02.05.1984
Efri deild: 87. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5026 í B-deild Alþingistíðinda. (4440)

330. mál, jöfnun hitunarkostnaðar

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Það eru aðeins örfá orð, herra forseti, vegna orða sem til mín hafði verið beint eða fsp.

Þá fyrst út af framlagningu frv. Hv. 2. þm. Austurl. fann að því að ég hefði ekki lagt þetta frv. fram þar sem hv. fyrrv. iðnrh. á sæti. Það er nokkuð vandlifað og þyrfti þessi hv. þm. helst að fá leyfi til að stikla á milli deilda svo að hægt væri að gera honum til hæfis. En það vill þannig til að ekki kom annað til greina en að leggja þetta frv. fram í Ed. af því að formaður orkuverðsnefndarinnar er formaður í þeirri nefnd sem fær málið til umfjöllunar. Það er öll skýringin. Og það er alveg skotheld skýring.

Enn fremur var það einmitt lærdómur minn, sem ég dró af starfi mínu sem forseti í hv. Nd., þegar hv. 2. þm. Austurl. gegndi forsetastörfum í Ed., að ráðherrar og ríkisstj. gættu þess ekki að deila skynsamlega niður verkefnunum og ekki heldur að taka tillit til þess hversu betur verki farin hv. Ed. er. Er það hrapalegt að menn skyldu ekki hafa það einu sinni fyrir augum þegar þeir voru að skipa málum sínum í deildir.

En það sem kom mér mest á óvart, hygg ég að óhætt sé að segja, þegar ég tók við því starfi sem nú gegni ég, voru ástæður orkufyrirtækjanna. Ef ég má nefna það svo: gjaldþrotaástæður orkufyrirtækjanna. Mér var allsendis ókunnugt um það og kom mér aldeilis í opna skjöldu að þann veg skyldi standa á fyrir Íslandsvirkjun sjálfri að stefndi í milli 300–400 millj. kr. hallarekstur á Landsvirkjun á árinu 1983 ofan í það kaup að hún var rekin með 152 millj. tapi árið 1982. Hvað halda nú menn að taki við ef slíkur búskapur er rekinn áfram með þessum hætti? Hver á að borga þetta fyrr eða síðar? Það hefur margverið rakið að ef við hefðum greitt raungildi orkunnar á árunum frá 1971–1982 í 12 ár hefði Landsvirkjun skuldað 100 millj. dollara minna en hún gerir í dag, en þessu frestuðum við þá, ekki til næsta dags eða mánaðar heldur til næsta áratugar. Ríkisstjórnir á þessum árum skeyttu þessu ekki, þær horfðust aldrei í augu við staðreyndir og hallinn á rekstri orkufyrirtækjanna var jafnaður með erlendum lántökum, dollaralántökum, og allir þekkja hvernig þróun þess gjaldmiðils hefur leikið okkur. Því er það að við höfum ekki fengið enn fangs á að ráða bót á því ógnarálagi sem orkan er á almenningi í landinu, að ég ekki tali um íbúa á köldu svæðunum sem svo eru nefnd.

Það er orðhengilsháttur hjá hv. 2. þm. Austurl. að tala um að það sé lokamark á köldu svæðunum að hitunarkostnaður við kyndingu íbúðarhúsa verði eigi hærri en sem nemur 1.8-földu vegnu meðalverði hjá hitaveitum landsins. Þetta er tap. Þetta er hámarkið og þess er getið að því hafi verið náð. En vitanlega er það ekki lokamarkið. Vitanlega er lokamarkið að allir búi við sama verð. Það gefur auga leið og hlýtur hverjum manni að vera skiljanlegt. Ég sé ekki tök á því eins og nú standa sakir að því marki verði náð alveg á næstunni, en að því hlýtur að verða keppt.

