02.05.1984
Neðri deild: 78. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5123 í B-deild Alþingistíðinda. (4497)
123. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Frsm. 2. minni hl. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Því miður tókst hæstv. ráðh. ekki að svara þeim spurningum sem fyrir hann voru lagðar, hvorki varðandi vextina né hina nýju útlánaáætlun Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóðs verkamanna. Þá voru svör hans í sambandi við húsnæðissamvinnufélögin óljós og málflutningur hans og hv. frsm. félmn. er á skjön. Þar rekur sig hvað á annars horn og er ekkert samræmi á milli þess sem þeir segja.
Ég vildi, herra forseti, í þessari ræðu minni, áður en ég kem að orðum ráðh., gera örlitla grein fyrir afstöðu minni til nokkurra þeirra brtt. sem fram hafa verið bornar umfram þær tillögur sem fluttar eru af þremur þm. Alþb. Ég þarf ekki að geta þess að ef atkvgr. um þessi mál þarf að fara fram á morgun, eins og mér skilst á hæstv. forseta að sé ætlunin, er nú nauðsynlegt að menn glöggvi sig á þessum tillögum og efni þeirra og innihaldi sem best því að það kann að vera vandséð í hvaða röð sumar af þessum tillögum á að bera upp. Því hygg ég að það væri skynsamlegt verklag að hæstv. forseti og skrifstofan og flm. till. bæru sig saman um atkvgr. áður en til hennar kemur til þess að það fari ekki í handaskotum því að hér eru uppi mjög margar brtt. eða líklega um 60 alls.
Það er rétt, sem hv. þm. Jón Baldvin Hannibalsson sagði hér áðan, að það er ákaflega ósanngjarnt að bera stjórnarandstöðunni, sem ég leyfi mér að tala um í heild í þessu tilviki, á brýn að hún sé neikvæð í þessum umr. Ég hygg að sjaldan hafi stjórnarandstaðan í vetur flutt eins mikið af jákvæðum og uppbyggilegum till. og einmitt nú. Ég vísa því líka á bug að fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna í félmn. hafi á nokkurn hátt tafið fyrir meðferð þessa máls meðan það var á dagskrá nefndarinnar. Ég held að það sé þvert á móti svo, að fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna hafi lagt sig mjög fram um að greiða fyrir afgreiðslu þessa máls, og ég hygg að það sé næsta óvenjulegt að svo margar vel unnar brtt. og svo ítarleg nál. komi frá minni hl. í starfsnefnd þingsins með svo skömmum fyrirvara sem í þessu máli.
Ég ætla að víkja að brtt. og fyrst að koma að brtt. meiri hl. Brtt. meiri hl. eru flestar tæknilegs eðlis og eru yfirleitt til bóta frá því sem er í frv. Ég tel t. d. að brtt. 1 og brtt. 3, 4, 5, 6, 7 og 8 frá meiri hl. séu allar þannig að ég fyrir mitt leyti a. m. k. mundi greiða þeim atkv. Ég tel hins vegar að brtt. 2 gangi allt of skammt, en ef svo færi að brtt. mín og tveggja annarra þm. Alþb. yrði felld varðandi það efni mundi ég styðja brtt. meiri hl.
Ég tel að brtt. 9 í till. meiri hl. sé ein sú veigamesta og ég held að forsendur hennar hafi verið samviskusamlega unnar. Ég hef ekki haft aðstöðu til að bera mig saman við Þjóðhagsstofnun eða Alþýðusambandið um innihald þessarar till., en ég held að hún sé í rauninni ekki efnisleg breyting, heldur fyrst og fremst breyting á reikningsaðferð. Mér finnst reikningsaðferðin, sem hér er gerð till. um af meiri hl., betri en sú sem er í gildandi lögum og ég mun þess vegna styðja till. ef ekki er um að ræða efnisbreytingu frá því sem verið hefur.
Ég vil einnig taka fram að ég tel að 14. brtt. sé til bóta frá því sem er. Ég átta mig ekki alveg á innihaldi þeirrar 15.
