafnvægi lögð til grundvallar, uppbygging nægilega mikils vígbúnaðar til að hindra andstæðinginn í að reyna árás. Hins vegar er gert ráð fyrir samkomulagi. Með alþjóðlegum samningum og nýjum samstarfsformum má skipa svo málum að ríki leysi ágreiningsmál sín án þess að beita vopnavaldi.

Frá lokum seinni heimsstyrjaldar hefur ógnarjafnvægið verið haft að leiðarljósi. Afleiðingin hefur orðið síaukinn vígbúnaður og miklar efnahagslegar fórnir fyrir allan heim. Nú þegar svo er komið að sjálf tilvist vopnanna er stærsta ógnunin við tilveru okkar gerast þær raddir æ háværari sem krefjast nýrrar stefnu í öryggismálum. Till. um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd er till. um sjálfstætt frumkvæði Norðurlandaþjóða gegn þeirri ógn sem stafar af vitfirrtu kjarnorkuvopnakapphlaupi.

Í samþykkt sex óháðra friðarhreyfinga á Norðurlöndum, frá Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Íslandi, Noregi og Svíþjóð, sem birt er sem fskj. með till. þessari eins og áður sagði, eru meginatriði till. um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd dregin saman. Þar segir, með leyfi forseta:

„1. Kjarnorkuvopnalaust svæði er afmarkað svæði sem er yfirlýst kjarnorkuvopnalaust með bindandi samningum, grundvölluðum á alþjóðarétti og viðurkenndum af Sameinuðu þjóðunum.

2. Markmið með kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum er að auka öryggi með því að koma í veg fyrir kjarnorkuvígbúnað á yfirráðasvæði Norðurlanda í framtíðinni. Ákvörðun um slíkt svæði er fyrst og fremst sjálfstæð aðgerð í þágu slökunar og afvopnunar. Henni er ætlað að vera fordæmi um nýja skipan öryggismála sem markaði stefnuna til kjarnorkuvopnalausrar Evrópu. Markmiðið er heimur án kjarnorkuvopna.

3. Umfang svæðisins. Fyrirhugað er að í upphafi nái svæðið til Danmerkur, Finnlands, Færeyja, Íslands, Noregs og Svíþjóðar og að auki til þeirra svæða í lofti og á legi sem þessi ríki hafa lögsögu yfir skv. alþjóðareglum. Kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum þarf að skipuleggja þannig að það geti náð til Grænlands þegar og ef grænlenska þjóðin óskar þess.

4. Skilgreining kjarnorkuvopna takmarkast við sérhverja kjarnorkusprengihleðslu án tillits til annarra eiginleika og áætlaðrar notkunar.

5. Skuldbindingar landanna, sem kjarnorkuvopnalausa svæðið nær til, fela í sér:

a) að þau skuli ekki þróa, gera tilraunir með eða framleiða kjarnorkuvopn,

b) að þau skuli ekki verða sér úti um, taka á móti eða hafa yfir kjarnorkuvopnum að ráða,

c) að þau skuli ekki leyfa öðrum ríkjum að flytja inn, koma fyrir eða geyma kjarnorkuvopn innan svæðisins. Að auki skulu þau skuldbinda sig til að taka ekki þátt í þróun, flutningi, æfingum eða notkun kjarnorkuvopna utan svæðisins. Allur flutningur kjarnorkuvopna um svæðið er bannaður nema þegar slíkt er heimilt f bindandi atþjóðasamningum.

6. Skuldbindingar kjarnorkuveldanna. Kjarnorkuveldin skuldbinda sig:

a) til að virða hið kjarnorkuvopnalausa svæði,

b) til að nota ekki kjarnorkuvopn gegn löndum innan svæðisins eða ógna löndum innan svæðisins með kjarnorkuvopnum.

Þetta felur sérstaklega í sér að þau skuli hvorki flytja kjarnorkuvopn til svæðisins né brjóta landhelgi eða lofthelgi þess með neins konar farartækjum sem bera kjarnorkuvopn.

7. Viðbótarsamningar. Svæðisríkin geta gert viðbótarsamninga innbyrðis eða við kjarnorkuveldin og jafnvel önnur ríki um málefni sem ekki falla innan skilgreiningarákvæða svæðisins. Mikilvægt atriði er að viðbótarsamningar næðu til „ytri takmarkana“, þ. e. takmörkunar á tilteknum kjarnorkuvopnakerfum utan svæðisins sem álitið er að ógni ríkjum svæðisins sérstaklega. Slíkir viðbótarsamningar gætu náðst samtímis stofnun svæðisins en einnig mætti ná þeim síðar.

