26.04.1984
Sameinað þing: 84. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4950 í B-deild Alþingistíðinda. (4348)
244. mál, lífeyrisréttindi húsmæðra
Flm. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka jákvæðar undirtektir undir till. mína. Reyndar bjóst ég alltaf við því að henni mundi verða vel tekið. Mér er það sjálfum alveg ljóst að þessi till. er ekki skotheld, það er hægt að hugsa sér einhverja aðra útfærslu en þarna er bent á og ég get vel viðurkennt að henni er í mörgu áfátt. Ég er, eins og ég sagði áðan, opinn fyrir öllum leiðbeiningum til breytinga og er til viðræðna um alls konar breytingar á þessu ef meginhugsunin, eins og hv. þm. Helgi Seljan orðaði það, fær að halda sér.
Það er alveg rétt, sem fram kom hjá hv. þm. Helga Seljan, að það eru þó nokkrir aðrir en þessar húsfreyjur, sem ég leyfi mér að kalla svo, sem standa utan lífeyrisréttinda. Hann taldi upp nokkra sem undir þann flokk falla. Það er rétt að ef að lögum verður nauðsynleg breyting á Lífeyrissjóði bænda og ákaflega réttmæt lagast hagur húsfreyja í sveit nokkuð. Og það er hópur af fólki sem hefur unnið á eigin vegum, smáatvinnurekendur og menn sem hafa skipt um störf og þess háttar sem ekki eiga viðunandi aðstöðu til lífeyris, og öryrkjar líka. Þetta þarf allt saman að takast til íhugunar. Ég var upphaflega að hugsa um að bera fram till. um það fólk sem ekki hefði nú þegar öðlast réttindi til aðildar að lífeyrissjóðum, en ég óttast að það yrði til þess að drepa málinu um of á dreif og skárra væri þá að byrja á þessum stærsta hópi og reyna að aðlaga hina að kerfinu með einhverjum öðrum hætti. Ég óttaðist að ef allir yrðu teknir leystist þetta upp í endalausar vangaveltur um hverjir væru verðugir og hverjir ekki.
Hv. þm. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir spurði áðan nokkurra spurninga. Hún spurði m. a. með hvaða krónum ég ætlaðist til að húsfreyjur, sem ekki þægju formlega laun úr hendi neins atvinnurekanda, borguðu tillag til sjóðsins, eins og ég geri ráð fyrir í till. vegna þess að ég held að það sé ekki raunhæft að ætla ríkissjóði að greiða allt ef ekkert kemur á móti. Það er ósköp falleg og ágæt hugsun og kannske eðlilegt að svona hugmynd komi fram, en ég held að hún sé ekki raunhæf. Ég vil a. m. k. vona að heimavinnandi húsmæður hafi einhver fjárráð, jafnvel þó svo þær þiggi ekki formlega laun. Vafalaust er þröngt í búi hjá einhverjum þeirra, misþröngt þó, en það má kannske segja að með meiri fyrirhyggju gætu þær „forvaltað“ þá peninga sem þær hafa með höndum. Ég er alveg viss um að flestar og ég vil vona allar hafi einhver fjárráð. Þá gætu þær tekið þátt í þessu. Ég reikna með því að ríkið þyrfti alltaf eða a. m. k. um einhvern óákveðinn tíma að leggja svona sjóði til fjármagn, en ég held að það sé nauðsynlegt að búast við því að eitthvað komi á móti frá sjóðfélögum.
Hv. 2. landsk. þm. Jóhanna Sigurðardóttir hefur flutt mál um gagnkvæman makalífeyri. Það er að mínu viti hugmynd sem vel kemur til skoðunar. Hins vegar sýnist mér að hún nægi ekki nema í sumum tilfellum. Og í sumum tilfellum, þar sem maki hefur verulegan lífeyrisrétt eða góðan lífeyrisrétt, gæti það alveg komið til skoðunar hvort ekki er fullnægjandi lausn að skipta þessum lífeyri. En nú hafa ekki allar húsfreyjur átt maka, ekki maka á lífi, ekki endilega maka með réttindum og svo mætti lengi telja. Og út af fyrir sig er það náttúrulega ekki heldur allsherjarlausn að dreifa réttindunum. En í einhverjum tilfellum getur vel verið að það dugi og það megi koma til íhugunar.
