02.05.1984
Efri deild: 87. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5037 í B-deild Alþingistíðinda. (4455)

319. mál, kvikmyndamál

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Herra forseti. Ég vil fagna því að málefni íslenskrar kvikmyndagerðar eru nú komin til umfjöllunar á Alþingi og skriður þar með kominn á að setja niður skipan þessara mála hér á landi. Ég vil sérstaklega fagna því að með þessu frv. eru tekjustofnar til kvikmyndagerðar tryggðir en ég vil að öðru leyti geyma mér til síðari umr. umfjöllun um einstök atriði þessa frv.

Við þessa umr. langar mig til að vekja athygli á atriði sem ekki er að finna ákvæði um í frv. en ég tel að brýna nauðsyn beri til að tekið sé á. Eins og menn hafa orðið varir við í fréttum undanfarið stendur erlent kvikmyndafélag fyrir umfangsmikilli kvikmyndagerð hér á landi þessa dagana. Slíkt er reyndar ekki ný bóla en þetta leiðir hugann að því hvort ekki sé fyllsta ástæða til að ná með lögum yfir slíka starfsemi. Í fyrsta lagi er engin ástæða til að erlendir aðilar geti gengið um landið og myndað að geðþótta án þess að fyrir komi nokkur greiðsla til opinberra aðila. Í öðru lagi er fyllsta ástæða til að vernda íslenska kvikmyndagerð að þessu leyti með einhvers konar hömlum á þá erlendu aðila sem um ræðir, en eins og allir vita er íslensk náttúra mikilvægt myndefni íslenskra kvikmyndagerðarmanna. Þess vegna vil ég hreyfa þeirri hugmynd hér að inn í þetta frv. verði sett ákvæði um kvikmyndalögsögu Íslands og að ef erlendir aðilar fái leyfi til kvikmyndagerðar innan hennar greiði þeir tilskilin aðstöðugjöld. Slíkt fyrirkomulag tíðkast víða í nágrannalöndum okkar eftir því sem ég best veit og ég vil einnig gera það að tillögu minni að slík aðstöðugjöld renni þá beint í Kvikmyndasjóð Íslands. Hér væri um nýjan tekjustofn fyrir sjóðinn að ræða og nýir tekjustofnar eru dýrmætir nú á dögum eins og menn vita. Þannig mætti þetta í leiðinni verða til þess að efla enn frekar íslenska kvikmyndagerð.