En hvaða breytingar hafa átt sér stað fyrir utan það að óhjákvæmilegt var að mínum dómi, og ég ber höfuðábyrgð á því að hækka orkuverðið til þess sem nam því að orkuveiturnar sjálfar geti staðið undir sér, — hvað annað höfum við gert í þessu efni? Ég man það áreiðanlega rétt að til niðurgreiðslu á árinu 1983 skyldi skv. áætlunum fyrri ríkisstj. varið 35 millj. kr. Mig minnir að til olíuverðsniðurgreiðslu hafi verið svipuð tala, þannig að það hafi samtals í þessu skyni átt að verja skv. áætlunum fyrri ríkisstj. tæpum 70 millj. kr. Við bættum við þetta á síðasta ári, áformuðum 150 millj. í viðbót, — en nú svara ég fsp. hv. 2. þm. Austurl. þegar hann spurði hversu miklu hefði verið varið af þessum 150 millj. til niðurgreiðslna: Það voru 70 millj. 80 millj. voru færðar yfir á þetta ár. Hv. 11. landsk. þm. gaf nokkra skýringu á því hvers vegna þessu fé var ekki öllu ráðstafað. Það var fyrir það að nokkru minni hækkun varð en maður upphaflega áleit á heildsöluverði raforkunnar.

Á árinu 1983 skyldi sem sagt varið um 70 millj. í þessu skyni alls, fyrir utan lítils háttar fyrirgreiðslu hjá Húsnæðisstofnun vegna einangrunaraðgerða sem voru gersamlega að fjara út, en í ár reiknuðum við með að ráðstafa til allra þessara þarfa: í niðurgreiðslu rafmagns a. m. k. 190 millj. kr., olíu um 60 millj. kr. og til annarrar fyrirgreiðslu í orkusparandi aðgerðum um 90 millj. kr. Sem sagt: 340 millj. er ætlað að við munum verja til þessara þarfa í ár. Það er a. m. k. stökkbreyting frá því sem áður var.

Ég vil líka vekja athygli manna á því að það er ekki auðvelt að setja sig í þær stellingar einvörðungu að greiða orkuverð niður. Menn hlustuðu á bréf frá bæjarstjórn Akraness, sem hv. 5. landsk. þm. las upp áðan, þar sem hún bendir á að orkuverðið, sem menn búa við frá hinni nýju og hagkvæmu, sem talin var, Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar, er allmiklu hærra en það orkuverð sem menn búa við á þeim svæðum þar sem raforkan til að mynda er greidd niður eins og hjá Rafmagnsveitu ríkisins og Orkubúi Vestfjarða. Auðvitað er alltaf hægt að deila um forsendur þeirra útreikninga sem til grundvallar eru lagðir, en eftir sem áður er þetta óhrekjanlegt. Það hefur verið afstaða mín og það er afstaða ríkisstj. að hefja ekki niðurgreiðslur á svæðum eins og þessu nefnda svæði, Akranesi og Borgarfirði, en okkur er ljóst að við þurfum að koma til aðstoðar við þessa hitaveitu. Það er alveg ljóst að ekki er hægt að hækka orkuverðið þannig að endar nái saman. Skuldin sem er áhvílandi þessu fyrirtæki er sjálfsagt einum 6 millj. dollara of há til þess að ætlandi sé að fyrirtækið rísi undir henni. Þarna þarf hið opinbera að koma til skjalanna. Ég hef raunar fleiri hugmyndir í þessu sambandi, aðallega þá að stofna til sjálfstæðrar orkuveitu á þessu svæði og þá yrði í leiðinni þetta orkufyrirtæki rétt af fjárhagslega. Ég hef áhuga á því að Andakílsársvæðið gamla taki við dreifingu orkunnar og stjórn á henni á þessu svæði og leysi Rafmagnsveitur ríkisins af hólmi. Það er stefna mín að þannig fari þetta sem mest fram í landinu. Við höfum fyrirliggjandi og brátt mun koma fyrir þessa hv. deild frv. til l. um Hitaveitu Suðurnesja þar sem gert er ráð fyrir að tilgangur hennar og hlutverk verði aukið á þann veg að hitaveitan sjái fyrir öllum þörfum, öflun og sölu og dreifingu á orku á Reykjanesskaganum og verði enda kaupandi að núverandi eigum Rafmagnsveitna ríkisins á þessu svæði — fyrir að vísu hátt verð því að ekkert verður gefið í því efni.

