26.04.1984
Sameinað þing: 84. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4932 í B-deild Alþingistíðinda. (4338)
230. mál, kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég vil ekki láta hjá líða að þakka hv. 1. þm. Norðurl. e. fyrir góðar undirtektir við það mál sem hér er flutt og hv: 4. þm. Norðurl. e. gerði glögga grein fyrir í framsöguræðu áðan.
Eins og kunnugt er er þessi till., sem hér er á dagskrá, 230. mál þingsins, flutt af þm. þriggja stjórnmálasamtaka, þ. e. Alþb., BJ og SK. Við teljum það jákvæð tíðindi að það bætist liðsauki úr öðrum stjórnmálaflokkum til að taka undir þetta mikilsverða mál.
Ég vil leyfa mér, herra forseti, að vekja athygli á að nú er svo háttað samkvæmt lögum landsins að utanrrh., hver sem hann er, getur, ef hann kemst að þeirri niðurstöðu ásamt bandarískum hermálayfirvöldum, samþykkt að hér verði staðsett kjarnorkuvopn hvenær sem er. Það þarf aldrei að bera það undir Alþingi Íslendinga. Varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna er lög í landinu og hann kveður á um það alveg ótvírætt að hérna í landinu skuli hafa þann varnarbúnað sem utanrrh. og Bandaríkjastjórn koma sér saman um að sé nauðsynlegur vegna öryggis Íslands og Norður-Atlantshafsbandalagsins. Af þeim ástæðum er það svo að umræða um Pershing-eldflaugar eins og fram fór á vestur-þýska sambandsþinginu fyrir nokkrum mánuðum færi ekki fram á sama hátt hér á Íslandi, vegna þess að þar er það sambandsþingið sem tekur ákvörðun um málið, en hér væri það á hendi eins manns að ákveða hvort staðsettar væru á Íslandi meðaldrægar eldflaugar. Í rauninni er það svo, sagt í fullri alvöru, að utanrrh. getur, ef það er hans mat og Bandaríkjastjórnar, ákveðið að sett verði upp meðaldræg eldflaug á Austurvelli, ef skipulagsyfirvöld í Reykjavík samþykkja það. Þannig er háttað þessum mikilvægu öryggismálum okkar Íslendinga. Þess vegna er það sem ég hef hreyft þeirri hugmynd hér á Alþingi aftur og aftur hvort ekki væri nauðsynlegt að setja lög sem banna staðsetningu kjarnorkuvopna á Íslandi, í landhelgi Íslands og lofthelgi og flutninga kjarnorkuvopna um landið, lofthelgi þess og landhelgi. Till. sem hér er á dagskrá er hins vegar mikilsverður áfangi ef Alþingi fengist til að samþykkja hana. Ég tel að það sé mjög brýnt að utanrrmn. taki afstöðu til þessarar till. áður en þingið fer heim í vor.
Ég tel að það sé mjög miður að hæstv. utanrrh. skuli ekki vera viðstaddur þegar þessi umr. fer fram. Það er ekki ástæða til að tefja umr. og draga að senda málið til n. þrátt fyrir fjarvistir hans, vegna þess að honum gefst þá kostur á því að fjalla um málið í utanrmn., þar sem hann mætir yfirleitt á fundi, en ég er sannfærður um það, herra forseti, að sú till. sem hér er á ferðinni er eitt stærsta og þýðingarmesta utanríkismálið sem hreyft hefur verið á þessu þingi, og það er brýnt að á því verði tekið af Alþingi af fullum myndugleika.