02.05.1984
Efri deild: 87. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5009 í B-deild Alþingistíðinda. (4436)

330. mál, jöfnun hitunarkostnaðar

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Á þskj. 685 er borið fram stjfrv. til laga um jöfnun hitunarkostnaðar, orkusparnað og aukna nýtingu innlendra orkugjafa. Frv. þetta kemur í stað núgildandi laga nr. 53 frá 1980, um jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar, en auk þess felur það í sér ýmis veigamikil efnisatriði sem ekki er að finna í gildandi lögum.

Eins og kunnugt er urðu miklar breytingar á verði olíu á s. l. áratug. Á árunum 1973–1975 hækkaði verð á olíu, m. a. til húshitunar, um nánast 80% á föstu verðtagi eftir að hafa verið nokkuð stöðugt um árabil eða jafnvel farið heldur lækkandi. Olíuverð hélst síðan nokkuð stöðugt 1975–78, en eftir byltinguna í Íran og ófriðinn við Persaflóa varð önnur mjög snögg verðsveifla. Hækkaði olíuverð þá enn um 70–80% á föstu verðlagi. Lætur því nærri að verð á olíu hafi a. m. k. þrefaldast á föstu verðlagi á s. l. tíu árum. Á sama tíma hélst verð á orkugjöfum, eins og til að mynda hjá Hitaveitu Reykjavíkur og öðrum eldri veitum, svipað lengi vel, en hefur hækkað nokkuð á síðustu misserum.

Vegna slæmrar fjárhagsstöðu innlendra orkufyrirtækja hefur verð á raforku, þar á meðal raforku til hitunar, hækkað mikið og nálgast kostnaðarverð raforku til hitunar nú verð olíu. Þessar breytingar hafa, eins og þingheimi er kunnugt um, valdið miklum mismun á kostnaði víðs vegar um land eftir því hvort íbúar hafa þurft að kynda hús sín með olíu, raforku eða hitaveitum.

Árið 1974 var byrjað að greiða olíustyrki skv. lögum nr. 47 frá 1974, um ráðstafanir til að draga úr áhrifum olíuverðshækkana á hitunarkostnað íbúða, til þeirra einstaklinga sem þurftu að kynda hús sín með olíu. Voru lög þessi framlengd um eitt ár í senn þar til árið 1978, er þeim var breytt nokkuð og gerð ótímabundin.

Árið 1980 var lagt fram frv. til l. um jöfnun og lækkun hitakostnaðar, sem að verulegu leyti var unnið í iðnrh. Frv. var samþykkt sem lög nr. 53/1980 og tóku þau gildi í maí 1980. Lög þessi fólu m. a. í sér verulega breytta úthlutun og hækkun olíustyrkja til að tryggja aukið samræmi við kyndingarkostnað, ákvæði um gerð húshitunaráætlunar, orkusparnað og aukið upplýsingastarf á því sviði, heimild til að veita lán til orkusparandi endurbóta á íbúðarhúsnæði sem hitað er með olíu, heimild til að veita varmaveitum framlag til að jafna þann mun sem orkuverð þeirra er metið hærra en nemur hitunarkostnaði með olíu að frádregnum olíustyrk.

Með lögum nr. 12/1980 var lagt á svonefnt orkujöfnunargjald, 1.5% á söluskattsstofn, sem renna skyldi óskipt til ríkissjóðs. Var ætlast til að fé þetta væri notað til að jafna hitunarkostnað landsmanna.

Eins og áður var vikið að var tekin upp heimild í lögum nr. 53 frá 1980, um jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar, til að greiða varmaveitum framlag til að verð þeirra yrði sambærilegt við óniðurgreidda olíu. Reyndist þetta mikilvægt í upphafi reksturs og þegar veitur hafa lent í tæknilegum erfiðleikum vegna vatnsöflunar. Nokkrar hitaveitur hafa lent í slíkum erfiðleikum.

