13.10.1983
Sameinað þing: 3. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í B-deild Alþingistíðinda. (44)

Umræður utan dagskrár

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Ég get sjálfsagt borið vitni um það hvernig forsetum hverju sinni helst á ráðherrum að sitja fyrir svörum í almennum umr., að ég tali nú ekki um óvæntum umr. utan dagskrár. Ég get borið vitni um þetta af alllangri reynslu sem fyrrv. forseti Nd. Það er vandalaust fyrir mig að rifja upp hvernig ég með öllum ráðum reyndi að halda aftur af þeim og hvernig menn notuðu sér rétt sinn að kallað yrði á ráðh. með því að standa hér tímum saman í ræðustól til lítillar skemmtunar fyrir okkur hv. þm. Ólaf Þ. Þórðarson, skilvísan ritara minn á sinni tíð, þannig að mér er ekki nýtt fyrirbrigði þótt menn vilji nota sér það nú að þannig stóð á fyrir hæstv. fjmrh. að hann hafði fyrir margt löngu lofað að mæta á fundi norður í landi. Erindi eiga menn út á landsbyggðina, einnig mikill vinur hans, hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson á stundum. Ég er ekki að segja, eins og sagt var um hæstv. fjmrh., að hann hafi hlaupið á dyr og þangað. Það má vera að hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson hafi verið rekinn á dyr og þangað vestur í Stykkishólm á sínum tíma, þegar stóð sérstaklega á um atkvæðagreiðslur á hinu háa Alþingi.

En því kemur mér það í hug varðandi hv. 7. þm. Reykv. Guðmund J. Guðmundsson, að hér var farið hörðum orðum um ádeilur hæstv. fjmrh. í garð verkalýðshreyfingarinnar og hneykslast á því, að hann hafi kennt hana við pólitískar tilhneigingar.

Árið 1977–1978 var verkalýðshreyfingunni eða hluta hennar misbeitt í pólitískum tilgangi með hastarlegum hætti, með ólöglegum aðgerðum, sem með þeim hætti var settur fótur fyrir að næðist sá árangur sem unnið hafði verið hörðum höndum að í efnahagsmálum. Menn uppskáru eins og þeir sáðu. Og í framhaldi af því tóku þeir við sem galdurinn höfðu seitt. Og þeir uppskáru eins og þeir sáðu, með þeim hætti að nú á vordögum stóðu menn frammi fyrir meiri vandamálum og ósköpum en menn höfðu áður haft kynni af. Því var það að ég var einn þeirra, sem álitu að Alþingi ætti að koma saman til þess sérstaklega að takast á við vandamálin, sem höfðu hrúgast upp fyrir aðgerðarleysi eða rangar aðgerðir þeirra manna sem setið höfðu að stjórnvöldum þá um langt árabil, og Alþb. var ein meginstoð þeirrar ríkisstj. En um þetta náðist ekki samkomulag eins og raun ber vitni um. Formaður þingflokks Sjálfstfl. minnti á ástæðurnar fyrir því að Alþingi var ekki skyldað að koma saman. Ef samþykkt hefði verið ályktunin, sem borin var fram hér á síðustu dögum Alþingis í fyrra, þá lá það alveg ljóst fyrir að Alþingi hefði komið saman. En þessi ályktun var versluð út úr afgreiðslu á hinu háa Alþingi af Alþb., eins og hv. þm. Ólafur G. Einarsson rakti hér skilvíslega.

Herra forseti. Ég hef litið þannig á að umr. utan dagskrár væri einnig bundin við ákveðið málefni. Ég kannast ekki við annað en að þm., sem óska að taka til máls utan dagskrár, verði að kynna það viðkomandi ráðh. þegar svo stendur á, sem oftast er, að menn eiga erindi við ráðh. þegar þeir biðja um orðið og taka til máls utan dagskrár. Ég kannast ekki við annað en að menn verði — og geri það að jafnaði — að kynna dagskrárefnið. Hér hafa verið kynnt dagskrárefni eftir því sem ég best veit. Það var dagskrárefni um samkomudag Alþingis, umræða um af hvaða ástæðum Alþingi var ekki kvatt saman, þrátt fyrir ítrekaðar kröfur stjórnarandstöðunnar, á vori miðju eða sumri. Að öðru jöfnu eigi hins vegar ekki að hefja almennan eldhúsdag um stjórnmálaviðhorfið þótt gefið sé færi á að ræða einstaka þætti utan dagskrár-sem sjálfsagt er og ég fylgi ákaflega fast eftir að mönnum sé gefinn kostur á því sem oftast, því málfrelsið er það sem við viljum hafa í heiðri. En úr því hæstv. forseti vor hefur ekki litið þannig á í þetta skipti, og mönnum er mikið mál í upphafi þings, þá hef ég svo sem ekkert á móti því að notfæra mér að sviðið er vítt.

