30.04.1984
Neðri deild: 77. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4981 í B-deild Alþingistíðinda. (4404)
201. mál, vörumerki
Frsm. (Gunnar G. Schram):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. allshn. sem fjallað hefur um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 47 frá 2. maí 1968 um vörumerki. Nefndin hefur rætt frv. þetta og athugað og leggur til að það verði samþykkt án nokkurra breytinga.
Undir þetta nál. rita auk mín hv. þm. Guðrún Helgadóttir, Friðjón Þórðarson og Guðmundur Einarsson en fjarverandi afgreiðslu málsins voru pálmi Jónsson, Ólafur Þ. Þórðarson og Stefán Guðmundsson.