Mikil hækkun varð á heildsöluverði raforku á árinu 1978 og leiddi það til mikillar hækkunar á raforku til húshitunar og til RO-veitna, þ. e. þeirra veitna sem nota ýmist rafmagn eða olíu. Í maí 1982 gaf þáv. ríkisstj. út yfirlýsingu um jöfnun upphitunarkostnaðar þar sem segir m. a.:

„Er að því stefnt að upphitunarkostnaður sambærilegs íbúðarhúsnæðis verði yfirleitt ekki meiri en gerist hjá nýjum og hagkvæmum hitaveitum, sbr. Hitaveitu Akureyrar og Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Verður á næstunni gerð áætlun um hvernig ná megi slíku markmiði í áföngum m. a. með endurskoðun á gjaldskrám veitufyrirtækja á næstu tólf mánuðum.“

Í samræmi við þetta var síðan ákveðin lækkun á gjaldskrám orkufyrirtækja frá 1. okt. 1982. Lækkunin tók til taxta fyrir upphitun íbúðarhúsnæðis með raforku hjá Rafmagnsveitu ríkisins, Orkubúi Vestfjarða, Hitaveitu Hafnarhrepps og Seyðisfjarðar svo og Rafveitu Siglufjarðar. Nokkur fleiri fyrirtæki hafa bæst við síðan. Var við það miðað að veitufyrirtækin fengju endurgreiddan kostnað, sem næmi tillekinni upphæð á orkueiningu, við framvísun orkureikninga. Þessar aðgerðir hafa ekki verið festar í lög og eru þær ákveðnar af iðnrn. með hliðsjón af fé því sem til ráðstöfunar er hverju sinni.

Árið 1981 var ákveðið að hefja lánveitingar á vegum Húsnæðisstofnunar ríkisins til endurbóta á íbúðarhúsnæði sem leiða mundu til orkusparnaðar í samræmi við lög nr. 53 frá 1980. Eftirspurn eftir lánum þessum hefur farið minnkandi og er það mat kunnugra að það stafi fyrst og fremst af of litilli þekkingu húseigenda á þessum málum og vöntun á kynningu. Athuganir sem gerðar hafa verið benda til að mikil þörf sé á að auka þessa starfsemi og gera hana markvissari.

Við myndun núverandi ríkisstj. var ákveðið að auka jöfnun hitunarkostnaðar verulega. Í því skyni ákvað ríkisstj. að verja allt að 150 millj. kr. á árinu 1983. Hinn 14. júní s. l. skipaði iðnrh. nefnd, svonefnda orkuverðsnefnd, til að gera tillögur um leiðir til að jafna húshitunarkostnað í landinu í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstj. um þetta efni. Nefndin aflaði ítarlegra gagna um húshitunarkostnað og ræddi við ýmsa þá aðila sem vinna að þessum málum, svo sem ráðuneytisstjóra iðnrn., orkusparnaðarnefnd, Samband ísl. rafveitna og Samband ísl. hitaveitna, deildarstjóra í viðskrn. sem fer með olíustyrkjamál, bankastjóra í Seðlabanka um lánamál hitaveitna og verkfræðinga sem vinna að verkefni um bætta einangrun og orkusparnað á vegum iðnrn. Nefndin hefur í vinnu sinni stuðst við upplýsingar og gögn sem hún hefur aflað og kemur það fram bæði í grg. og fskj. Skilaði hún áliti til iðnrn. ásamt drögum að frv. um jöfnun hitunarkostnaðar. Að áliti nefndarinnar er það misrétti, sem fólgið er í mismunandi hitunarkostnaði í þjóðfélaginu í dag, óviðunandi og hitunarkostnaður þess fólks, sem býr við lakastan kost, óbærilegur. Þótt nokkuð hafi verið bætt úr með niðurgreiðslu á olíu og rafmagni hefur orkuverð og húshitunarkostnaður landsmanna hækkað mun meira en almennt verðlag í landinu á síðustu árum.

Nefndin lagði til að brugðist yrði við vandanum með tvennu móti:

Í fyrsta lagi með aukinni niðurgreiðslu á orkuverði til húshitunar á meðan hitunarkostnaður er svo mikill sem nú er.

Í öðru lagi með orkusparnaði og hagkvæmri orkunotkun. Gert verði stórátak í að endurbæta einangrun húsa til þess að draga úr orkunotkun. Í því skyni lagði nefndin til að húseigendur fái fjármagn sem nemur 90% af kostnaði við endurbætur, annars vegar með styrkjum sem nema 10% af kostnaði og hins vegar með hagkvæmum lánum sem nema allt að 80% af kostnaði. Gangi þeir fyrir um þessa fyrirgreiðslu sem búa við hæst orkuverð til húshitunar.

