03.05.1984
Sameinað þing: 85. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5163 í B-deild Alþingistíðinda. (4538)

52. mál, vistunarvandi öryrkja

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þessi till. um vistunarvanda öryrkja fjallar fyrst og fremst um að skora á ríkisstj. að beita sér fyrir því að leysa vandamál þeirra öryrkja sem eiga sakir andlegrar og líkamlegrar fötlunar örðugt um vistun á þeim stofnunum sem fyrir eru. Jafnframt er bent á að helst yrði um að ræða að efla stuðning við hjúkrun í heimabyggð eða stofnun sérdeildar við ríkisspítalana. Ef þessi till. væri samþykkt óbreytt væri málið ekkert leyst þrátt fyrir það.

Hv. frsm. meiri hl. n. vitnaði í bréf heilbrmrn. og þá ályktun sem fylgdi frá stjórnarnefnd um málefni þroskaheftra og öryrkja. Það segir í lok þess bréfs að stjórnvöld hafi tekið á þessu vandamáli og að lausn þess sé í sjónmáli. Það má segja að fulldjarft sé til orða tekið að það sé í sjónmáli og því síður hægt að tímasetja hvenær þetta getur orðið að veruleika.

Hér er ekki um að ræða sams konar sjúklinga eins og allir vita. Hér er um að ræða ákaflega mismunandi fötlun. Annars vegar er hér um að ræða fötlun fólks sem hefur glatað algerlega sínum andlega þroska. Það eru til dæmi þess að fólk veit eiginlega ekki hvar það er og þarf að hafa eftirlit með því meira eða minna allan sólarhringinn. Þannig eru þrír af þessum sjúklingum. Svo er annars vegar fólk sem er mjög illa farið líkamlega, en er við nokkuð góða andlega heilsu að öðru leyti. Það hlýtur að hafa áhrif á hvern mann andlega að glata í einu slysi eða á broti úr mínútu heilsu sinni og kröftum. Þetta fólk á enga samleið með hinu fólkinu, það vitum við.

Við skulum bara tala um þessi mál á eðlilegan og skynsamlegan hátt. Það er ekkert gaman að standa frammi fyrir aðstandendum þessa fólks sem verður að horfa upp á að fyrst þegar slys eiga sér stað reyna læknar og hjúkrunarlið að gera aðgerðir á þessu fólki fyrst og fremst til að halda lífinu í því, ef það verður fyrir meiri eða minni beinbrotum og fleiri meiðslum. Þegar því er lokið liggur leiðin af slysavarðstofu á sjúkrahús. Síðan liggur leið þessa fólks inn á endurhæfingarstofnanir. Þar er reynd endurhæfing. Þar kemur strax upp þetta mikla vandamál: Við getum ekki haft þennan sjúkling lengur því við þurfum að rýma fyrir nýju fólki. — Síðan liggur leið viðkomandi sjúklings á stofnun sem hann á ekki heima á. Ég hef lent í því oftar en einu sinni að reyna að beita áhrifum mínum til þess að viðkomandi sjúklingur fari ekki inn á stofnun með fólki sem hann á alls ekki heima með af því að hann hefur þá andlegu heilsu að hann skynjar umhverfi sitt og á því ekki samleið með fólki sem er komið meira eða minna út úr heiminum. En í þessu ágæta landi og ríki, Íslandi, er máttur þeirra sem eiga að teljast æðstu menn þessara mála ekki meiri en sá að þar ráða læknar og forstöðumenn sjúkrahúsa og því miður verð ég oftar var við að ef það kemur beiðni frá rn. snúist sumir menn öndverðir gegn því. Það hefur oft hvarflað að mér hvort ekki væri kominn tími til að Alþingi veitti heilbrmrh. eða heilbrmrn. heimild til meiri íhlutunar um að koma fólki fyrir í stofnunum. Það er oft afar erfitt að eiga þannig undir högg að sækja. Hér er ekki um að ræða fólk sem maður þekkir persónulega, kunningsskap, skyldleika eða þess háttar. Þetta er oft bráðókunnugt fólk. En það þarf oft ákaflega mikinn styrk til þess að standa frammi fyrir fólki sem er niðurbrotið að sjá þannig komið fyrir skyldfólki sínu að það er flutt á milli stofnana og sett inn á stofnanir þar sem það á ekki heima.

Hitt er auðvitað allt annað, með fólk sem veit ekkert hvar það er, það skynjar kannske ekkert. Að því leyti til er það rétt hjá hv. síðustu ræðumönnum að ein ákveðin stofnun verður ekki sett upp fyrir alla þessa sjúklinga. Hún getur átt við í einstökum tilfellum eins og hér er sagt.

Þetta eru miklu meiri vandamál og persónulegri en maður kærir sig um að ræða frekar á hv. Alþingi, því að hér er um það fámennan hóp að ræða og ef ætti að hafa opinskáar umr. yrðu þær erfiðar og viðkvæmar. Þetta ætti miklu frekar að ræða um hjá mönnum í þröngum trúnaðarmannahópi á milli fólks sem virkilega vill leggja sig fram um að leysa erfið vandamál.

Ég verð að segja að það er kannske ekki alls kostar rétt hjá hv. 10. landsk. þm. að það sé skorið niður um milljónatugi. Þessi framlög hafa orðið til á síðustu árum. Það má segja að búið sé að byggja upp á nokkrum tíma ákaflega myndarlega fyrir þá sem eru þroskaheftir, fyrir þá sem hafa orðið fyrir áföllum og verða að vera á hælum allt lífið. Þetta er nokkurra áratuga framkvæmdasaga. Áður var ekkert gert í þessum efnum.

Þetta er ekki gert á skömmum tíma. Þessu hefur þokað mjög áleiðis á þessum árum og þegar lokið er einu verkefni tekur annað við. Og það er alveg hárrétt sem hv. 2. þm. Austurl. sagði hér áðan, að ekki var talin þörf á því lengi að byggja slíkar stofnanir úti á landi. Þá litu menn svo á að það væri annað nær sem þyrfti að gera. En við efumst ekkert um að þar hefur verið tekið mjög vel til hendinni og þessar stofnanir eru bráðnauðsynlegar og vitaskuld fögnum við mjög því sem áunnist hefur.

Ég lít svo á að vandamál þessara einstaklinga verði ekki leyst á einu bretti og ekki verði gert við alla eins. Ég sagði fulltrúa rn. þá skoðun mína, þegar hann sýndi mér samþykktina, að hún væri góð það sem hún næði, en ég hefði þá skoðun að við leystum þetta ekki á einu og sama brettinu, við þyrftum að líta á þetta eftir sjónarmiðum og ástandi hvers sjúklings fyrir sig í þessu sambandi.

Ég er alveg sammála flm. þessarar till. og raunar allri n. um að menn greinir ekki á um að þarna er úrbóta þörf. En samþykkt þessarar þáltill. held ég að skipti ekki höfuðmáli. Það eru vandamál bæði peningalegs eðlis og sömuleiðis stjórnunarlegs eðlis.

Áður en ég lýk máli mínu verð ég aftur að koma inn á það hvað víða er áfátt um samstarf á milli heilbrigðisyfirvalda og t. d. lækna sem vilja ráða öllum innlögnum. Þar er brýn þörf úrbóta sem gæti verið einn og nokkuð sterkur liður í lausn á því vandamáli sem hér hefur verið hreyft.