Ef ég vík fyrst að þessu langa hléi á störfum Alþingis þá er ýmislegt fróðlegt, sem ég hef hvergi séð koma fram, ef maður athugar fortíðina og ekkert langt aftur í tímann. Ég endurtek þó að ég var þeirrar skoðunar og er enn að það hefði átt að kalla Alþingi saman á vordögum, ný ríkisstj. hefði átt að kynna málefni sín og stefnu og gefa stjórnarandstöðunni færi á því að koma sínum sjónarmiðum að. Og ég er staðráðinn í því að fylgja miklu fastar fram vilja Alþingis en ég hef orðið að þola af hálfu framkvæmdavaldsins á undanförnum árum frá því ég kom á þetta háa Alþingi. Ég er staðráðinn í því að fylgja því miklu fastar fram. Við höfum orðið þess vör lengi að það hafa miklir misbrestir orðið á því og það er ekki að fylgja fram þingræði sem vera ber. Ég gæti enda nefnt ýmis dæmi um það, ekki síst í tíð fyrrv. hæstv. ríkisstj., og er þó margt óviðfelldið að ræða nánar af hennar athöfnum af auðskildum ástæðum, einnig fyrir mig.

Það er kannske of langt aftur í tímann farið að nefna þing 1947–1948, en því lauk og var slitið 24. mars það ár og kemur ekki saman fyrr en 11. okt. um haustið. Nú eru menn að tala um 210 daga og miða þá við þingrofsdag, en varla telja menn í alvöru að hægt hefði verið að kalla saman þing fyrr en eins og viku eftir að kosningar fóru fram. Við hljótum því að miða við 30. apríl eða 1. maí þegar verið er að tala um hið langa þinghlé. En förum skemmra. Hér koma afar athyglisverðar upplýsingar t.a.m. fyrir hv. þm. Jón Baldvin Hannibalsson og fyrir arftaka Einars Olgeirssonar. Það er þingið 1955–1956. Því er nefnilega slitið 28. mars og það kemur ekki saman fyrr en 10. okt. Hvernig stóð nú á þessu? Þegar þetta skeður hafði hvorki meira né minna en Hræðslubandalag verið sett á stofn. Ef ég man rétt, sem ég man, þá hafði verið mynduð ríkisstjórn eftir kosningar þetta ár, en það er ekkert Alþingi kallað saman. Það var ekki að störfum frá því í endaðan mars og fram til 10. okt. Þarna voru feiknalegir lýðræðissinnar á ferðinni, ég nefni sem dæmi Hannibal Valdimarsson og Einar Olgeirsson, þingræðissinnar fram úr öllu hófi, sem maður skyldi halda að hefðu séð fyrir því að lýðræðinu og þingræðinu væri fylgt eftir sem vera ber. Og forsrh. hét þá Hermann Jónasson.