Ég vil lýsa stuðningi mínum við 17. brtt., en hún gerir ráð fyrir því að fétagsmönnum í byggingarfélögum verkamanna, sem annast sameiginlegt viðhald á íbúðum félagsmanna, verði heimilt að stofna húsfélög í samræmi við ákvæði laga nr. 59/1976, um fjölbýlishús, þannig að húsfélögin taki sameiginlegt viðhald í sínar hendur. Ég tel að þessi brtt. sé jákvæð og ég mun styðja hana fyrir mitt leyti. Ég held hins vegar að ráðh. sé lagður þungur kross á herðar með lokasetningu þessarar greinar, en þar er honum ætlað að semja reglugerð um útfærslu hennar. Ég held að málið sé býsna flókið, en ég hygg hins vegar að það sé erfitt ef ekki vonlaust fyrir löggjafann að leysa þetta mál með miklu ítarlegri lagagrein en þarna er gerð tillaga um.
Ég hafði áður getið þess að ég mun fyrir mitt leyti greiða atkv. með brtt. 20 í sambandi við skyldusparnaðinn.
Ég taldi rétt, herra forseti, að afstaða mín til brtt. meiri hl. kæmi hér fram. Ég tel að þær séu, miðað við allar aðstæður, heldur til bóta frá því sem í frv. er, a. m. k. flestar þeirra.
Ég tel einnig að í rauninni séu flestar brtt. hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur til bóta frá því sem er í frv. Sumar þeirra eru hreint tæknilegar, aðrar eru efnislegar, eins og ákvæðin til bráðabirgða. Ákvæðin til bráðabirgða ganga kannske að sumu leyti í aðra átt en þær brtt. sem þm. Alþb. flytja, en að þeim felldum, ef svo fer, mun ég fyrir mitt leyti styðja þær brtt. sem hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir flytur á þskj. 689. Hins vegar hef ég allan fyrirvara um mína afstöðu til brtt. hv. þm. nr. 2, við 9. gr., staflið a, og hið sama er að segja um brtt. 9, í sambandi við vexti af lánum Byggingarsjóðs ríkisins.
Hvað varðar brtt. hv. þm. Bandalags jafnaðarmanna get ég fyrir mitt leyti tekið undir brtt. 1 á þskj. 694. Allir tillögumenn stjórnarandstöðunnar flytja till. um breytingu á markmiðsgrein laganna. Það er í rauninni táknrænt að allir þessir þrír stjórnarandstöðuflokkar skuli þannig hver í sínu lagi flytja tillögur af því tagi sem hér eru uppi, þar sem lögð er alveg sérstök áhersla á að tilgangur húsnæðislaganna eigi að vera sá að auka möguleika fólks á öruggu húsnæði til eignar eða leigu. Hér er sem sagt ekki lengur um að ræða þá einhliða áherslu á eignarhaldsíbúðir sem verið hefur hér í okkar löggjöf, þó að það sé vissulega rétt sem hæstv. félmrh. sagði hér áðan að ég hygg að allir stjórnmálaflokkar séu sammála um að það er eðlilegt að þar sé gert það sem unnt er af samfélagsins hálfu til þess að fólk geti átt þær íbúðir sem það býr í, ef það vill og framast getur.
Ég verð hins vegar að segja að öðru leyti um tillögur þingflokks Bandalags jafnaðarmanna, hv. þm. Kristínar Kvaran og Guðmundar Einarssonar, að ég get ekki stutt þær og mun fyrir mitt leyti greiða atkv. gegn þeim, a. m. k. till. 10 og 11. Sömuleiðis brtt. á þskj. 704, um útborgun á skyldusparnaði.
