03.05.1984
Sameinað þing: 85. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5154 í B-deild Alþingistíðinda. (4533)

3. mál, sala ríkisbanka

Frsm. 2. minni hl. (Stefán Benediktsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir minnihlutaáliti 2. minni hl. í allshn. Sþ. um till. til þál. um sölu ríkisbanka. Ég þarf í sjálfu sér ekki að hafa mörg orð um þetta mál. Það er búið á undanförnum mánuðum að leiða í ljós með gleggri hætti en áður hvaða tilgangi þessi till. þjónar og hvaða hluti í okkar þjóðfélagi henni er ætlað að uppræta.

Sex aðilar sendu umsagnir um þetta mál. Þar af voru þrír ríkisbankar. Engin af stjórnum þessara þriggja ríkisbanka treysti sér til að gefa umsögn um málið, heldur héldu þeir allir að sér höndum undir því yfirskini að verið væri að endurskoða skipulag bankakerfisins og því væri ekki stætt á því að þeir létu álit sitt eða skoðun í ljós. Svo sterkt er hið pólitíska vald á þessu kerfi að forráðamenn þessara banka treysta sér ekki húsbænda sinna vegna til að segja einu sinni hvaða skoðanir þeir hafa á málum sem þessum.

Vinnuveitendasamband Íslands sendir umsögn um þetta mál. Í áliti þess, sem annars er frekar loðið, segir þó, með leyfi hæstv. forseta: „Það virðist mun líklegra til árangurs í þessu efni að breyta ríkisbönkum í hlutafélög og bjóða hlutabréf í þeim til sölu á frjálsum markaði.“ Þetta er að mati Vinnuveitendasambands Íslands ákveðin till. til lagtæringar á þeirri þáltill. sem fyrir liggur. Nú virðist e. t. v. ekki mjög greinilegt hvað þeim háu herrum gengur til með þessari till. sinni, en ég tel þó að við nánari athugun megi sjá hvað hér er á ferðinni. Þessir menn eru út af fyrir sig ekki ósammála því að hlutabréf í ríkisbönkum séu boðin til sölu, en þeir vilja halda opinni þeirri leið að ríkið eigi bankana á móti einkaaðilum. Og þá er þarna á ferðinni í raun og veru sú sama hugsun sem ræður ríkjum í dag, þ. e. að ríkið geti tekið á sig skellina þegar bankastarfsemin verður fyrir áfalli en ef að úr rætist megi hugsanlega yfirfæra eignirnar að hluta, annaðhvort með sölu eða öðrum hætti, til einkaaðila.

Síðan segir í þessari umsögn, með leyfi hæstv. forseta: „Í fyrsta lagi væru ríkisbönkunum búin sömu starfsskilyrði og einkabönkunum og í annan stað væri tryggt að á nokkru árabili mundi eignarhald á hlutabréfum færast frá ríkinu til einstaklinga og lögaðila. Slík hægfara þróun væri tvímælalaust hagfelldust“ — hvað sem það nú þýðir — „fyrir ríkissjóð og fjármálakerfi þjóðarinnar. Svipuð sjónarmið gilda um mögulega sölu annarra fyrirtækja og stofnana í eigu ríkisins.“

Það er aðallega í þessum orðum, sem ég þykist sjá þá meiningu sem ég var hér að túlka, hvort sem hún er með öllu sönn eður ei. Það verður þá að reyna á það með röksemdafærslu þessara aðila hvort ég hef rangtúlkað þá grundvallarhugsun sem hér kemur fram.

Síðan kom frá Kaupmannasamtökunum umsögn sem í raun og veru tekur enga afstöðu til þessa máls og svo er að lokum umsögn frá Alþýðusambandi Íslands sem er algjörlega á móti málinu og lýsir því yfir að það telji eðlilegt að þessi till. verði felld. Það gerist einhverra hluta vegna á þeim forsendum að í gegnum árin hafa Alþýðusambandsmenn og forustumenn verkalýðsins orðið þeirrar trúar að bankakerfið sé einhvers konar hluti af félagslegum rekstri. Það er eins og þeir séu algjörlega blindir fyrir því hvernig þetta bankakerfi er notað eingöngu ákveðnum aðilum til hagsbóta, þeim aðilum sem aðallega stunda atvinnurekstur og fyrirtækjastarfsemi, og að bankarnir eru notaðir í pólitískum tilgangi til þess að úthluta fé.

Nú gætu menn að einhverju leyti talið að ég talaði hér úr tómum hatti.