Tökum fleiri dæmi. Þinginu 1960–1961 er slitið 29. mars og það kemur saman 10. okt., þinginu 1963 er slitið 20. apríl og það kemur saman 10. okt., þinginu 1967 er slitið 19. apríl og það kemur saman 10. okt. Árið 1971 er þinginu slitið 7. apríl, og enn eru þar áreiðanlega athyglisverðir atburðir, því er slitið 7. apríl og það kemur saman 11. okt. Og ef ég man rétt þá mun það hafa verið á þessu örlagaári sem ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar var mynduð. (Gripið fram í: 14. júní.) 14. júní, já. Hún hafði að vísu ekki alvarleg viðfangsefni við að fást, eins og sú sem tók við nú, það var öðru nær. Þá voru ástæðurnar í þjóðfélaginu ekki með þeim hætti sem við höfum horft upp á og kynnst nú að undanförnu. Þá var tekið við góðu búi, sest í eitt besta bú sem nokkur ríkisstj. hefur sest í. En allt að einu, þingræðið verður að hafa sinn gang og menn eiga að fá tækifæri til þess, þm. og stjórnarandstaða, að koma sínum skoðunum að. Það hefði kannske verið betra að stjórnarandstaðan hefði komið þeim skoðunum sínum að að ekki væri haldið slíkt uppboðsþing sem þá var gert af þáv. ríkisstj. 1971 sem ásamt síðustu hæstv. ríkisstj. ber höfuðábyrgðina á því ófremdarástandi sem við höfum búið við í efnahagsmálum þegar menn tilkynntu um stórkostlega kaupmáttaraukningu, þegar öllu var sleppt lausu. Og við höfum ekki bitið úr nálinni enn þann dag í dag, þótt menn hafi að vísu haldið þeim mun verr á málum sem lengra hefur liðið frá. Ég get nefnt enn eitt dæmi. Árið 1973 er þingi slitið 18. apríl og það kemur saman 10. okt. Ég minnist þess ekki, a.m.k. í minni tíð, að svo háværar umr. hafi farið fram um langt þinghlé fyrr en nú. Og ég get nefnt, án þess að það skipti höfuðmáli, að 1977 og 1978 er þingi slitið í byrjun maí og ekki kallað saman fyrr en á reglulegum samkomudegi. En eins og ég segi, auðvitað voru ástæður okkar með alvarlegasta móti og alvarlegri tvímælalaust en nokkru sinni áður, og fyrir því var ég þeirrar skoðunar að þing skyldi kallað saman.

En hvaða orð hafði hv. 3. þm. Reykv. um kröfur fyrrv. stjórnarandstöðu um að þing yrði kallað saman í ársbyrjun 1981 og í ágúst 1982? Vilja menn fletta upp í Þjóðviljanum eða í þingtíðindum um það orðalag árið 1980? Allan desembermánuð stóðu menn hér uppi málþola og spurðust fyrir um hvaða ráðstafanir ríkisstj. þáv. ætlaði að gera í hinum bráðháskalegu efnahagsmálum sem blöstu við öllum mönnum. Hinn 20. og 21. des. stóðu menn hér á öskrunum og kröfðust svara. Hvernig var þingræði fylgt eftir þá? Engin svör gáfust. Stjórnarandstaðan bauðst til þess að sitja milli jóla og nýárs, stjórnarandstaðan bauðst til að koma til þings 2. jan. Hvernig var við því vikist af hálfu þáv. ríkisstj., þingræðisstjórnarinnar frægu? Hvaða orð hafði hv. 3. þm. Reykv. um þetta? Fletti menn því upp. Eða kröfuna um að þing kæmi saman í ágúst 1982 þegar lá fyrir að ríkisstj. hafði misst þingmeirihluta sinn eða starfhæfan þingmeirihluta, það lá fyrir? Þær yfirlýsingar lágu fyrir frá tveimur af fyrrv. stuðningsmönnum ríkisstj. þáv. í Nd. Alþingis, bréf höfðu verið skrifuð og það kom einnig í ljós að hæstv. forsrh. var kunnugt um það þá. Og hann var meir en lítið hugsandi yfir setningu þeirra brbl. Allt þetta er fyrirsláttur — og yfirhylming þó — að segja það núna að mönnum hafi ekki verið kunnugt um þessar ástæður. Fullyrðingar af því sem að sú stjórn kom aldrei til dyra eins og hún var klædd, aldrei nokkru sinni í einu einasta máli, engu, aldrei, yfirhylmingar og hvít lygi þegar best lét.

Orðin sem hv. 3. þm. Reykv. hafði um þetta var að stjórnarandstaðan væri í kaffi. Og allar þessar umr. og kröfur um samkomu Alþingis þá væru ómálefnalegar. Fletti menn þessu upp í þingtíðindum sem og í Þjóðviljanum, í kasti. En nú þegar hann er kominn í stjórnarandstöðu þá bregður heldur betur við, hann er ekki í kasti, heldur æðiskasti út af þessu. Já, auðvitað, ég vil vera þingræðissinni og ég hlusta grannt á þegar menn krefjast þess að þingræði sé í heiðri haft. Ég ætla þess vegna að vona að ég eigi aldrei eftir aftur að heyra hv. þm. Reykv. boða til Alþingis götunnar. Það er nefnilega ekkert mjög langt síðan ég heyrði það orðalag til hans.