Í ræðu hæstv. félmrh. áðan komu fram nokkur atriði sem ég tel nauðsynlegt að gera hér að umtalsefni. Það fyrsta var að hann ræddi nokkuð um lækkun á lánshlutfallinu úr 90% í 80% í verkamannabústöðunum. Hann vitnaði til þess að í fyrra hefði verið lagt fram stjfrv. sem hefði opnað fyrir möguleika á því að lækka þetta lánshlutfall úr 90%. Það er rétt. Það stjfrv. var flutt. Ég segi ekki að ég hafi átt hugmyndina, en þó er hugsanlegt að ég hafi komið fram með hana nokkuð snemma, að þetta yrði gert ef viðkomandi kaupandi íbúðar í verkamannabústað ætti rétt á lífeyrissjóðsláni. Mér fannst og finnst óeðlilegt að útiloka að maður sem fer inn í verkamannabústað geti tekið sitt lífeyrissjóðslán. Sú till. sem þá var flutt gerði ráð fyrir að það mætti nýta 1. veðrétt verkamannabústaða við hliðina á láni frá Byggingarsjóði verkamanna í þessu skyni. Ég er þeirrar skoðunar enn þá að þetta hafi verið skynsamleg till.
Hæstv. ríkisstj. hefur hins vegar ekki tekið þessa till. upp. Hún gerir eingöngu ráð fyrir að lánið verði lækkað í 80% og það er enn þá gert ráð fyrir að Byggingarsjóður verkamanna sitji einn að 1. veðrétti. Það er ekki gert ráð fyrir því í brtt. ríkisstj., að ég best fæ séð, að lán frá lífeyrissjóði geti komið samhliða láni úr Byggingarsjóði verkamanna og þannig lækkað það lánshlutfall, sem úr honum kæmi. Ég tel að það sé ekkert við það að athuga þó að þessi tvö lán væru lögð saman, eins og þarna var gerð till. um, og ég mundi fyrir mitt leyti vera tilbúinn að taka undir slíka hugmynd.
Í öðru lagi kom hæstv. ráðh. að þessu fræga máli varðandi 33. gr. og sagði m. a. í ræðu sinni að það hefði ekki komið fram nein brtt. við 33. gr. Það er misskilningur. Það hefur komið fram brtt. við 33. gr. bæði frá mér og hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur. En það er ekki aðalatriði málsins, heldur þetta: Geta húsnæðissamvinnufélög fengið lán úr Byggingarsjóði verkamanna skv. þessari grein? Hv. þm. Halldór Blöndal sagði fyrr í dag: Það er ekki. Búseturéttarkerfið er fyrir utan þessa grein. Og hv. formaður félmn., Þorsteinn Pálsson, sagði með skýrum og afdráttarlausum hætti í félmn. Nd.: Húsnæðissamvinnufélögin eru fyrir utan þessa grein. Að vísu hefur þessum þm. kannske báðum láðst að lesa grg. með stjfrv., en í henni er bersýnilega gert ráð fyrir að húsnæðissamvinnufélög geti fallið undir þessa grein. Að því leytinu til hefur ráðh. grg. með sér þó að hann hafi þm. á móti sér. Hæstv. ráðh. sagði hér í sinni ræðu: Það eru möguleikar á því að þetta félagaform geti komið undir Byggingarsjóð verkamanna, enda hlíti það sömu skilyrðum og verkamannabústaðakerfið. — Og hann sagði líka: C-liður 33. gr. gefur þessum samtökum þennan möguleika. — Ráðh. lýsir því sem sagt ítrekað yfir að húsnæðissamvinnufélögin falli undir Byggingarsjóð verkamanna og félagslega íbúðabyggingakerfið. Ég vil segja út af orðum hv. þm. Jóns Baldvins Hannibalssonar um þetta mál áðan að mér fannst að yfirlýsing ráðh. væri nokkuð afdráttarlaus í þá veru að húsnæðissamvinnufélögin gætu verið þarna undir. Ég rekst hins vegar á það sem frsm. n., hv. þm. Halldór Blöndal, sagði áðan. Og ráðh. fór líka að draga í land seinna í ræðu sinni. Hann sippaði sér yfir í dálítið annað til að reyna að bjarga sér í land þegar hann sagði: Húsnæðismálastjórn á eftir að koma saman til að túlka þetta. — Það þarf sem sagt túlk og kemur nú engum á óvart. Húsnæðismálastjórn á m. ö. o. að túlka hvað það þýðir að frsm. félmn. og hæstv. félmrh. segja alveg sitt hvað í þessu efni. Ég held að það sé alveg óhjákvæmilegt að hæstv. félmrh. gangi frá því við samstarfsflokk sinn í ríkisstj. hvað hér er átt við og það komi frá flokkunum báðum sameiginleg yfirlýsing í þessu efni, bæði frá Sjálfstfl. og Framsfl. Ég treysti því ekki og ég tel það ekki eðlilegt að húsnæðismálastjórn sé notuð sem túlkur í þessu efni, eins og hæstv. félmrh. ætlast til. Ég óska eftir því að flokkarnir báðir komi sínum skilningi á blað og reyni að þræla sér í að finna út formúlu sem hentar þeim báðum í þessu efni.