Í þriðja lagi verði framkvæmdum flýtt til að innlendir orkugjafar komi í stað olíu. Skilaði nefndin drögum að frv. ásamt athugunum sínum, sem eru allítarlegar, og munu nefndir þingsins geta fengið aðgang að þeim gögnum sé þess óskað.

Frv. það sem hér er lagt fram er í veigamiklum atriðum byggt á tillögum nefndarinnar.

Ég vil nú víkja nokkrum orðum að meginatriðum þess frv. sem hér er til umr.

Í frv. þessu er kveðið á um ráðstafanir til að jafna hitunarkostnað, lækka kostnað við upphitun íbúðarhúsnæðis og auka nýtingu innlendra orkugjafa. Frv. er ætlað að leysa af hólmi núverandi lög um jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar og kveða nánar á um ýmis atriði sem snerta þetta mikilvæga mál. Í frv. eru sett lagaákvæði um niðurgreiðslu raforku og hitaorku frá veitum sem nota raforku eða olíu til hitunar, en niðurgreiðslur þessar hafa eins og áður sagði tíðkast frá okt. 1982.

Gert er ráð fyrir að tilhögun og greiðsla olíustyrkja verði með svipuðu sniði og er í núgildandi lögum. Heimild er til að aðstoða hitaveitur sem eiga við sérstök vandamál að stríða skv. svipuðum reglum og nú tíðkast, þannig að verð þeirra geti verið sambærilegt og nemur hitunarkostnaði með niðurgreiddri olíu og raforku.

Þá er í frv. nýmæli varðandi skipulegt átak í orkusparnaði til að jafna hitunarkostnað með tilliti till orkunýtingar íbúðarhúsnæðis. Gert er ráð fyrir sérstakri ráðgjöf fyrir húsráðendur í þessu sambandi, sem kostuð verði af opinberri hálfu. Verður vikið nánar að því síðar.

Þá eru í frv. ákvæði um aðgerðir af opinberri hálfu til að flýta breytingu kyndibúnaðar frá olíunotkun til innlendra orkugjafa.

Frv. gerir ráð fyrir að framkvæmd þessara mála heyri undir iðnrh., en skv. núgildandi lögum heyrir II. kafli varðandi olíustyrki undir viðskrh., en III. og IV. kafli undir iðnrh.

Kostnaður við framkvæmd laganna greiðist úr ríkissjóði af orkujöfnunargjaldi, sbr. lög nr. 12 frá 1980. Eins og kunnugt er er kostnaður við hitun íbúðarhúsnæðis mjög mismunandi víðs vegar um landið. Í aths. með frv. kemur þessi munur ljóslega fram svo og í fskj. sem því fylgir. Kostnaður við olíuhitun með olíustyrk er nú talinn nema um 69% af óniðurgreiddri olíuhitun en niðurgreidd rafhitun kostar um 58% af verði olíu án niðurgreiðslu.

Verð hitaveitna er mjög mismunandi. Hinar dýrari og nýrri hitaveitur eru á svipuðu verði og niðurgreidd rafhitun eða olíuhitun en t. d. Hitaveita Reykjavíkur kostar um 26% af óniðurgreiddri olíu. Heldur hefur dregið úr þessum mun frá því sem var á s. l. ári. Ódýrar hitaveitur hafa hækkað tiltölulega mest að undanförnu og niðurgreiðslur á raforku hafa þegar verið auknar að því marki sem frv. þetta gerir ráð fyrir. Hlutfall ódýrra hitaveitna eins og Hitaveitu Reykjavíkur og niðurgreiddrar rafhitunar er nú 1:2.2 en var allt að því 1:5 þegar það var hæst.

Í frv. er gert ráð fyrir að raforka og varmaorka sé greidd niður þannig að hlutfall raforkuverðs og vegins meðalverðs allra hitaveitna sé 1:1.8. Þessu hlutfalli hefur eins og áður sagði þegar verið náð.