Hér veittist hv. 3. þm. Reykv. harkalega að hæstv. fjmrh. fjarstöddum. Auðvitað gefast honum tækifæri til að ræða öll þau atriði sem fram komu í hans máli síðar, þannig að mér þótti nokkuð stungin tólg að manninum fjarstöddum. En hv. 5. landsk. þm. Eiður Guðnason varpaði fram spurningu: Hvaða maður bar ábyrgð á því umfram alla aðra menn að Alþb. var í síðustu ríkisstj.? Auðvitað bar Alþb. sjálft fyrst og fremst ábyrgð á því að vera í ríkisstj., af því þetta er valdataflsflokkur, af því að það er Alþb. eðlislægt að komast yfir völd þó það sé með óheiðarlegum hætti. Ég er ekki að segja þar fyrir að einstaka maður hafi ekki greitt fyrir því að sú ríkisstj. komst á laggirnar. Það er svo annað mál sem þeir verða að vera til andsvara við. En ég mun ekki ræða frekar tildrög þeirrar óstjórnar og tilurð á sínum tíma.

Hér var vikið að kostnaði sem ríkisstj. hygðist stofna til og spurt á hvaða lið á fjárlögum sá kostnaður væri sem menn ætla að verja til útgáfu á upplýsingum um störf og stefnu núv. ríkisstj. Auðvitað verður gerð nákvæm grein fyrir hvernig fjármunum ríkisins er varið. Ef ástæða þykir til að greiða ferðalög eða kostnað vegna funda hæstv. forsrh. af opinberu fé þá verður það vitanlega upplýst. En það þarf að upplýsa miklu fleira. Það verður vafalaust spurt hvaða fjármálaliðum tilheyri stórar greiðslur, sem ég hef kynnst að hafi verið inntar af hendi úr ríkiskassanum, með hvaða heimildum og á hvaða fjárlagaliðum þær hafi verið á fjárlögum fyrir 1983. Það verður allt saman gert upp og allt saman upplýst. Áreiðanlega verður líka spurt um ýmsa fjárlagaliði í hæstv. félmrn., eigum við ekki að fá það allt fram? (Gripið fram í.) Upplýsa alla fjármálaliði og hvaða heimildir hafi verið og til hvers varið var, við skulum verða sammála um þetta. Það verður áreiðanlega gert af hálfu iðnrn. Það er fjarri því að ég sé með þessum orðum að víkja að því að neinn óheiðarlegur máti hafi verið á því, alls ekki, hvorki að víkja að því né dylgja um það. En við skulum fá þetta allt fram, vegna þess að hér er hv. 3. þm. Reykv. að tala um mál sem honum er vel kunnugt um, að ríkisstj. getur stofnað til kostnaðar án þess að fara með það fyrir hið háa Alþingi. Dettur einhverjum í hug að það sé óheiðarlegast af minni hálfu eða forvera míns að stofna til kostnaðar vegna samningagerðar við Alusuisse, eins og hann gerði og eins og ég hef orðið að gera? Auðvitað er þetta allt saman með eðlilegum hætti, en það var hv. 3. þm. Reykv. sem var að dylgja um þessa hluti, sem hann þekkir betur en ég, hvernig er háttað í ríkiskerfinu.

Það er fróðlegt að fylgjast með þessum fyrsta eldhúsdegi. Þeir eiga eftir að verða fleiri. Og víst er um það að menn munu væntanlega geta dregið ýmsa lærdóma af þeim. Færi þó betur að menn tækju fljótlega til þeirra ráða sem þeir eiga undir rifjum til að rétta við hag þessarar þjóðar, efnahag hennar, og að við fækkuðum orðum um formsatriði sem í raun og veru verður að telja megininntak þessara umræðna utan dagskrár. Og þá bíðum við eftir að rifjuð verði t.a.m. upp neyðarúrræði til fjögurra ára, sem Alþb. vildi grípa til, eftir að hafa setið í ríkisstj. uppstyttulítið frá 1978. Þá fáum við væntanlega ráðleggingar um það hvernig eigi að fara að halda í hemilinn á verðbólgunni, með því t.a.m. — eins og þeir stóðu að einum 14 sinnum — að krukka í kaupið. Eftir þessu bíðum við öllu saman. Ekki veitir núv. hæstv. ríkisstj. af góðum ráðum.