Hv. þm. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir drap réttilega á mjög mikið vinnuálag útivinnandi húsmæðra. Ég vil ekki gera lítið úr því. Margar konur sem vinna úti á hinum almenna vinnumarkaði gegna nánast tveimur störfum eða a. m. k. hálfu öðru og þeirra byrði er ekki létt og þeirra vinna er mikil. En þó held ég að þær bjargist fremur lífeyrislega séð en þær sem ekki vinna úti og geta jafnvel unnið tvöfalt starf eða hálft annað starf þó á heimilinu sé. Ég er alveg ósammála hv. þm. Sigríði Dúnu að því leyti að mér finnst að það megi ekki einblína á útivinnandi konur og setja þá hinar hjá. Ég vil að útivinnandi konur hafi sinn rétt. En hinar eru tvímælalaust miklu verr settar þó að þær fyrrnefndu fái ekki nákvæmlega það sem þeim kannske bæri eftir strangasta reikningi fyrir sitt vinnuframlag.
Í þessum umr. kom fram mjög réttmæt og eðlileg ábending frá hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur, þó að það snerti ekki þetta dagskrármál nema óbeint, um sjúkradagpeninga og örorku. Ég var satt að segja mjög undrandi þegar ég áttaði mig á því, og ég viðurkenni að það er ekki mjög langt síðan, hvernig farið er með konur í örorkumálum ef sambýlismaður eða eiginmaður sleppur yfir þetta ákveðna tekjumark. Ég held að það sé annað atriði sem er algerlega óþolandi. Við getum kannske ekki lagað það undir þessum dagskrárlið, en ég er hjartanlega sammála Jóhönnu um að það er atriði sem þarf að laga. Eins er þetta misræmi með sjúkradagpeninga og því um líkt.
Hv. þm. lá mér nokkuð á hálsi fyrir að tala um húsfreyjur. Það getur vel verið að þetta sé gamaldags hugsanagangur hjá mér og gamaldags málfar að tala um húsfreyjur, en ég hygg að það sé í færri tilfellum sem húsbændur hafi ekki farið út á vinnumarkaðinn og átt fremur möguleika á að afla sér lífeyrissjóðsréttinda.
Ég viðurkenni að ég hef ekki um það nákvæma hugmynd hvað þetta kostar. Mér er alveg ljóst að þarna er um töluvert fé að ræða. Þess vegna held ég að það gangi ekki að ætlast til þess að ríkissjóður reiði það af hendi allt saman til frambúðar. Ég veit ekki einu sinni hvað þær húsfreyjur eru margar sem undir þetta gætu fallið. (Gripið fram í.) Ég ætlaðist til að þeir menn sem settu upp frv. kynntu sér það. En það er vafalaust að þarna er um verulega fjárhæð að ræða. Mér finnst að það sem við verðum að hafa að leiðarljósi, þrátt fyrir að margt af þessu orki einhvers tvímælis, sé það að við getum ekki látið viðgangast lengur, við getum ekki horft þegjandi upp á það og aðgerðalaus að húsmæður, sem leyst hafa sín störf af hendi með mikilli prýði og af hinni mestu snilld og mjög í þágu þjóðfélagsins og gert þetta þjóðfélag ekki síður en aðrir þegnar þess betra, séu settar hjá sjálfsögðum mannréttindum eins og þeim að hafa möguleika á því að eignast nokkurt afkomuöryggi á efri árum. Það má kannske segja að eitt meginkennimark á þjóðfélögum sé það, hvernig það meðhöndlar þá sem hafa lokið sínum starfsdegi. Það er býsna mikill mælikvarði á það á hvaða menningarstigi samfélagið er hvernig það meðhöndlar þá sem borið hafa uppi þjóðfélagið með vinnu sinni í fortíðinni.