Í 4. gr. er sett sú regla að niðurgreiðsla á verði raforku til hitunar íbúðarhúsnæðis svo og verð varmaorku frá varmaveitum sem nota rafmagn og olíu til hitunar skuli miðuð við verð á upphitunarkostnaði hjá þeim sem búa við hitaveitur en hafa jarðvarma að orkugjafa. Þetta verð er fundið með því að reikna út svokallað vegið meðaltal en í athugasemdum með frv. er nánar gerð grein fyrir því hvernig verð þetta er reiknað. Orkustofnun hefur gert þessa útreikninga fyrir Hagstofu Íslands að undanförnu. Hið vegna meðaltal er síðan margfaldað með 1.8. Miðað við núverandi gjaldskrár hitaveitna í landinu er vegið meðaltal 46 aurar á kwst. Þetta þýðir að raforku til húshitunar þurfi að greiða niður að því marki að hún kosti 83 aura á kwst. Nú nemur þessi niðurgreiðsla hjá Rafmagnsveitum ríkisins og Orkubúi Vestfjarða 53 aurum á kwst.

Skv. 2. mgr. er heimilt að greiða niður verð á raforku til hitunar skólahúsnæðis. Í gildandi lögum er ekki slík heimild að því er tekur til upphitunar með rafmagni en hins vegar er nú í lögum heimildarákvæði um olíustyrki til skóla. Þykir rétt að heimild sé fyrir hendi til að styrkja upphitun skóla hvor sem orkugjafinn er, rafmagn eða olía.

Í 5. gr. er kveðið á um að niðurgreiðslur skv. 4. gr. renni til orkuveitna eins og tíðkast hefur að undanförnu. Hins vegar er tekið upp það nýmæli að niðurgreiðsla ríkisins komi fram á reikningum notenda. Þá er lagt til að heimilt sé að setja ákvæði í reglugerð um hámarksniðurgreiðslu til einstakra notenda sem hafa óeðlilega mikla orkunotkun.

Ekki skal greiða niður rafmagn til húshitunar þar sem hitaveitur eru nema sérstakar ástæður séu til þess, t. d. hjá rafveitum þar sem rafveitan sér alfarið um orkusölu í hluta bæjar vegna aflsskorts hitaveitna eða hitaveitu.

Í 7. gr. frv. er kveðið á um, að verð á olíu til húshitunar skuli greitt niður að því marki að kostnaður við olíuhitun verði eigi meiri en tvöfalt hærri en vegið meðaltal hitaveitna, sbr. 4. gr. Svarar það til þess að verðið sé um 10% hærra en raforka og varmaorka, sbr. 4. gr. Gert er ráð fyrir að reglur um úthlutun olíustyrkja séu hliðstæðar og nú tíðkast en í 8. gr. er tekin upp heimild til að krefjast þess að húsráðendur færi sönnur á að þeir eigi ekki kost á öðrum orkugjafa.

Í 14. gr. eru ákvæði um að heimilt sé að styrkja hitaveitur. Nokkrar hitaveitur, sem hafa átt við sérstakan fjárhagsvanda að etja vegna ófyrirsjáanlegra rekstrarerfiðleika, hafa þurft að setja gjaldskrá sem metin er hærri en sem nemur hitunarkostnaði með niðurgreiddri olíu og rafmagni. Þetta hefur fyrst og fremst átt við um nokkrar smáar hitaveitur, en með þeirri lækkun á hámarksverði hitunar sem felst í 4. og 7. gr. kann að vera að þessum veitum geti fjölgað eitthvað. Í því skyni að treysta samkeppnishæfni þeirra við orkugjafa sem njóta niðurgreiðslu er skv. þessari grein heimilt að veita þeim aðstoð.

Í 15. gr. eru ákvæði um leiðir til að aðstoða hitaveitur og er gert ráð fyrir að það sé gert með framlagi til greiðslu stofnkostnaðar eða með skuldbreytingu lána, svo sem með lengingu lánstíma, minnkun gengisáhættu eða vaxtalækkun.

Auk hins mikla mismunar sem er á verðlagningu orku milli einstakra orkuveitna og orkugjafa og rakið var hér að framan er orkunotkun einstakra notenda á sama svæði mjög mismunandi. Í athugun sem Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins gerði á um 300 húsum í fjórum sveitarfélögum á árunum 1979 og 1980 kemur fram mikill munur á orkunotkun einstakra notenda. Greint er frá niðurstöðum þessara athugana í athugasemdum með frv. Kemur fram að mismunur á orkunotkun einstakra notenda á rúmmetra húss á ári er allt að fimm- til sjöfaldur eða jafnvel meiri eigi að telja þessar niðurstöður allar marktækar.

