02.05.1984
Neðri deild: 78. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5128 í B-deild Alþingistíðinda. (4498)

123. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Forseti (Ingvar Gíslason):

Forseti vill taka það fram vegna orða hv. síðasta ræðumanns áður en næsta ræðumanni er gefið orðið að stefnt er að því að atkvgr. fari fram um þetta mál á morgun á fundi sem boðaður er kl. 4. Ég tek undir ábendingu hv. 3. þm. Reykv. um það að forseti beri sig saman við tillögumenn. Þetta verður flókin atkvgr. og forseti býður upp á það að tillögumenn ræði þetta mál við hann um ellefuleytið á morgun. Við ræðum það þá frekar í fyrramálið. Ég mun þá leggja fyrir slíkan fund uppkast að því hvernig forseti hugsar sér að bera þessar till. upp.