02.05.1984
Efri deild: 87. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5037 í B-deild Alþingistíðinda. (4456)
319. mál, kvikmyndamál
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Sem áhugamaður um kvikmyndir og raunar gamall kvikmyndagerðarmaður vil ég fagna því á hvern rekspöl þetta mál er nú komið og lýsa stuðningi við þetta frv. að meginefni til. Það eru ýmis ákvæði í því sem til mikilla bóta horfa. Ég á sæti í þeirri n. sem fær þetta mál til meðferðar og hef því tækifæri til að fjalla um það þar og skal því ekki gerast mjög langorður.
Ég vil segja það í tilefni ummæla síðasta ræðumanns, hv. 11. þm. Reykv., að það hefur í mörg ár verið skoðun íslenskra kvikmyndagerðarmanna að þegar svo háttar sem nú gerir með hið erlenda fyrirtæki, 20th Century Fox, sem hér vinnur að mikilli kvikmyndagerð með 40–50 manns, kemur með allt með sér og skilur ekkert eftir, eigi að koma nokkurt gjald fyrir þá aðstöðu sem við látum slíkum fyrirtækjum í té.
Hugmyndin um kvikmyndalögsögu er búin að vera mjög til umræðu meðal íslenskra kvikmyndagerðarmanna og í Félagi íslenskra kvikmyndagerðarmanna, þar sem ég er félagi í að nafninu til, hefur þessi hugmynd oft verið rædd. Okkur er hins vegar ljóst að einhverjir annmarkar kunna að vera á henni í framkvæmd. Það er kannske erfitt að setja nákvæm mörk milli áhugamanna sem eru hér við myndgerð og svo aftur stórra, allt að því fjölþjóðlegra fyrirtækja sem velta á hverju ári margföldum fjárlögum íslenska ríkisins. En í tilvikum eins og nú er um að ræða með kvikmyndatökuna á Skógasandi og í Vestmannaeyjum orkar það ekki tvímælis að þegar erlendir aðilar koma hingað í þessum erindagjörðum finnst okkur að þeir eigi að láta eitthvað af hendi rakna og við eigum að hafa nokkuð fyrir okkar snúð í þessum efnum. Þess eru ýmis dæmi að undir svipuðum kringumstæðum hafi aðilar sem þessir greitt til kvikmyndagerðar í því landi sem þeir hafa verið að vinna í og það á hiklaust að gera hér.
Mér finnst að sú nefnd sem fær þetta til meðferðar eigi að athuga þetta mál með kvikmyndalögsöguna sérstaklega og hafa um það samráð við kvikmyndagerðarmenn hvernig best sé að haga því máli. Ég skal ekki hafa fleiri orð um þetta. Þetta er gömul hugmynd sem lengi hefur verið rædd hjá kvikmyndagerðarmönnum og þeir hafa fullan hug á að vinna henni stuðning og mun ég að sjálfsögðu ekki liggja á liði mínu með það vegna þess að mér finnst að ákvæði um þetta eigi hér heima.
Það eru örfá atriði önnur sem ég vildi minnast stuttlega á. Í 3. gr. frv. er talað um hvaða fjórir aðilar eigi að tilnefna menn í stjórn Kvikmyndasjóðsins. Mér finnst að það geti verið umræðuatriði hvort það eigi að vera Félag íslenskra leikara sem þarna tilnefni mann eða Bandalag íslenskra listamanna. Mér finnst að það geti alveg komið til athugunar.
Annað varðandi 8. gr.: „Heimilt er að koma á skylduskilum kvikmynda skv. nánari ákvæðum í reglugerð.“ Þetta er nýmæli eins og hæstv. menntmrh. sagði í sinni framsöguræðu áðan. Nú er því öðruvísi háttað með kvikmyndir en bækur að hvert eintak er býsna dýrt þó að ekki sé annað en bara kostnaðurinn við hráefnið og kóperingakostnaður. Mér finnst að hér kæmi jafnvel til greina að Kvikmyndasafnið keypti eintök af nýjum kvikmyndum á kópíukostnaðarverði, ef nota má það orð, þ. e. greiddi kostnað við filmuefni. Annars er ég hræddur um að það kynni að brenna við að Kvikmyndasafnið fengi eintök í þessum skylduskilum sem búið væri að nota, einhvers konar vinnueintök, vinnukópíur sem væru kannske ekki fyrsta flokks, rispaðar og ekki í sem allra bestu ásigkomulagi. Það er sanngirnismál að borgað sé fyrir þetta sem nemur kópíukostnaði en kvikmyndafyrirtækin hafi ekki beinan og verulegan kostnað af því að leggja safninu þessi eintök til. Þetta held ég að ætti að koma til athugunar.
Varðandi 10. gr. sem hæstv. menntmrh. minntist á hef ég sömuleiðis heyrt þá skoðun og ýmsir látið hana í ljós að í rauninni sé óþarfi að taka þetta sérstaklega fram vegna þess að kvikmyndir eru kvikmyndir, hvort sem þær eru á myndbandi eða hinni hefðbundnu gömlu kvikmyndafilmu. En þetta eru minni háttar atriði.
Ég lýsi sem sagt stuðningi, herra forseti, við þetta frv. Í ljósi þess hve orðið er áliðið dags ætla ég ekki við þessa umr. að hafa um þetta fleiri orð.