Mismunur sá sem kemur fram í niðurstöðum athugana þessara verður enn tilfinnanlegri á þeim svæðum sem búa við hátt orkuverð. Í frv. er því lagt til að tekið verði á þessum vanda með sérstöku og skipulögðu átaki til orkusparnaðar og bættrar orkunýtingar íbúðarhúsnæðis með nánu samstarfi þeirra aðila sem hlut eiga að máli og er þetta að mínu mati eitt helsta nýmæli frv. Um skipulag þessa átaks er fjallað í V. kafla frv.

Húseigendum skal veitt tæknileg aðstoð við skipulagningu og mat á endurbótum sem leiða til orkusparnaðar þannig að ákvörðun þeirra í þessu efni verði á sem traustustum grunni byggð. Einnig skal þeim standa til boða lánsfjármagn til framkvæmda á hagstæðum kjörum. Gert er ráð fyrir að iðnrh. skipi þriggja manna verkefnisstjórn sem skal bera ábyrgð á framkvæmd verkefnisins.

Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins er falið að annast fræðilegan og tæknilegan undirbúning verkefnisins og sjá um menntun og starfsemi sérstakra skoðunarmanna. Sérstök áhersla verður lögð á að tryggja að ráðgjöf sú er skoðunarmenn veita húseigendum sé vel undirbyggð og vönduð og að fyllsta samræmis sé gætt. Ráðgjöf sú sem skoðunarmenn veita húseigendum verði án endurgjalds. Er gert ráð fyrir að starfsemi skoðunarmanna verði greidd af opinberu fé í stað þess að veita húseigendum styrk sem nemur 10% af kostnaði eins og orkuverðsnefnd lagði til. Skoðunarmenn verði ráðnir til ákveðinna verka skv. ákvörðun verkefnisstjórnarinnar og fá greitt fyrir það en starfi á vegum ráðgjafaraðila sem hafa starfsemi í viðkomandi landshluta. Hér er því ekki um stofnun að ræða eða föst útgjöld fyrir ríkissjóð til frambúðar.

Forgangsröð um skoðun húsa og endurbætur skal í fyrsta áfanga miða við að aðstoða þá sem búa við óhóflegan orkukostnað vegna lélegrar orkunýtingar. Orkustofnun skal skv. 21. gr. frv. í samstarfi við orkuveitur fylgjast með orkunotkun við upphitun íbúðarhúsnæðis. Sérstaklega á stofnunin að afla upplýsinga um húsnæði, þar sem orkunotkun er óeðlilega há.

Gert er ráð fyrir að veitt verði lán í samræmi við lög um Húsnæðisstofnun ríkisins. Stefnt er að því að þau verði afborgunarlaus fyrstu þrjú árin og megi þau nema allt að 80% af kostnaði við endurbætur. Lánin eru nú verðtryggð með 0.5% vöxtum. Með því að hafa lánin afborgunarlaus fyrstu þrjú árin gefst húseigendum ráðrúm til að greiða niður kostnað af eigin framlagi. Húsnæðisstofnun ríkisins annast veitingu lánanna og eftirlit með framkvæmdum sem lánað er til og setur reglur þar um í samráði við verkefnisstjórn. Sérstaklega ber að stefna að skjótri afgreiðslu lána og gert er ráð fyrir heimild til þess að veita bráðabirgðalán þegar við upphaf framkvæmda.

Ég legg alveg sérstaka áherslu á mikilvægi þessa átaks til orkusparnaðar og í samræmi við það hefur þegar verið hafinn skipulagður undirbúningur um framkvæmd þessara mála en þau krefjast óhjákvæmilega töluvert langs aðdraganda. Tekið hefur verið upp formlegt samstarf milli iðnrn. og félmrn. um undirbúning málsins. Ég hef skipað verkefnisstjórn til að hafa yfirumsjón með framkvæmd þessara aðgerða. Í hana hef ég skipað Karl Ómar Jónsson verkfræðing, formann, Guðna Jóhannesson verkfræðing og Jóhann Einvarðsson aðstoðarmann félmrh. sem tilnefndur var af félmrh.

Tekið hefur verið upp formlegt samstarf milli allra stofnana sem hlut eiga að máli og nefndir eru í lögunum, þ. e. Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, Orkustofnun og Húsnæðisstofnun ríkisins, Samband ísl. sveitarfélaga, Samband ísl. hitaveitna og Samband ísl. rafveitna. Hafa þessir aðilar tilnefnt fulltrúa í ráðgjafarhóp til að samræma aðgerðir þessara aðila til að sem bestur árangur náist.