Sama gildir um Hitaveitu Akureyrar. Þar ná menn ekki endum saman, og þá yrði þjóðfélagið sjálft að hlaupa undir þennan bagga, enda eru heimildir í þessum lögum til þess að hægt sé að taka á þeim málum.

Ég sé ekki ástæðu til að víkja að fleiri atriðum nú. Ég fer fram á að hv. iðnn. athugi þessi mál rækilega. Það er alveg rétt. Ég var þeirrar skoðunar rétt fyrir jól að okkur tækist að vinna þetta mál hraðar en raun ber vitni. Ég ber meginsök á því að þetta hefur dregist svo úr hömlu sem raun ber vitni. Ég vona samt að sú undirbúningsvinna komi til góða, þannig að hraðari afgreiðsla náist á hv. Alþingi. Ég bendi á að við höfum í anda þessara tillagna, sem að meginhluta til eru frá orkuverðsnefndinni, starfað í vetur á vegum iðnrn. og félmrn., þar sem við höfum sett upp verkefni, stjórnir og ráðgjafarnefndir sem staðið hafa fyrir námskeiðum og öðrum undirbúningi í orkusparnaðaraðgerðunum. Við höfum auðvitað notað okkar heimildir til þess að greiða aukaniðurgreiðslur raforkunnar og gerðum það síðast 1. febr. niður að þessu þaki, sem orkuverðsnefndin lagði til, 1:1.8. Það er auðvitað líka rétt að ekki gengur það sem röksemd að það þak haldi ef menn fara hina leiðina og hægt sé að koma þessu þaki neðar með því að hækka á ódýru hitaveitunum og fá þannig meðaltalið upp á við. En mikil áhrif hefur það þó að þessi munur sé sem minnstur vegna hættunnar á búseturöskuninni. Þetta er áreiðanlega hættulegasta fyrirbrigðið í þá veru sem ég hef séð til á næstliðnum árum, þ. e. hinn mikli orkuverðsmismunur og orkukostnaðurinn, sem er við það að setja heimili í landinu á hliðina fjárhagslega. Þetta er okkur alveg ljóst, en ég ítreka það: Við höfum lagt mikið af mörkum í þessu efni, háar fjárhæðir á erfiðu fjárhagsári. Við skulum vona að þetta frv. verði til þess að styrkja og efla fjárframlögin af hálfu hins háa Alþingis til þeirra brýnu þarfa sem þetta er.

Ég gat þess með vísun til bréfsins frá bæjarstjórn Akraness að hér er þetta ekki vandalaust, hvað gera skuli þegar svo er komið sannanlega að nú er greitt niður rafhitun hjá Rafmagnsveitum ríkisins og Orkubúi Vestfjarða niður fyrir það sem tíðkast hjá ýmsum öðrum rafveitum, á Suðurnesjum, Akranesi og víðar og víðar. Þá er þetta orðið mikið vandamál þegar fer að hallast á á þann veg.

Það eru margháttaðar aðgerðir sem ríkisstj. hefur núna til athugunar um að greiða úr því öngþveiti sem orkuverðsmyndunin öll saman er í og þessu of — eða vanskipulagi sitt á hvað sem öll orkumál okkar eru í, orkuöflunin o. s. frv. Það er engin vafi á því að fyrir utan auðvitað sprengingar á heimsmarkaði á orkuverði fylgdu í kjölfarið hjá okkur bæði rangar ákvarðanir um orkuframkvæmdir og röng fjármögnun þeirra framkvæmda. En við vinnum ekki bug á þessum vanda með því að kenna hver öðrum um og óskapast yfir þessu ástandi. Við verðum að ráða fram úr þessari miklu og háskalegu gátu. Ég bind vonir við að innan mjög skamms tíma verði hægt að bjóða fólki upp á líðanlegt orkuverð, ég bind miklar vonir við það. Ekki ætla ég að hefja nú þrætur um sölu raforkunnar til stóriðjunnar, þann stein höfum við lengi klappað og ég blanda því ekki í þetta, en ég hygg þó að ýmislegt bendi til að sala til nýrrar stóriðju kynni einnegin að létta undir með okkur í þessu efni.