02.05.1984
Efri deild: 87. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5024 í B-deild Alþingistíðinda. (4439)

330. mál, jöfnun hitunarkostnaðar

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Það er ástæðulaust að láta þessa umr. verða eins konar eintal þeirra hv. þm. Austurl. Enda þótt þetta mál hafi mjög borið á góma í þeirra kosningabaráttu eins og hér hefur margsinnis komið fram, þá var þetta mál nú samt engu að síður rætt víðar í landinu og þarf engum að koma það á óvart. Í Vesturlandskjördæmi, þar sem annars vegar háttar svo til að þar er dýr hitaveita fyrir suðurhluta kjördæmisins, en hins vegar engar hitaveitur í norðurhluta kjördæmisins, var þetta auðvitað mikið til umræðu ekki aðeins í kosningabaráttunni. Það var alltaf mikið til umræðu og verður meðan núverandi ástand helst.

Ég ætla ekki að tefja tíma hv. dm. á því að fara um það mörgum orðum hvert réttlætismál hér er á ferð, þar sem er jöfnun hitakostnaðar og hve slaklega hefur verið staðið að því máli að undanförnu. Þrátt fyrir stór orð um þann þátt málsins var slaklega að þessu staðið í tíð fyrrv. ríkisstj. Það getur hver kennt öðrum um sem þar átti hlut að máli, en það breytir ekki þeirri meginstaðreynd að ekki var unnið að þessu eins og efni stóðu til. Þetta er slíkt réttlætismál og þetta er slíkt hagsmunamál fólksins í landinu, eins og margsinnis hefur verið bent á, að þessi mikli munur á hitunarkostnaði hefur leitt til búseturöskunar, búferlaflutninga sem eru þjóðfélaginu feiknalega dýrir. Þetta er auðvitað kunnara en frá þurfi að segja og ætti því ekki að þurfa að hafa um það ýkja mörg orð.

Ég skal ekki, herra forseti, lengja þessa umr. mjög en vildi þó aðeins bæta hér við örfáum orðum. Án þess að ég hafi haft tækifæri til að kynna mér þetta sérstaka frv. til ýtrustu hlítar get ég sagt það að mér sýnist hér þó stigið skref sem er til bóta. Þó er það skref hvergi nærri eins stórt og ég taldi mig hafa ástæðu til að vona eftir umr. sem urðu hér fyrr á þessu þingi þegar hæstv. iðnrh. boðaði komu þessa frv. sem við hér nú ræðum. Ég hafði satt að segja búist við því að gengið yrði nokkru lengra en hér er gert. Hins vegar skal ég alls ekki vanmeta eða gera lítið úr því sem hér er verið að gera. Það er vissulega í rétta átt þótt meira mætti vera.

Menn hafa talað hér um átak í orkusparnaði. Þótt ýmislegt gott hafi verið gert og sé verið að gera á því sviði, þá held ég að þar megi miklu betur gera og á langtum fleiri sviðum en efst hafa verið á baugi í þeirri umr. sem átt hefur sér stað um þau efni. Það hefur mikið verið talað, og mest um endurbætur á íbúðarhúsnæði sem vissulega eru brýnar og nauðsynlegar afar víða. En það er líka margt annað á sviði orkusparnaðar hvarvetna í þjóðfélaginu sem ég held að mætti spara mjög verulega. Vissulega er höfð uppi nokkur viðleitni til þess á hinum ýmsu sviðum, en ég hygg samt að þar megi enn betur gera og á enn fleiri sviðum.