Í mars s. l. var haldið námskeið fyrir ráðgjafa um orkusparnað að tilhlutan orkusparnaðarnefndar sem starfað hefur á vegum iðnrn. Námskeið þetta sóttu fyrst og fremst starfsmenn sveitarfélaga og orkufyrirtækja, svo sem tæknimenn og byggingarfulltrúar sveitarfélaga og starfsmenn hitaveitna og rafveitna. Í s. l. viku var haldið námskeið fyrir skoðunarmenn og á mánudag s. 1. var opnuð sýning á vöruflokkum tengdum orkusparnaði hjá Byggingarþjónustunni. Sýning þessi er haldin að tilhlutan verkefnisstjórnarinnar og er fyrirhugað að fara með hana út á land í vor og sumar og halda uppi fræðslustarfsemi í tengslum við hana.

Vænti ég eindregins stuðnings hér á hv. Alþingi við þessi áform, svo og við útvegun nauðsynlegs fjármagns til þessara mála á næstu árum. Er þess vænst að viðleitni þessi muni skila umtalsverðum árangri til orkusparnaðar sem leiðir til hagsbóta fyrir húseigendur og þjóðfélagið í heild.

Í frv. er heimild til að veita húseigendum hagstæð lán til að flýta nýtingu inntendra orkugjafa í stað olíu og breyta hitakerfum húsa þar sem um þilofnahitun er að ræða, yfir í miðstöðvarhitun ef möguleikar eru á að tengjast varmaveitum. Er gert ráð fyrir að unnt sé að leggja niður verulegan hluta olíuhitunar í landinu á þessu og næsta ári.

Þá er í frv. heimild fyrir iðnrh. að hvetja til aukinnar nýtingar innlendra orkugjafa, svo sem með því að styrkja orkuveitur til að lækka tengigjöld, styrkja eigendur skólahúsnæðis til að nýta innlenda orkugjafa og til að styrkja húseigendur til að nýta innlent eldsneyti, svo sem rekavið, surtarbrand og mó. Mun það vafalaust fara eftir fjárveitingum hverju sinni hve langt er hægt að ganga í styrkveitingum til þessara þarfa.

Gerð hefur verið áætlun um útgjöld skv. frv. á árinu 1984. Gert er ráð fyrir að greiða niður 365 gígawattstundir af raforku og varmaorku og greiðslu 13 þús. olíustyrkja. Miðað er við verðlag og niðurgreiðslur í febr. 1984. Eru niðurgreiðslur þessar sundurliðaðar í athugasemdum með frv. Áætlað er að niðurgreiðsla innlendra orkugjafa nemi um 190 millj. kr. en olíu um 60 millj. kr. en til annarra framkvæmda skv. frv. verði varið 90 millj. kr. Samtals er kostnaður í ár áætlaður 340 millj. kr.

Ég vona að með frv. þessu sé tekið á þeim vanda sem skapast hefur vegna hins háa og mismunandi húshitunarkostnaðar víðs vegar um land. Vandi þessi stafaði af miklum hækkunum á olíu og raforku en einnig af því að stjórnvöld héldu ódýrustu veitunum niðri um langt árabil og juku þann mismun sem skapaðist enn meir. Hins vegar er ljóst að miklar niðurgreiðslur á orku skapa einnig vanda, rugla verðskyn notenda og auka hættu á að rangar ákvarðanir séu teknar um fjárfestingu í orkumálum. Hinn mikli mismunur á orkuverði, sem verið hefur á milli þéttbýlisstaða sem njóta ódýrustu hitaveitna og landsbyggðarinnar, hefur verið óþolandi og valdið mikilli hættu á byggðaröskun. Athuganir hafa einnig sýnt að mikil nauðsyn er á að freista þess að bæta orkunýtingu við upphitun og það misræmi sem skapast á milli notenda, sérstaklega þeirra sem búa við hátt orkuverð.

Ég vil að lokum vonast til að góð samstaða takist um þetta mál hér í þinginu og leyfi mér, herra forseti, að leggja til að þegar þessari umr. lýkur verði málinu vísað til 2. umr. og iðnn.