Hv. þm. Halldór Blöndal og þeir félagar í meiri hl. hafa gert vissa tilraun í sínu nál. Hún er dálítið bögglingsleg. Hv. þm. Halldór Blöndal, sem er með mælskustu mönnum þingsins og oft orðhagur, kom textanum nokkuð illa frá sér um skeið í dag, en sóttist þó betur eftir því sem á leið og skýrði mál sitt þannig að húsnæðissamvinnufélögin væru þarna fyrir utan. Hv. þm. Stefán Guðmundsson, sem hér situr undir þessum löngu ræðum, skrifar undir álitið með hv. þm. Halldóri Blöndal. Ég skil það svo að þeir séu samherjar í málinu og ráðh. sé að glíma við þá báða og þess vegna þyrfti ráðh. að reyna að setjast niður á fund með meiri hl. félmn., helst í fyrramálið, til þess að fá þessa skýringu alveg skýrt frá ríkisstj. hvað hér er átt við. Það er greinilegt að menn hafa ekki enn þá komið sér saman í því efni. Það er útilokað að láta umr. um þetta mál ljúka öðruvísi en þessi skilningur liggi alveg skýrt fyrir. Ef atkvgr. á að fara fram um þetta mál kl. 4 á morgun verður áður að koma fram hver er hinn sameiginlegi skilningur. Það er hægt að freista þess í umr. og aths. með nafnakalli að knýja á um hvað það er sem ráðh. á við og nm. Gæti atkvgr. um þessar 60 brtt. orðið býsna tafsöm ef menn ætluðu sér að reyna að knýja fram niðurstöðu stjórnarflokkanna í málinu í umr. og aths. með nafnakalli. Ég skora þess vegna á hæstv. ráðh. að beita sér fyrir því að niðurstaða þessara aðila liggi fyrir áður en atkvgr. fer fram.
Í þriðja lagi viðurkenndi hæstv. félmrh. að samþykktin um 40% er marklaus fyrir árið 1984. Hann sagði að hann gerði ekki ráð fyrir að ríkisframlagið yrði aukið, og svo kom þessi gamla framsóknaraðferð í stjórnarsamstarfi, sem ég þekki dálítið, er hann bætti við: Að sjálfsögðu verður reynt. Það verður reynt að pína fram einhverja hækkun á þessu í stjórnarsamstarfinu og athugað hvort fjmrh. verður eftirgefanlegur í málinu þegar búið er að þæfa hann um skeið.