En ég held að menn fari ekki í neinar grafgötur um það að Davíð Scheving Thorsteinsson talar ekki úr tómum hatti þegar hann ræðir þessi mál og ég vil leyfa mér með leyfi hæstv. forseta að vitna hér til orða hans á aðalfundi Iðnaðarbankans. Hann segir:

„Það þekkist hvergi á Vesturlöndum að bankakerfið sé undir jafnmikilli pólitískri miðstýringu og hér á landi.“ Hann er sem sé ekki í nemum vafa um það að hér er á ferðinni pólitísk miðstýring. „Alls staðar á Vesturlöndum, að undanteknu Frakklandi, hefur stefnan undanfarin ár og áratugi verið á þá lund að minnka afskipti ríkisvaldsins af viðskiptabönkunum. Það hefur þá verið talið þjóna hagsmunum fólksins í landinu betur að láta samkeppni ráða aðhaldi í rekstri bankanna fremur en miðstýringu. Ríkið á hér og rekur þrjá stærstu viðskiptabankana. Þetta er eðlilegt fyrirkomulag sé talið æskilegt að nota bankana í pólitískum tilgangi. Sé hins vegar ekki ætlunin að nota þá í pólitískum tilgangi er engin ástæða til að ríkið bindi fjármuni og mannskap í þessu skyni. Nú liggur það fyrir að mikið fé vantar í ríkissjóð til þess að standa undir sameiginlegum útgjöldum landsmanna. Er ekki fyllilega tímabært að ríkið selji viðskiptabanka sína? Meðan það er hins vegar látið ógert legg ég til að ríkisbankarnir greiði eiganda sínum arð eins og Iðnaðarbankinn gerir.“

Ég kom að þessu atriði í umr. um annað mál hér á þingi í byrjun haustsins þegar var verið að ræða um Framkvæmdastofnun. Það er með öllu óeðlilegt að menn leggi fjármuni sína til banka með þeim hætti sem landsmenn gera og fái engan arð af því fé. Og formaður bankaráðs Iðnaðarbankans lýsir hér yfir sömu skoðun. Jafnframt segir hann:

„Legg ég til að þeir greiði ríkissjóði eðlilega þóknun fyrir þá ábyrgð sem ríkissjóður hefur tekið á sig þeirra vegna á sama hátt og gildir um ríkisábyrgðir almennt.

Reyndar er brýnt að tekið verði á þessum síðast töldu atriðum af annarri ástæðu. Það er frumskilyrði eðlilegrar samkeppni að allir aðilar á markaðnum standi jafnfætis hvað varðar ytri skilyrði. Nú þegar samkeppnin er innleidd í bankakerfið er nauðsynlegt að afnema forréttindi ríkisbankanna.“

Hér er hann væntanlega að tala um þær till. sem menn eiga von á að komi fram um endurskipulagningu bankakerfisins.

„Hlutafélagabankarnir njóta í dag ekki jafnréttis í samkeppninni. Þeir hafa ekki full gjaldeyrisréttindi, þeir verða að greiða eigendum sínum arð og þeir hafa enga ríkisábyrgð á starfsemi sinni, svo ekki sé talað um fyrirmæli fjmrn. til opinberra skrifstofa og stofnana þar sem þeim er í raun bannað að eiga viðskipti við aðra en ríkisbankana.“

Síðan segir í greininni með leyfi hæstv. forseta: „Morgunblaðið bar þessi ummæli Davíðs undir Sverri Hermannsson iðnrh. og sagði Sverrir að hann hefði marglýst því yfir að hann teldi að ríkið skipti sér í of ríkum mæli af bankastarfseminni og betur færi á því að bankarnir væru sjálfstæðir. Hann sagðist fullkomlega sammála Davíð í því að ríkisbankarnir ættu að greiða eigendum sínum arð og þóknun fyrir ríkisábyrgð. „ Því vil ég ekki sætta mig við að einkabankarnir sitji ekki við sama borð og ríkisbankarnir og mun beita mér fyrir því að þetta verði leiðrétt mjög fljótlega“, sagði iðnrh.“ Þetta segir hann á sama tíma og meiri hl. allshn. Sþ. leggur til að þáltill. um sölu ríkisbankanna verði felld. En það hlýtur náttúrlega að vera hverjum manni auðskilið að bankarnir geta ekki staðið jafnfætis rekstrarlega fyrr en eignarhald á þeim er með svipuðum hætti og ytri skilyrði þar með fengin til þess að samkeppnin sé á sanngjörnum grundvelli.

Ég vitna hér í nál. mínu til atburða undanfarinna mánaða þar sem sú áhersla sem stjórnmálaflokkarnir leggja á pólitíska stýringu bankanna og á að hafa í þeirri pólitísku stýringu undirtökin hefur orðið svo augljós að ekki verður um villst. Ég hef óljósan grun um að þeim röddum hafi farið fjölgandi núna að undanförnu sem telja að rekstrarfyrirkomulagi ríkisbankanna verði að breyta, að þeim röddum hafi farið fjölgandi vegna þeirra aðgerða sem nefndar eru hér í minnihlutaálitinu. Þeir atburðir hafa gert jafnvel meira en ég hefði nokkurn tímann getað náð, hversu mikið sem ég hefði reynt, og ber mér að þakka sérstaklega formanni Sjálfstfl. fyrir veitta aðstoð á undanförnum mánuðum.