8. Fyrirkomulag eftirlits þarf að ákveða til að tryggja að aðilar standi við skuldbindingar sínar. Öll Norðurlöndin hafa undirritað samninginn um bann við útbreiðslu kjarnorkuvopna frá 1968 og eru því undir eftirliti Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar í Vín (AIEA). Þetta eftirlit nær til framleiðslu eigin kjarnorkuvopna.

Með stofnun kjarnorkuvopnalauss svæðis á Norðurlöndum verður einnig nauðsynlegt að fylgjast með að staðið sé við bann við útvegun kjarnorkuvopna og bann við að öðrum ríkjum sé leyft að koma kjarnorkuvopnum fyrir innan svæðisins. Þetta eftirlit tekur til landssvæða sem lúta lögsögu Norðurlanda og verður í grundvallaratriðum að vera á ábyrgð svæðisríkjanna sem þau taka á sig sameiginlega. Raunhæft gæti verið að stofna sérstaka norræna fastanefnd til eftirlits og yrði hún tengd Sameinuðu þjóðunum.

Viðbótarsamningar um takmarkanir utan svæðisins horfa nokkuð öðruvísi við þar eð þeir taka til umsvifa kjarnorkuveldanna á svæðum utan lögsögu svæðisríkjanna. Eftirlit með slíkum samningum krefst þátttöku kjarnorkuveldanna.

9. Stofnun svæðisins er sjálfstætt norrænt frumkvæði. Kjarnorkuvopnalaust svæði telst stofnað þegar tryggt hefur verið með samningi milli svæðisríkjanna að þau séu algerlega laus við kjarnorkuvopn og þessi samningur ásamt hugsanlegum viðbótarsamningum hefur verið kynntur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.

10. Frekari útvíkkun svæðisins verður tryggð með því að svæðisríkin skuldbindi sig til þess að vinna ötullega að því að stækka svæðið, þróa ákvæði samninganna og auka öryggi á því. Til þessa verði komið á fót nauðsynlegum stofnunum.“

Í ítarlegri grg. með samþykkt samráðsfunda friðarhreyfinga á Norðurlöndum eru síðan þessi meginatriði till. útskýrð ítarlega hvert fyrir sig og vísast til þess fyrir þá sem afla vilja sér frekari fróðleiks um málið.

Það er að mati þeirra sem til þekkja mjög mikilvægt að við Íslendingar séum með, séum samferða frá upphafi í umr. og aðgerðum er varða kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd svo friðlýsing hinna Norðurlandanna verði ekki til að auka þrýstinginn á okkur að taka við slíkum vopnum.

Í þessu sambandi er rétt að minnast þess að umr. eru á allt öðru stigi í nágrannalöndunum en hér. Það er ríkisstjórnarstefna í Svíþjóð og Finnlandi að stofna kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum og það er á stefnuskrá stærstu stjórnmálaflokka í Noregi og Danmörku að stofna slíkt svæði. Til viðbótar hefur færeyska þjóðþingið nýlega samþykkt einróma kjarnorkufriðlýsingu eyjanna og hafsvæðisins umhverfis þær.

Þá má nefna að hugmyndir um kjarnorkuvopnalaus svæði eru víðar í deiglunni, svo sem á Balkanskaga og í Benelux-löndunum og víðar. Enginn vafi er á því að frumkvæði Norðurlanda hefði góð áhrif og mundi örva aðra til dáða í þessum efnum.

Því er oft haldið fram að tillöguflutningur af því tagi sem hér um ræðir sé óþarfur vegna þess að engin kjarnorkuvopn séu á Norðurlöndum. Hér er ruglað saman tvennu ólíku. Annars vegar að kjarnorkuvopn eru að sögn ekki geymd á Norðurlöndum að staðaldri og hins vegar því að skuldbinda sig til að nota hvorki, geyma né leyfa flutning á kjarnorkuvopnum á norrænu landi, afla þeirri skuldbindingu viðurkenningar og vinna að því að stækka slíkt svæði með endanlega kjarnorkuáætlun sem takmark. Ef Norðurlöndin eru kjarnorkuvopnalaus, hvers vegna ekki að afla þeirri staðreynd alþjóðlegrar viðurkenningar?

Sérhver ferð byrjar á fyrsta skrefinu og Norðurlöndin hafa áður lagt mikið af mörkum á alþjóðavettvangi. Slíkt frumkvæði sem hér er um rætt mundi vekja athygli og vera þeim milljónum sem berjast fyrir kjarnorkuafvopnun vítt og breitt um heiminn hvatning. Því verður ekki trúað að óreyndu að Alþingi vilji stól Íslands auðan þegar og ef Norðurlandaþjóðirnar setjast á rökstóla um möguleikann á friðlýsingu Norðurlanda fyrir kjarnorkuvopnum.

Herra forseti. Að loknum þessum hluta umr. legg ég til að till. verði vísað til hv. utanrmn.