Fjórða atriðið sem ráðh. nefndi er í sambandi við vextina. Ég hef engu við það að bæta sem hv. þm. Jón Baldvin Hannibalsson sagði um það mál. Það verður auðvitað að koma fram hverjir vextirnir eiga að vera. Og það er útilokað að láta 3. umr. um þetta mál fara fram hér í Nd. öðruvísi en að niðurstaða um vextina liggi fyrir, sérstaklega núna þegar það er ætlun ríkisstj. að fara að útvega erlend lán í þessu skyni. Ég spyr hæstv. ráðh. og óska eftir svari hans á þessari nóttu: Ætlar ráðh. að standa þannig að málum að Byggingarsjóður ríkisins fari að taka gengistryggð lán? Er það ætlun ráðh. að Byggingarsjóður ríkisins fari að taka gengistryggð lán í dollurum og mörkum eða pundum, til viðbótar við það að hann þarf að taka lán hjá lífeyrissjóðunum með 5.08% vöxtum eigi Byggingarsjóður ríkisins að fara að taka gengistryggð lán? Þá held ég að hann fari nú að verða ræfilslegur þegar fram líða stundir, Byggingarsjóður ríkisins, þegar hann væri farinn að taka á sig gengistöp í stórum stíl umfram það sem þegar er á þeim háu vöxtum sem sjóðurinn verður að borga. Ég spyr hæstv. ráðh. þessarar spurningar: Verður Byggingarsjóður ríkisins látinn taka gengistryggð lán eða verður hér um það að ræða að ríkissjóður hafi milligöngu um þessa lánveitingu og Seðlabankinn, þannig að hér verði ekki um gengistryggð lán að ræða, heldur með einhverjum öðrum kjörum? Og þá spyr ég: Hvaða kjörum? Það hefur aldrei áður gerst að félmrh. á Íslandi hafi verið í þeirri nauð að hann hafi þurft að knýja á um erlenda fjármuni inn í Byggingarsjóð ríkisins. Það hefur aldrei gerst áður í sögunni. Þess vegna er nauðsynlegt að hæstv. ráðh. Alexander Stefánsson, sem er brautryðjandi í þessu efni, geri grein fyrir því hvernig hann hugsar sér að rækja þetta brautryðjendahlutverk sitt. Ég held að það hljóti að vera hægt að fara fram á að hann svari því nú í nótt.
Í fimmta lagi sagði hæstv. ráðh. að útlánaáætlun væri ekki fullfrágengin. Hann sagði: Eftir morgundaginn verða forsendur ljósar. Og þá segi ég: Þá á hæstv. ráðh. að geta komið hingað með útlánaáætlunina við 3. umr. málsins. Hún fer sennilega ekki fram fyrr en á föstudaginn eða jafnvel mánudaginn og þá á að vera hægt að fá útlánaáætlunina. Ég fer fram á það við hæstv. ráðh., þar sem forsendur hennar eru að verða ljósar, að hann geri grein fyrir áætluninni í síðasta lagi við 3. umr. málsins.
Í ræðu ráðh. kom margt fram sem ég er sammála. Ég vil taka það fram og tel enga ástæðu til að draga það undan í þessari ræðu minni að ég tel að það sé jákvætt að hann sé að gefa sérstakan gaum að fasteignakerfinu í landinu, hann sé að hugleiða leið til að hefta markaðsöflin og áhrif þeirra á hinn almenna húsnæðiskostnað í landinu. Hann sagðist vera með í undirbúningi frv. um fasteignakerfi. Mér finnst það nokkuð sérkennilega til orða tekið, frv. um fasteignakerfi. Hvar er fasteignakerfið staðsett í stjórnkerfinu, ef ég mætti spyrja? Er það í félmrn. eða er það í dómsmrn.? Hvar er fasteignakerfið í stjórnarráðinu samkvæmt lögum um Stjórnarráð Íslands? Ég hef aldrei áður heyrt talað um að menn ætli að flytja frv. um fasteignakerfið. Og ég vildi gjarnan vita hvar menn hugsa sér að vista það afkvæmi sem hugsanlega sæi dagsins ljós með haustinu, ef ég skildi hæstv. ráðh. rétt.
Herra forseti. Ég hef hér ítrekað nokkrar spurningar sem ég vildi bera fram til hæstv. ráðh. um leið og ég hef gert nokkra grein fyrir afstöðu minni til ýmissa brtt. sem fram hafa komið. Spurningarnar sem ég fer fram á að hæstv. ráðh. svari eru sem sagt þessar:
1. Að fram komi skýr afstaða til húsnæðissamvinnufélaganna og stjórnarflokkarnir samræmi skoðun sína.
2. Að fram komi upplýsingar um vaxtakjör á því erlenda láni sem á að fara að. taka í Byggingarsjóð ríkisins.
3. Þá vil ég ítreka þá ósk mína að það komi hér skýrt fram með hvaða hætti er ætlunin að útlánaáætlunin verði. Það var sagt að hún gæti orðið fullfrágengin næstu daga eða eftir daginn á morgun.
Loks væri fróðlegt að heyra svör við spurningunni um fasteignakerfið, sem ég bar fram áðan.