Það er vissulega til bóta í þessu frv. að gert skuli ráð fyrir því að heimilt sé að veita hitaveitum sérstaka aðstoð, þannig að þær séu samkeppnisfærar við aðra orkugjafa vegna þeirrar þróunar sem orðið hefur hér á undanförnum árum, og ég segi það strax að hér er ég m. a. með í huga Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar, sem allir voru sammála um að væri mjög hagkvæmt fyrirtæki, fyrirtæki sem hefur reynst mjög vel þó að mál hafi þar að sumu leyti þróast með öðrum hætti en menn gerðu ráð fyrir þegar ráðist var í þá framkvæmd. Það er einkum tvennt sem ég vil þar til nefna. Spádómar sérfræðinga um orkunotkun íbúa á þessu svæði reyndust rangir. Ég vil ekki segja að þeir hafi reynst út í hött, en þeir færu sérfræðingar sem gerðu áætlanir um rekstur og stofnun þessa fyrirtækis gerðu ráð fyrir verulega meiri notkun á heitu vatni en raun varð á. Þess vegna hefur rekstrargrundvöllur orðið allt annar en menn gerðu sér hugmynd um í upphafi. Þetta er auðvitað mjög slæmt, vegna þess að ef réttir útreikningar hefðu legið fyrir, þá hefði sjálfsagt verið farið með ýmsum hætti öðruvísi að.

Hitt atriðið er svo það, að til þessa fyrirtækis, eins og annarra með þessu sniði og á þessum vettvangi, þurfti auðvitað að taka mikil erlend lán og var það ekkert tiltökumál. Það er einmitt til slíkra framkvæmda sem er fyllilega réttlætanlegt og eðlilegt og sjálfsagt að taka erlend lán þegar jafnþröngt er á innlendum lánsfjármarkaði og raun ber vitni. Hins vegar hefur gengisþróun orðið á þann veg, og það sáu menn auðvitað ekki fyrir frekar en aðra hluti í þessum efnum, að þessi lán hafa orðið greiðendum miklu þyngri í skauti en talið var á þeim tíma sem lánin voru tekin og þess vegna hafa erfiðleikar orðið langtum meiri en nokkurn mann gat órað fyrir. Þar af leiðandi hefur notendum orku þessa fyrirtækis verið gert að greiða hærra gjald en menn höfðu ætlað.

Bæjarstjórnin á Akranesi hefur nú ritað okkur þm. Vesturl. öllum svohljóðandi bréf sem ég les hér með leyfi forseta:

„Á fundi bæjarstjórnar Akraness, sem haldinn var 27. mars s. l.,“ bréfið er dags. 24. apríl, „var m. a. samþykkt eftirfarandi till.:

„Bæjarstjórn Akraness vekur athygli á að upphitunarkostnaður Akurnesinga og annarra er njóta upphitunar orku frá Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar er orðinn mjög hár og mun hærri en notenda er njóta niðurgreiddrar orku frá Rafmagnsveitum ríkisins og Orkubúi Vestfjarða. Bæjarstjórn telur réttlætismál að við verðjöfnun og niðurgreiðslu á orku verði lagður til grundvallar orkukostnaður notenda og stuðningi beint til þeirra heimila er stærstar byrðar bera án tillits til þess af hvaða fyrirtækjum hitaorkan er keypt og án tillits til þess hvert form orkunnar er, enda geta notendur venjulega litlu ráðið um þetta tvennt.“

Hér lýkur þessari samþykkt, en bréfinu lýkur svo með þessum orðum:

„Með bréfi þessu er vakin athygli á ofangreindri samþykkt og er þess vinsamlegast vænst að þér beitið yður fyrir framkvæmd þessa máls svo fljótt sem frekast er kostur.“

Þetta vildi ég að kæmi hér sérstaklega fram varðandi þennan þátt málsins. En hér er um býsna flókið mál að ræða sem væntanlega fær mjög ítarlega athugun í nefnd.

Að lokum, herra forseti, sýnist mér þetta mál í heild heldur horfa til bóta frá því sem verið hefur þótt ég hefði vissulega vænst þess að nokkru lengra yrði gengið en þetta frv. gerir ráð fyrir. Skal ég svo ekki, herra forseti, hafa þessi orð fleiri.